Tölvumál


Tölvumál - 01.09.1993, Page 34

Tölvumál - 01.09.1993, Page 34
September 1993 Saga Reiknistofnunar Háskólans Oft hefur maður heyrt eða séð skrifað að Reiknistofnun hafi verið stofnuð 1976. Meira að segja var hátíðlega haldið upp á tíu ára afmæli stofnunarinnar 4. apríi 1986. En sagan er í raun og veru lengri, eða allt frá 1964, og er í þremur hlutum. Má með sanni tala um að Reiknistofnun hafi farið í gegnum þrjú æv- iskeið: Reiknistofnun hin eldri, Reiknistofnun hin nýrri, og þar á milli Reiknistofa Raunvísinda- stofnunar. Reiknistofnun hin eldri Reiknistofnun hóf starfsemi sína 1964 í kringum IBM 1620 vél sem Framkvæmdabankinn gaf Háskólanum í tilefni af tíu ára afmæli sínu, 10. febrúar 1963. Kaupverð var þá 2,8 milljónir króna, eftir að reiknaður var inn sá 60% afsláttur sem IBM veitti vísindastofnunum frá raunverði. Armann Snævarr sem þá var há- skólarektor sagði við afhendingu gjafabréfsins að þetta væri ein mesta gjöf sem Háskólanum hefði nokkru sinni borist. Raf- heilinn, eins og fyrirbærið var kallað í dagblöðum, var settur upp í desember 1964 í kjallara húss Raunvísindastofnunar sem þá var enn í byggingu. Bersýni- lega var ekki hægt að kalla tæki þetta "tölvu" þar sent það orð hafði ekki enn verið fundið upp. Það kom fyrst fram árið 1965 í samtali milli Sigurðar Nordals og Magnúsar Magnússonar. Magnús var ennfrenrur fyrsti forstöðumaður stofnunarinnar. Til glöggvunar skal það tekið fram að þegar IBM 1620 var fyrst sett upp var hún með 20 KB minni og inntaks/úttaks tækin voru ritvél, gataspjaldalesari og gatari. Semsagt, seguldiskarvoru ekki enn komnir og ekki heldur prentari. Síðan var minnið stækkað úr 20 í 60 KB, segul- diskur kom, með fyrsta vísi að frumstæðu stýrikerfi, og prentari. Reiknistofnun Mark II íkringum 1973 varReiknistofnun færð til í skipulagi, og gerð að stofnun innan Raunvísindastofn- unar Háskólans. Það fyrirkomu- lag virðist ekki hafa heppnast sérstaklega vel, eins og best sést á því að forstöðumaður kom strax með tillögu um að Reiknistofu Raunvísindastofnunar yrði skipt í Reiknifræðistofu og Reikni- þjónustu. Forstöðumenn stofn- unarinnar á þessu tímabili voru þeir Þorkell Helgason, Oddur Benediktsson og Jón Þór Þórhallsson. Vélbúnaðurinn var áfram IBM 1620. Reiknistofnun hin nýrri Nýjasti kafli í ævisögu Reikni- stofnunar byrjaði við komu IBM 360/30 vélar árið 1976. Með sérsamningi við IBM á íslandi fékk Reiknistofnun endurgjalds- Douglas A. Brotchie laus afnot af tölvunni í þrjú ár (sem síðan urðu fjögur). Skipu- lagsbreyting átti sér stað á sama tíma og reglugerð var gefin út af Menntamálaráðuneytinu 11. rnars 1976 um starfsemi stofnun- arinnar. Þar er hlutverk hennar skilgreint í þremur liðum: - Annast rekstur reiknimið- stöðvar við Háskóla íslands til úrvinnslu verkefna kennara og nemenda og annarra starfs- manna ... - Annast reikniþjónustu fyrir aðila utan Háskólans ... - Gangast fyrir námskeiðum og fyrirlestrum til kynningar á nýjungum ... Sú reglugerð var í gildi í fjórtán ár, eða þangað til ný reglugerð var gefin út 14. rnars 1990 eftir langan aðdraganda og undir- búning. f henni er hlutverkið útvíkkað nokkuð og við tekur ný skilgreining í átta liðum. Meðal annars bættist þar við að: - vera háskólaráði og einstökum deildum til ráðuneytis um upplýsinga- og tölvutækni ... - byggjauppogrekaupplýsinga- og gagnanet fyrir Háskóla íslands, og annast þjónustu við notendur; - koma upp og reka, í nánu samráði við deildir, aðstöðu fyrir nemendur allra deilda til kennslu og náms ... - fylgjast með alhliða þróun í tölvutækni ... - hafa yfirsýn yfir eign, notkun og þekkingu Háskóla íslands á tölvubúnaði ... - tryggja vitneskju starfsmanna 34 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.