Tölvumál - 01.10.1996, Blaðsíða 30
Október 1996
byggingu sérþekkingar innan
Námsgagnastofnunar.
- Aukin sérþekking Námsgagna-
stofnunar á hönnun, kröfulýs-
ingum og mati hugbúnaðar.
- Hlutverk Námsgagnastofnunar
fyrst og fremst verkefnisstjóm-
un en kalli til sín fagfólk á
hverju stigi, höfunda og for-
ritara.
- Bjóða út hönnun og forritun.
- Kanna hvort fyrirtæki kosti
gerð hugbúnaðar fyrir skóla.
- Við námsgagnagerð verður að
nýta kosti margmiðlunar til að
efla menntun og auka fjöl-
breytni í skólastarfi.
- Kröfur um kennsluefni munu
aukast.
- Mikil þörf á að myndarlegt
átak verði gert í útgáfu kennslu-
forrita, tölvutengds námsefnis
og margmiðlunardiska á ísl-
ensku fyrir skóla því íslend-
ingar verða sjálfir að búa til
þau námsgögn sem snerta ísl-
enska tungu, sögu og náttúru.
Þetta á jafnt við um kennslu-
bækur sem kennsluhugbúnað,
handbækur og orðabækur.
- Námsgögn munu breytast. Að-
gangur að ýmiss konar sér-
hæfðum forritum, kennslufor-
ritum, margmiðlunarefni og
Interneti tekur að nokkru leyti
við af prentuðum upplýsingum.
- Nýta upplýsingatæknina til að
spara útgáfukostnað vegna
námsefnis - fyrir litla hópa og
efni sem oft þarf að endurnýja.
- Auk þess verður ráðuneytið
(menntamála) að verja sérstöku
fjármagni til málaflokksins
næstu árin með því m.a. að efla
þá fjárlagaliði, sem nú þegar
eru ætlaðir til upplýsingatækni
eða nýjunga í skólastarfi, liði
sem ætlaðir eru í þróunarstarf.
Lokaorð
Eins og fram hefur komið hér
að framan hefur Námsgagna-
stofnun þegar gefið út margvíslegt
efni í rafrænu formi og ný verkefni
eru í vinnslu eða í undirbúningi.
Stofnunin hefur tjáð sig tilbúna til
að takast á við þessi metnaðarfullu
verkefni, en árlegar sérfjárveit-
ingar til hugbúnaðargerðar duga æ
skemmra. Augljóst er að ekki
verður mögulegt að sinna þessu af
nokkru gagni nema til komi aukið
fjármagn, svo spurningin er -
hvaðan eiga peningamir að koma?
Sveinn Kjartcinsson er
ritstjóri hjá Náms-
gagnastofnun
Júmbó
Skrá Glímur Hjálp
Lestrarglúnur
30 - Tölvumál