Tölvumál - 01.10.1996, Blaðsíða 27
Rafræn útgáfa námsgagna hjá
Námsgagnastofnun
Október 1996
Eftir Svein Kjartansson
Forritaútgáfa
Námsgagnastofnunar
til dagsins í dag
I ár eru liðin 10 ár frá því að
Námsgagnastofnun gaf út sitt
fyrsta kennsluforrit. Það er ísl-
enskt, heitir Kennsluþjónninn,
eftir þá feðga Heimi Pálsson og
Berg Heimisson. Forritið var gert
fyrir BBC-tölvur og síðar PC-
tölvur og er enn í notkun. Þó hefur
orðið gífurlega hröð þróun í tölvu-
og hugbúnaði. Sem kennslutæki er
tölvan afskaplega spennandi og
aukin fjölbreytni í hugbúnaði
hvetur til aukinnar notkunar í
skólunum og á heimilunum. Ég vil
þó leggja áherslu á þá skoðun mína
að tölva og hugbúnaður korni
aldrei í staðinn fyrir bækur og
önnur kennslutæki sem til em í dag
en er góð viðbót við það sem fyrir
er.
Námsgagnastofnun hefur reynt
að gefa út forrit fyrir sem flestar
námsgreinar en stærðfræðiforrit
móðunnáls- og sérkennsluforrit
eru í meirihluta. Islenskum forrit-
um fer fjölgandi, þótt hægt gangi.
Á vegum Námsgagnastofnunar em
nú á markaði rúmlega 80 kennslu-
forrit, í ýmsum námsgreinum.
Samstarfsaðilar
Námsgagnastofnun hefur tekið
þátt í norrænu samstarfi á vegum
norrænu ráðherranefndarinnar, að
tilhlutan menntamálaráðuneytis-
ins, þar sem Norðurlöndin fimrn
hafa árlega skipst á forritum.
Langflest forrit Námsgagnastofn-
unar eiga rætur í þessu samstarfi
en útgáfan hófst 1988. Aðrir sam-
starfsaðilar um forritaútgáfu eru
naumast til, en til er það að styrkir
hafi fengist til hugbúnaðargerðar
frá félagasamtökum og fyrir-
tækjum.
■ Byrjendakennsla
■ Danska
□ Ensk
□ Önnur erlend mál
□ Heimilisfræði
□ íslenska
■ Myndmennt
m Náttúrufræði
■ Samfélagsfræði
M Sérkennsla
□ Skrift
□ Stærðfræði
■ Tónmennt
□ Ýmislegt
Tölvumál - 27