Tölvumál - 01.09.1993, Síða 47
September 1993
Afstaða kennara og skólastjóra
til tölvuvæðingar skóla var á þess-
um árum mjög jákvæð sem t.d.
kemur fram í skoðanakönnun
kennaranema sem send var í
grunnskóla vorið 1985 en þar
sést að nær 60% aðspurðra töldu
efnið mjög mikilvægt, um 30%
töldu það mikilvægt og um 10%
í meðallagi mikilvægt. Engir
töldu að það skipti ekki máli
eða að ónauðsynlegt væri að
fjalla um það. Kennarasamtök
ályktuðu einnig um efnið eins
og hér er dæmi um:
"3. þing Kennarasambands
íslands haldið 1.-4. júní 1984
leggur áherslu á að tölvunám,
þ.e. bæði kennsla á tölvur og um
tölvur verði þáttur í almennu
kennaranámi og mjög mikilvægt
er að starfandi kennurum sé sköp-
uð aðstaða til endurmenntunar á
vegum KHI.
3. þing Kennarasambands íslands
telur það grundvallaratriði að
tölvufræði og notkunarmögu-
leikar tölva verði hluti af skyldu-
námi fyrir nemendur í grunnskóla
og framhaldsskóla og þar með
eðlilegur þáttur í skólastarfinu."
Hið íslenska kennarafélag,
ályktaði einnig um þessi mál
vegna framhaldsskólans. Og
vorið 1983 skrifuðu urn 600
grunnskólakennarar í Reykjavík
undir ályktun þar sem skorað var
á menntamálaráðherra að hann
sæi til þess að kennurum á
grunnskólastigi verði hið fyrsta
gefinn kostur á námskeiðum í
undirstöðuatriðum tölvunotk-
unar og hvemig tengja megi töl vur
námi í grunnskólum. I fram-
haldsskólum virtist almenn krafa
kennara um námskeið ekki jafn
hávær og má e.t.v. telja að þar
hafa hugmyndin um tölvufræði
sem námsgrein verið mun sterkari
en í grunnskólanum þar sem fleiri
voru þeirrar skoðunar að þessi
mál vörðuðu alla kennara.
Menntun kennara
Háskóli íslands hóf 1982 að
bjóða 2 námskeið um ýmsa þætti
upplýsingatækni og skólastarfs
fyrir þá sem stunduðu uppeldis-
og kennslufræði. Hvort nám-
skeið um sig var 60 tíma langt.
Hvorugt námskeiðið var skylda.
Kennaraháskóli gerði 24 stunda
grundvallarnámskeið á sviði
tölvufræðslu að skyldu fyrir alla
nema vorið 1984. Námskeiðið
var síðar lengt í 36 stundir. Jafn-
framt var í einstökum valgreinum
farið að sinna þessum þætti betur
en áður auk þess að bjóða stutt
valnámskeið fyrir alla.
Ekki eru fyrirliggjandi tölur um
endurmenntunarnámskeið á
þessu sviði fyrir framhaldsskóla-
kennara eftir 1984 en nær 500
grunnskólakennarar sóttu sumar-
námskeið eða námskeið með
starfi á þessu sviði á árunum
1984-1986. Mun fleiri sóttu þó
um en komust að vegna takmark-
aðra fjárveitinga til endurmennt-
unar Kennaraháskóla íslands og
skorts á heimild til að selja nám-
skeið og afla þar með tekna til
starfseminnar. Margir kennarar
leituðu því í námskeið ýmissa
tölvuskóla en þar var áhersla oftast
á aðra þætti en tölvunotkun í
námi og kennslu. Síðarnefndu
námskeiðin hafa líklega mótað
nokkuð viðfangsefnaval kennara
og hvernig tölvum var komið
fyrir í skólum allt eins og hin
eiginlegu kennaranámskeið.
Með aukinni menntun kennara
jókst skilningur á því hve nauð-
synlegt væri að saman færu vél-
búnaðaröflun, hugbúnaðaröflun
og menntun kennara. Þessi
sjónarmið kom fram í skýrslu
vorið 1987 frá nefnd sem
menntamálaráðherra skipaði
árið áður.
Hugbúnaður og
kennsluefni
Hugbúnaðargerð og þýðing á
erlendum hugbúnaði óx skóla-
mönnum skiljanlega í augum og
virtist lengi illyfirstíganlegur
þröskuldur. Einkum átti það við
um grunnskólann þar sem fólk
taldi þurfa sérstakan hugbúnað
og hann á íslensku. I framhalds-
skóla var hins vegar algengara að
fengist væri við erlend fomt, for-
ritunarmál eða notendahugbúnað
ýmsan og skrifuðu allmargir
framhaldsskólakennararkennslu-
bækur og handbækur fyrir nem-
endur. Þessar bækur nýttust marg-
ar hverjar á almennum markaði,
langt út fyrir raðir skólanna. í
grunnskóla var aðstaðan hins
vegar önnur. Skyldur Náms-
gagnastofnunar varðandi náms-
gögn fy rir grunnskóla virtust lengi
vel ekki ætla að ná til hugbúnaðar
og fylgigagna með honum svo
sem handbóka og nemendaverk-
efna. Hugbúnaðarskortur var því
farinn að há allri þróun mjög
alvarlega. Árið 1988 varloksund-
irritaður samningur milli mennta-
málaráðuneytis og Reiknistofn-
unarHáskólaíslands um samstarf
á sviði hugbúnaðargerðar. Síðar
gerðist Námsgagnastofnun aðili
að þessurn samningi. 1992 dró
Reiknistofnun sig út úr þessu sam-
starfi og má segja að verkefnið
sé nú alfarið innan Námsgagna-
stofnunar þótt sérstök fjárveiting
hafi verið ætluð til þess.
Það varð samstarfi menntamála-
ráðuneytis og Reiknistofnunar til
happs að tveimur árum áður en
samstarfssamningur var undir-
skrifaður hafði verið komið á
47 - Tölvumál