Tölvumál - 01.09.1993, Page 32
September 1993
DOS/VSE, var alls ekki viðun-
andi stjórnkerfi lengur. Því var nú
skipt út fyrir MVS/XA, einnig frá
IBM.
Samvinnsla
Samvinnsla hófst árið 1991. Það
ár fóru tvö slík kerfi í rekstur.
Mikil þróun er nú í biðlara/
miðlaratækni og öðrum skeyta-
sendingum milli tölva.
Á síðasta ári hófst rekstur á EDI,
þ.e. skjalalausum samskiptum
milli tölva. Þeim fjölgar ört sem
nýta sér þá tækni.
Ársins 1993 verður líklega síðar
minnst m.a. vegna tengingar við
gagnabanka Evrópubandalagsins.
Þróun tölvustóls
Margar kynslóðir af tölvum hafa
verið í notkun hjá Skýrr
síðan fyrsta 370 vélin kom
árið 1973. Fram yfir 1980
var nokkrum sinnum skipt í
stærri 370 vélar eða þær
stækkaðar sem voru í notk-
un. Árið 1981 fengu Skýrr
nýja móðurtölvu af gerðinni
IBM 4341, model 1. Ein vél
al' þeirri gerð er enn í notkun.
Auk hennar hafa Skýrr haft
nokkrar aðrar IBM vélar úr
43 seríunni sem hafa verið
stækkaðar og endurnýjaðar
hvað eftir annað. Árið 1987
kom enn ný gerð af móður-
tölvu til fyrirtækisins, IBM
3090. Nú er aðalmóðurtölva
Skýrr af þeirri gerð, IBM
3090-200J, og er verið að
stækka minni hennar í 256
MB. Auk þess keyra Skýrr IBM
4381, model 92E, gömlu 4341
vélina, þrjár míkró VAX tölvur
og HP 9000 töl vu, auk staðarneta,
gátta og fleiri tölva. Á flestra
borðum eru nú einmennings-
tölvur, bæði hjá starfsmönnum
Skýrr og notendum í netinu.
Framtíð
tölvumiðstöðva
Á áttunda áratugnum fór val-
kostum í tölvuvæðingu fyrirtækja
og stofnana fjölgandi og um 1980
komu einmenningstölvur fram á
sjónarsviðið. Hvað eftir annað
hefur endalokum stórra tölvu-
miðstöðva verið spáð, þar sem
ný tækni geti nú leyst þær af
hólmi. Þróunin í heiminum virð-
ist þó ekki benda til að svo verði
í bráð. Hvert nýtt tæknispor hefur
ekki aðeins aukið möguleika á
staðbundinni upplýsingavinnslu
heldur einnig víkkað þjónustu-
svið tölvumiðstöðvanna.
Mönnum er að verða Ijósari þörf
á samræmingu í meðferð og við-
haldi upplýsingasafna. Öryggis-
Úr vélasal Skýrr 1972
mál eru yfirleitt betur leyst mið-
lægt, bæði afritun og aðgangs-
stýring. Erfitt og dýrt er að byggja
upp á mörgum stöðum sérhæfða
þjónustu þar sem tækniþekking
er mikilvægur þáttur. Eftirlit með
kostnaði og með réttri meðferð
upplýsinga er auðveldara þar sem
heildaryfirsýn næst. Athuganir
aðila eins og t.d. Gartner Group
gefa til kynna að miðlæg upp-
lýsingavinnsla sé mun ódýrari en
dreifð þegar litið er á alla þætti.
Búast má við aukinni samnýtingu
tölvumiðstöðva og minni tölva,
þ.e. áframhaldandi þróun í formi
hvers kyns samvinnslu, fremur
en því að hver aðili loki sín
viðfangsefni innan eigin veggja.
Þjóðbraut upplýslnga
Upplýsingakerfin sem Skýrr hafa
þróað tengjast hvert öðru á
ýmsan hátt og skiptast á upplýs-
ingum innbyrðis. Mörg fyrirtæki
í einkarekstri sækja upplýsingar
og skila inn í þau með tengingu
við Skýrr. Þekking og yfirsýn
yfir hin flóknu upplýsingaskipti
þjóðfélagsins hefur byggst upp
hjá Skýrr í gegnum tíðina. Nú er
einn mikilvægasti þátturinn í
þjónustunni að greina og hanna
viðamikil upplýsingakerfi sem
notuð eru á landsvísu. Langt er
32 - Tölvumál