Tölvumál - 01.10.1996, Blaðsíða 9
Október 1996
Tölvutæknin í Grunnskólanum í
Borgarnesi
Eftir Þór Jóharmsson
í grein þessari er ætlunin að
reyna að gefa nokkra hugmynd um
hvernig þróun tölvumála hefur
verið í Grunnskólanum í Borgar-
nesi síðastliðin 10 ár eða svo.
Hvers konar verkefni það hefur
verið fyrir kennarahópinn að finna
þessari tækni stað í skólastarfinu.
Námsgreinintölvur
í Grunnskólanum í Borgarnesi
hafa verið til tölvur frá árinu 1985.
Keypt var ein tölva í byrjun og
notkunin einskorðaðist fyrstu tvö
til þrjú árin við örfáa kennara sem
unnu ýmis kennslugögn í rit-
vinnslu, aðallega próf.
Sú jákvæða reynsla sem af
þessu hlaust átti síðan stóran þátt
í því að ráðist var í kaup á 10 PC-
tölvum til nota fyrir eldri hemend-
ur. Um sama leyti tölvuvæddist
ritari skólans og skömmu síðar
fékk sérkennslan eina tölvu til
afnota.
Tölvukennslan var sérstök
námsgrein. Kennarinn var tölvu-
kennarinn í skólanum með stóru T-
i og það sem hann var að gera
tengdist engri annarri námsgrein.
Kennt var á DOS-stýrikerfið,
forritunarmálið Basic, kynnt var
ritvinnsla og töflureiknir var
kynntur. Engar umræður fóru fram
um innihald kennslunnar frekar en
smíðakennarinn eða líffræðikenn-
arinn ræddu innihald sinnar
kennslu. Tölvukennarinn hélt rit-
vinnslunámskeið fyrir kennarana
og hafði það þær afleiðingar að
sífellt stærri hópur kennara fór að
nýta sér þessa tækni til verkefna-
gerðar o.fl.
Viðhorfsbreyting
veldur „árekstrum“
Það er síðan árið 1989 sem
grundvallar hugarfarsbreyting
byrjar að eiga sér stað gagnvart
skólastarfinu í heild sinni þegar
stór hluti kennarahópsins tekur
þátt í svokölluðu „Starfsleikni-
námi“.
Frli. á nœstu sfðu
Frli. afjyrri síðu
Erlent samstarf
Mikilvægt er að íslendingar
taki virkan þátt í erlendu samstarfi
í notkun upplýsingatækni á sviði
menntamála. Þekkingu sem aflað
er í slíku samstarfi þarf að miðla
markvisst í menntakerfinu og nýta
upplýsingatækni til að auka
hagræði í erlendu samstarfi.
Rannsóknir og þróun
Efldar verði grunn- og hagnýtar
rannsóknir í nánu samstarfi við
fyrirtæki og stofnanir. Stuðlað
verði að rannsóknum á möguleik-
um upplýsingatækni í kennslu og
áhrifum hennar á menntun, menn-
ingu og siðferði.
Styðja þarf þá aðila sem vinna
að staðlamálum og stuðla að því
hægt verði að nota íslenskt mál
hnökralaust á tölvubúnaði sem
notaður er á Islandi.
Framkvæmd
stefnunnar
Stefnt er að því að flestar til-
lögur í ritinu verði komnar í fram-
kvæmd eða á framkvæmdastig árið
1999. Gerðar verða árlegar fram-
kvæmdaáætlanir og vinnuhópar
skipaðir um umfangsmestu til-
lögurnar.
Fjármagn takmarkar fram-
kvæmdahraða stærri verkefna og
er því mikilvægt að nýta vel það
fé sem varið er til upplýsingamála.
Menntamálaráðuneyti hyggst efla
þá fjárlagaliði sem tengdir eru
upplýsingatækni og auglýsa reglu-
bundið styrki til verkefna á þessu
sviði.
Guðbjörg Sigurðar-
dóttir er deildarstjóri
tölvudeildar Ríkis-
spítala
Tölvumál - 9