Tölvumál - 01.10.1996, Blaðsíða 17
Október 1996
Norræna skólanetið - Óðinn
Eftir Láru Stefánsdóttur
Norræna skólanetið (http://
www.nmr.dk/nsd/) var formlega
tekið í notkun af forsætisráðherr-
um Norðurlanda á þingi Norður-
landaráðs í Stokkhólmi í mars
1994. Markmiðið með netinu er að
gefa norrænum skólum betra tæki-
færi til innbyrðis samskipta og
auðvelda aðgang að upplýsinga-
kerfum allra landanna.
Norræna skólanetið er ekki
áþreifanlegt net heldur samstarf
milli Norðurlandanna á Interneti.
Þannig er sett upp heimasíða
(http://www.nmr.dk/nsd/) og við
hana eru tengdar heimasíður skóla-
neta Norðurlandanna. Hvert land-
anna hefur síðan sitt eigið net sem
þau byggja upp á eigin ábyrgð.
Fulltrúar landanna hittast á sam-
ráðsfundum í þremur nefndum.
Þær eru tækninefnd sem hefur haft
það starf að tryggja að norrænir
bókstafir fari eðlilega milli land-
anna, upplýsinganefnd sem fjallar
um innihald og útlit vefsíðna skóla-
netsins og kennslufræðinefnd sem
fjallar um verkefni fyrir nemendur
á netinu út frá kennslufræðilegu
sjónarmiði.
I upphafi var tækninefndin
virkust á meðan verið var að koma
samskiptunum í eðlilegt horf og fá
öll löndin til að tryggja móttöku
Norrænna bókstafa. Þetta hefur
tekist utan þess að enn eru nokkur
vandamál að senda samíska bók-
stafi ásamt bókstöfum sem hin
Norðurlöndin nota. Þetta stafar
meðal annars af því að samískan
notar ekki sama stafasett og hin
löndin. Danir hafa einnig nýtt First
Class ráðstefnukerfi í samskiptum
og það fomt getur ekki tryggt norr-
æna stafi milli landanna. Aðrir
hafa nýtt IS08859 eða Quoted
printable (QP) staðla
sem gera það að
verkum að bókstaf-
irnir birtast rétt milli
landanna. Hér á landi
er QP ekki notað en
hinsvegar víðast
möguleiki á að taka á
móti bréfum af þeim
staðli.
Norðurlöndin
byggja upp skólanet
með ólíkum hætti. Hér
verður stiklað á stóru
um stöðu og uppbygg-
ingu skólaneta í þess-
um löndum.
Framkvæmdaáætl-
un álensku lands-
stjórnarinnar frá því í
nóvember fjallar um upplýs-
ingatækni og er uppbygging á
þessu sviði í gangi. Þar sem
Alandseyjar eru litlar, er fyrirhug-
að að hafa net sem þjónar stjórn-
sýslu, skólum, atvinnulífi og öðr-
um sviðum þjóðfélagsins. Alenska
skólanetið (http://www.atc.
aland.fi/skolnet/skolnet.html) er
byggt upp af álensku tæknimið-
stöðinni (http://www.atc.aland.fi)
sem hefur yfirumsjón með þróun
og samræmingu tölvusamskipta
bæði í skólum og atvinnulífi eyj-
anna.
I Danmörku hafa skólar átt kost
á samskiptum í gegnum þjónustu-
veitu danska menntamálaráðu-
neytisins (http://www.uvm.dk/) í
um 10 ár. Þar hefur einnig verið
lögð áhersla á aðgengi að gagna-
söfnum fyrir nemendur svo sem að
POLTXT með greinum úr dönsk-
Tölvumál - 17