Tölvumál - 01.09.1993, Page 25
September 1993
Beinlínukerfið og þessi mikla
notkun þess, hafa að sjálfsögðu
valdið síaukinni þörf fyrir fleiri
og stærri tæki. Sjálf megintölvan,
IBM 3090/200J, sem hefur 128
Mb innra minni, 45 MIPS hraða
og 128 Mb ytra minni (expanded
storage), kom í apríl 1990 og er í
dag "keyrð áfelgunum" tvo fyrstu
afgreiðsludaga í mánuði, en
dugar vel aðra daga. Mælingar
sýna sífellt fleiri 10 mín. bil með
100% CPU-notkun þessa 2 fyrstu
daga hvers mánaðar. Hámarks-
Meðalfærsluverð 1976-1992 framreiknað til meðalverðlags 1992
(skv. veröstuöli ríkisskattstjóra)
afköst eru væntanlega á bilinu
32-33 aðgerðir á sekúndu, en
meðalfærslufjöldi á sekúndu á
afgreiðslutíma fyrstu 6 mánuði
þessa árs var 22,16. Svartíminn
innan vélar var á sama tímabili
að meðaltali 0,32 sekúndur, sem
er nokkur aukning frá ársmeðal-
talinu 0,27 sek. 1992.
Fjarskiptatölva RB er nú IBM
3745/410. Diskarými RB verður
væntanlega, þegar þetta er lesið,
195,5 Gb eftir aukningu um 31,5
Gb í ágúst 1993.
Þóvður Siguvðsson ev
fovstjóvi Re i k n i s t ofu
bankanna.
Punktar...
Mannekla á Hagstofunni
í Hagtíðindum, febrúar 1964
er kafli um fyrstu ár Hag-
stofunnar. Þar kemur fram
að Hagstofan hafi tekið til
starfa í ársbyrjun 1914 "í
tveimur herbergjum" og voru
ráðnir tveir menn til starfa
auk eins sem var í hlutastarfi.
Svo segir: "Nokkuð bætti
það þó úr skák, að við stofn-
un Hagstofunnar voru keyptar
handahenni tværreiknivélar,
önnur samlagningarvél skrif-
andi, sem aðallega var notuð
við úrvinnslu verzlunar-
skýrslna, en hin margföld-
unar- og deilivél. Höfðu slík
tæki eigi áður verið notuð
hér við hagskýrslugerð.
Munu þetta vera hinar fyrstu
reiknivélar, er fluttust hingað
til lands. Margföldunarvélin
nefndistTrinks-Brunsviga, og
var hún bæði stærri, þyngri
og hávaðameiri en vélar þær,
sem nú eru notaðar, en hún
var sterk er enn í notfæru
standi."
25 - Tölvumál