Tölvumál


Tölvumál - 01.09.1993, Síða 44

Tölvumál - 01.09.1993, Síða 44
September 1993 IBM 370 tölva með segulbanda- stöðvum og þokkalegum segul- diskum. Aðalmati fasteigna lauk formlega 1971 og matsnefndir hættu störf- um. Næstu árin á eftir var Fast- eignamatið deild innan fjármála- ráðuneytisins. Tölvukerfið var þá notað til að endurmeta eignir og ný hús en breytt lítilsháttar svo að það réði við fáar eignir í einu. Engu að síður varð að framkvæma matsreikninga í tölvu Reiknistofnun, frumskrá gögn og villuleita hjá fasteignamatinu og framfæra skrár í tölvu SKÝRR. í kerfismynd sem greinarhöfundur gerði af þessari "dreifðu" tölvu- vinnslu 1973 var að finna óvana- legt tákn. Það var "sendibifreið" og kom fyrir sem samskiptatákn á 5 stöðum og táknaði flutninga á gataspjöldum á milli staða. Arið 1976varðFasteignamatrík- isins síðan að sjálfstæðri stofnun og hannað var nýtt tölvukerfi árið eftir. Það byggði á mörgum bestu hugmyndum gamla matskerfisins og þeirri reynslu sem aflast hafði síðar. Nýja kerfið notaði upplýs- ingar úr gamla upplýsingasafninu til að meta allar íbúðir í Reykja- vík. Þá kom í fyrsta sinn í ljós afrakstur þess mikla verks sem unnið var viðhönnungamlakerfisins. Upp- lýsingar voru enn í nýja kerfinu frumskráðar á gataspjöld með IBM spjaldagöturum en lesnar af þeim inn á tölvuskrár á segul- diskum í Data General tölvu fyrirtækisins ÍTÖLU hf. Umrædd- ir spj aldagatarar voru keyptir 1964 eða 1965 og notaðir samfellt í 18 ár. Þeir eru nú í vörslu Þj óðminj a- safnsins en þangað voru þeir fluttir sama dag og hætt var að notaþáhjáFasteignamatinu 1982. Þeir voru síðustu hlutar gamla upplýsingakerfisins. Segjamáað það sé dæmi um hversu hratt upplýsingatæknin breytist. Hlutar kerfis sem var áratug á undan sinni samtíð enduðu tveimur ára- tugum síðar sem safngripir. Stefán Ingólfsson er verkfrœðingur. Punktar... Fyrsta rafeindatölvan (ENI- AC) var smíðuð við raf- magnsverkfræðideild háskól- ans í Pennsylvaníu á árunum 1943 til 1964 undir stjórn J. P. Echkert og J. W. Mauchly. Bandaríkjaher stóð að smíð- inni, enda var tölvan fyrst og fremst gerð til að reikna út brautir fallbyssukúlna og sprengna. Það sem einkenndi þessa tölvu var að rafrásir eins og eru í útvörpum eða sjónvörpum, voru notaðar til að geyma tölur í tölvunni og stjórna og framkvæma reikn- inga með þeim. Almanak Þjóðvinafélagsins 1968. Hreinlæti borgar sig ekki Heimsstyrjöldin fyrri, sem brauzt út skömmu eftir stofn- un Hagstofunnar, hafði í för með sér mikla verðhækkun áöllumnauðsynjavörum. Er styrjöldin hafði staðið skamma hríð, tók Hagstofan að safna skýrslum um verð á nauðsynjavörum hjá kaup- mönnum í Reykjavík, er verzluðu með vörur þessar. Voru það um 60 vöruteg- undir, sem um var spurt, mest- allt matvörur, en að auki kol, steinolía og sápa. Hagtíðindi, febrúar 1964, kafli um vísitölu framfærslu- kostnaðar. Vélar þær, er Hagstofan tók í notkun haustið 1949, voru aðeins til töluúrvinnslu, enda voru þær ætlaðar til hag- skýrslugerðar eingöngu. Til þess að koma á fót og starf- rækja spjaldskrá með nöfnum og heimilisfangi mannaþurfti hins vegar "alfabetískar" skýrsluvélar, þ.e. vélar, sem skrifa mælt mál. Slíkar vélar komu til landsins á fyrri hluta árs 1952, að frumkvæði Raf- magnsveitu Reykjavíkur, sem hafði fyrir nokkru ákveðið að hefja notkun skýrsluvéla til útreiknings og skriftar á rafmagns- og hitaveitu- reikningum. Hagtíðindi, febrúar 1964, kafli um þjóðskrána. 44 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.