Tölvumál - 01.10.1996, Blaðsíða 13
Október 1996
Tölvuvæðing grunnskólanna í Reykjavík
Eftir Þórð Kristjánsson og
Guðbjörgu Andreu Jónsdóttur
Hér verður í stuttu málifjallað
um það hvernig yfirvöld borg-
arinnar hafa búið að grunnskól-
unum í Reykjavík hvað varðar
tölvukost. Því verður lýst hvaða
áherslur voru lagðar og út frá
hvaða forsendum var gengið.
Þá verður skýrtfrá því hvaða
hugmyndir frœðsluyfir\>öld hafa
nú um þessi mál með tilliti til
breyttra aðstæðna þegar allur
rekstur grunnskólans er kominn til
sveitarfélaganna.
Árið 1990 var gerð könnun á
tölvueign allra skóla á landinu.
Könnunin var framkvæmd af þá-
verandi fræðsluskrifstofum. Þar
kom í ljós að grunnskólarnir í
Reykjavík stóðu nokkuð aftarlega
hvað varðaði tölvukost. Vélarnar
voru fáar og gamlar. Þó kom fram
að víða var unnið athyglisvert starf
með nemendum þar sem tölvur
voru notaðar, en greinilegt var að
tækjaskortur háði kennurum.
Þá má geta þess að víða á
landsbyggðinni höfðu skólarnir
tengst Islenska Menntanetinu, en
slíkt var næsta fátítt í Reykjavík.
Á árunum 1992 og 1993 varð
breyting á þessum málum er borg-
aryfirvöld keyptu til skólanna á
annað hundrað vélar í tveimur
áföngum. Þá var og sú stefna mót-
uð að setja upp nettengdar tölvu-
stofur í skólum með unglingadeild-
um.
Á þessum tíma var einnig gerð-
ur samningur um tengingu allra
skólanna við Islenska menntanetið.
Samfara þessum tölvukaupum
var settur á laggirnar samstarfs-
hópur á vegum borgarinnar,
Fræðsluskrifstofunnar, Kennara-
háskólans, tölvukennara og ísl-
enska menntanetsins, er skyldi gera
tillögur að hvernig kennurum
nýttist þessi vélakostur og skipu-
leggja námskeið fyrir þá.
Segja má að með þessu hafi
verið lagður ákveðinn grunnur að
tölvueign skólanna. Síðustu ár
hefur endurnýjunin því miður
gengið heldur hægt fyrir sig en þó
hefur miðað í rétta átt og nefna má
að nokkuð átak hefur verið gert í
að tækjavæða ritara og skóla-
stjómendur.
Þessi hægagangur orsakast þó
ekki af áhugaleysi heldur fremur
af því að á árinu 1994 var tekin sú
ákvörðun að nettengja saman alla
skólana. Samfara því hefur verið
unnið að því að koma upp
staðarnetum í skólunum. Þessari
framkvæmd er ekki enn að fullu
lokið og hún hefur verið dýr og því
dregið úr öðrum fjárfestingum á
sviði tölvumála.
Víðnetið eða Skólanetið er
svona uppbyggt (sjá mynd):
Allir skólarnir eru tengdir
saman innbyrðis og við Skóla-
skiifstofu - Fræðslumiðstöð og við
Ráðhús Reykjavíkur, Skýrr og
tölvudeild borgarverkfræðings.
Frh. á nœstu síðu
Frh. affyrri síðu
myndum af nemendum og vinna
þær síðan áfram í tölvunum.
Einnig er ætlunin að útfæra
hugmyndir um notkun töflureikna
á miðstiginu til að ná ýmsum
markmiðum í stærðfræði.
I vetur mun enn ein nýjungin
líta dagsins ljós. Fyrirtækið Borg-
arplast átti stórafmæli á árinu og
gaf fyrirtækið skólanum eitt bekkj-
arsett af svo kölluðum Ritþjálfa.
Svo virðist sem þetta tæki geti nýst
vel í allskyns textavinnu og til
þjálfunar í fingrasetningu. Við
hugsum okkur Ritþjálfann á mið-
stiginu, nánar til tekið í 5. og 6.
bekk þar sem stefna okkar kveður
á um að fingrasetning eigi að
lærast.
Á þessari yfirferð sést að tölvu-
flóran í Grunnskólanum í Borgar-
nesi er býsna fjölbreytt. BBC-
tölvur og einn Arkimedes á neðsta
stiginu, Ritþjálfinn í 5. og 6. bekk
og svo Macintosh margmiðlunar-
tölvur í tölvuveri. Með þennan
tækjakost munu kennarnir í Borg-
amesi í sameiningu halda áfram að
læra á tæknina, kynna sér nýjar
leiðir og síðast-en ekki síst velta
því fyrir sér hvernig þeir geta sem
best undirbúið nemendurna fyrir
það hlutskipti að vera nýtir borg-
arar upplýsingaþjóðfélagsins.
Þór Jóhannsson er
kennari við Grunn-
skólann í Borgarnesi
Tölvumál - 13