Tölvumál - 01.09.1993, Page 40
HRÖÐ - HRAÐAM-
Alpha AXP
er með hraðvirkasta örgjörva í heimi!
- eina tölvuhögunin sem hægt er að byggja á til framtíðar!
- með langbesta verð- / afkastahlutfall tölvuiðnaðarins!
- eina tölvuhögunin sem býður upp á val á þremur af
helstu stýrikerfum markaðarins!
- opnasta tölvuhögun sem um getur!
- frambúðarlausn á afkastavandamálum tölvuvinnslunnar!
- eina alhliða tölvuhögunin, allt frá fistölvum til ofurtölva!
Digital er fyrstur tölvuframleiðenda með tölvuhögun sem
hönnuð er til að endast langt fram á næstu öld. Alpha AXP er 64 bita
RISC högun, með 4.000.000.000 sinnum stærra línulegt vistrými en
hinn dæmigerði 32 bita örgjörvi nútímans og margföld afköst.
Alpha AXP tölvur Digital eru þær einu á markaðinum sem hafa
vistrými, afköst og aðlögunarhæfni fyrir viðfangskerfi 21. aldarinnar,
t.d. risagagnasöfn, gervigreind, margmiðlun, raunveruleikahermun
og háþróuð notendaskil sem skilja og tala mannamál.
Það skiptir ekki máli hvaða afkastamælingar eru notaðar,
Alpha AXP tölvur Digital skara fram úr í þeim öllum. Ef þig vantar
vinnustöð sem afkastar 165 SPECmark eða miðlara upp á 1158
SPECmark eða upp undir 2000 færslum á sekúndu (TPC-A ), er
Alpha AXP eini kosturinn.
Alpha AXP tölvur byggja á opnum kerfisstöðlum í alla staði
og falla óaðfinnanlega inn í opin kerfisumhverfi Digital og annarra
framleiðenda.
Þú getur valið á milli helstu stýrikerfa markaðarins:
DEC OSF/1 (UNIX) og Open VMS frá Digital og Windows NT frá
Microsoft. Senn bjóða þau upp á byltingakenndar nýjungar í stýri-
kerfistækni og fjárfestingavernd í þeim hugbúnaði sem þú notar nú.
Það mælir allt með því að
velja Alpha AXP, ekki bara
framúrskarandi tækni, heldur
einnig ótrúlega hagstætt verð og
25 - 300% betra verð- / afkasta-
hlutfall en aðrir geta boðið.
Ef þú vilt tjalda lengur
en til einnar nætur,
veldu Alpha AXP!
Alpha AXP er - og verður öruggasta
fjárfestingin fyrir tölvuvinnslu framtíðar!
D 1 G 1 T A L á ísla n_ D I
= ÖRTÖLVUTÆKNI jH
Skeifunni 17 sími 687220
Alpha AXP tölvur Digital eru þegar til i miklu úrvali
-allt frá smáum borötölvum til afkastamestu stórtölva.