Tölvumál - 01.10.1996, Page 3
Efnisyfirlit
5 Ávarp Jóhanns Gunnarssonar
við setningu ráðstefnunnar
Skólastarf og upplýsingatækni
Ritstjórnarpistill
7 í krafti upplýsinga
Guðbjörg Sigurðardóttir
9 Tölvutæknin í Grunnskólanum í
Borgarnesi
Þór Jóhannsson
13 Tölvuvæðing grunnskólanna f
Reykjavík
Þórður Kristjánsson og
Guðbjörg Andrea Jónsdóttir
16 Uppiýsingatækni í kennaramenntun
Stefnumótunarstarf Kennaraháskóla íslands
Anna Kristjánsdóttir
17 Norræna skólanetið - Óðinn
Lára Stefánsdóttir
19 Vex vilji þá vel gengur
nokkrar grundvallarreglur atferlisfræðinnar
við hönnun kennsluefnis
Guðríður Adda Ragnarsdóttir
26 Tölvur í sérkennslu fyrir nemendur
með lestrar- og skriftarörðugleika
Ólöf Guðmundsdóttir
27 Rafræn útgáfa námsgagna hjá
Námsgagnastofnun
Sveinn Kjartansson
31 Tölvuvædd upplýsingaöflun á
skólasöfnum
Kristín Björgvinsdóttur
35 Áhrif upplýsingatækni á námsgreinar
Guðmundur Ingi Jónsson
36 Verðlaunaverkefnin
Kolbrún Hjaltadóttir
Sigrún Jóhannsdóttir
Harpa Hreinsdóttir
Georg Douglas
Hvernig verðum umhverfi - veruleiki nútíma
grunnskólabarna árið 2010 þegar þau koma út í
atvinnulífið? Hvað eigum við að kenna þeim? Hvernig
eigum við að undirbúa þau?
Skólastarf og upplýsingatækni er heiti ráðstefnu
sem Skýrslutæknifélag íslands hélt í samvinnu við
Kennaraháskólann og 3F Félag tölvukennara. Að
uppistöðu til er efniviður þessa blaðs frá þessari
ráðstefnu. Hana sóttu fjölmargir kennarar, skólamenn
og aðrir áhugasamir einstaklingar um þetta málefni
og var hún mjög vel heppnuð. Tenging okkar við
umheiminn vegur hér þungt á metum. Þá er athyglis-
verð viðleitni til að nýta tæknina öllum til hagsbóta
bæði þeim sem sýna afburðagetu en ekki síður hinum
sem lakar standa að vígi. Þetta hlýtur að teljast jákvæð
þróun og merki þess að menn vilji láta tæknina þjóna
öllu samfélaginu. Það er umhugsunarefni hve ör
tækniþróunin er. Þannig er það sem nothæft er í dag
iðulega úrelt á morgun. En sá lærdómur sem við hljót-
um að draga af þessu er að haldbesta menntunin,
sem við getum fært ungum sem öldnum, hlýtur að
felast í því að gera öllum kleift að takst á við nýjungar.
Eflaust er nokkuð til í því að sú menntun sem mestu
skilar einstaklingnum, í heimi örra tæknibreytinga, er
sá skilningur sem eftir situr þegar einstakar staðreyndir
eru gleymdar.
Ef svo heldur fram sem horfir þurfum við ekki að
kvíða framtíðinni. Greinilegt er að hugur er í kennurum
og greinilegur framfaravilji. Eftir þessa ráðstefnu hef
ég sannfærst um að við getum verið bjartsýn á að hin
unga kynslóð fái víðast hvar góða og fjölbreytta innsýn
í tæknina og þá fjölbreytni sem hún býður upp á og
verði þar með undirbúin undir þá veröld sem bíður
hennar.
Ingibjörg Jónasdóttir
v ________________________________________________________)
TÖLVUMÁL
Tímarit Skýrslutæknifélag íslands
Tölvumál er vettvangur umræðna
og skoðanaskipta um upplýsinga-
tækni sem og fyrir málefni og
starfsemi Skýrslutæknifélagsins.
Óheimilt er að afrita á nokkurn
hátt efni blaðsins að hluta eða í
heild nema með leyfi viðkomandi
greinahöfunda og ritstjórnar.
Blaðið er gefið út 6 sinnum á ári í
1.100 eintökum.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja
Aðsetur:
Barónsstígur 5
101 Reykjavík
Sími: 551 8820
Bréfsími: 562 7767
Heimasíða SÍ:
http://www.skima.is/sky/
Netfang: sky@skima.is
Ritstjóri og ábm.:
Ingibjörg Jónasdóttir
Aðstoðarmenn:
Svanhildur Jóhannesdóttir
Þórður Kristjánsson
Umbrot: Svanhildur Jóhannesdóttir
Áskrift er innifalin í félagsaðild að
Skýrslutæknifélagi íslands.
Tölvumál - 3