Tölvumál - 01.10.1996, Qupperneq 15
Október 1996
ráðuneytisins um notkun upplýs-
ingatækni í skólastarfi kemur að
góðum notum í því starfi sem
framundan er við að móta stefnu
Fræðslumiðstöðvar. Þar eru fjöl-
mörg atriði sem vert er að huga
að, en samt sem áður er mikilvægt
að Fræðslumiðstöð og grunnskólar
Reykjavíkur móti sína eigin stefnu
og taki til sérstakrar athugunar
hvernig nýta megi upplýsinga-
tæknina enn frekar en nú er í
kennslu og í stjórnun. Tölvunet
grunnskólanna hefur þróast út frá
notkun skólasafnanna á skrán-
ingarkerfi Skýrr og einnig hafa
skólastjórnendur nýverið fengið
aðgang að bókhaldi Reykjavfkur-
borgar og hafa því betra yfirlit yfir
rekstrarútgjöld skólanna en áður.
Notkunin er því nokkur í stjórn-
uninni og raunar má segja að nú
þegar sé farið að leggja línurnar
um töluvert aukna notkun á tölvu-
netinu í stjórnunarstarfinu.
Menntamálaráðuneytið hefur
verið að undirbúa gagnabankann
Völvu um skólakerfíð og sá gagna-
banki á vafalaust eftir að nýtast vel
til að auka aðgengi að upplýs-
ingum um skólastarf á Islandi og
sem tæki til að auka hagkvæmni í
rekstri. Til þess að nota þennan
gagnabanka er nauðsynlegt að
skólarnir hafi aðgang að Inter-
netinu og mun það verða skoðað
nú á næstu vikum hvort víðnet
skólanna sé nægilega öflugt til að
þessi notkun geti gengið snurðu-
laust. Jafnframt er gert ráð fyrir
að á Fræðslumiðstöð verði byggð-
ur upp sérstakur gagnabanki fyrir
grunnskóla Reykjavíkur. Væntan-
lega munu skólarnir, þegar fram
líða stundir, hafa aðgang að þeim
upplýsingabanka um víðnetið.
Um tölvukennsluna sem slíka
höfum við enn sem komið er minni
upplýsingar, en það er sá þáttur
sem við teljum brýnt að leggja
áherslu á. I því sambandi tökum
við undir þær skoðanir sem fram
koma í stefnu menntamálaráðu-
neytisins um mikilvægi þess:
1) að áhersla verði lögð á að efla
gerð íslensks kennsluhugbún-
aðar með það fyrir augum að
tölvunotkun verði almenn í
öllum námsgreinum;
2) að efla endurmenntun og
kennslufræðilega ráðgjöf til
kennara;
3) að huga sérstaklega að endur-
menntun bókasafnsfræðinga og
safnakennara til að skólasöfnin
geti gegnt hlutverki miðstöðvar
upplýsingatækni. Hjá grunn-
skólum Reykjavíkur ætti
Skólasafnamiðstöð að geta
gegnt lykilhlutverki og eru hug-
myndir þar að lútandi að kom-
ast á umræðustig.
Þar sem stutt er síðan Fræðslu-
miðstöð tók til starfa og skólarnir
rétt að hefja störf má ljóst vera að
ekki hefur gefist tími til að kynna
starfsmönnum viðhorf tölvukenn-
ara grunnskólanna eða annarra
þeirra aðila sem eru að vinna að
stefnumótun um notkun upplýs-
ingatækni í skólastarfi. Nú í haust
og vetur verður því leitað eftir
viðhorfum þessara aðila og í sam-
vinnu við þá mótuð stefna
Fræðslumiðstöðvar og grunn-
skólanna í Reykjavík.
Þórður Kristjánsson, er
skólastjóri Seljaskóla og
fyrrverandi rekstrar-
stjóri Skólaskrifstofu
Reykjavíkur
Guðbjörg Andrea Jóns-
dóttir er forstöðumaður
þróunarsviðs Frœðslu-
miðstöðvar Reykjavíkur
Það hefur löngum tíðkast
hjá Kennaraháskólanum að
senda kennaranema í svo-
kallaða skólakynningu og
æfingakennslu. í slíkum heim-
sóknum lenda kennaranem-
arnir gjarnan í ýmsum uppá-
komum, enda veigra nemendur
sér lítt við að hrekkja þá.
Fyrir nokkrum árum fóru
þrír karlkyns kennaranemar í
skólaheimsókn í Vogaskóla í
þeim tilgangi einum að tölta
rnilli bekkja og sjá hvernig
starfíð gengi fyrir sig þar á bæ.
Nemarnir þrír voru að sjálf-
sögðu beðnir að segja til nafns
í hverri stofu, sem þeir og
gerðu. Enn áðurnefndra nema
hefur löngum verið stoltur af
nafni sínu, kannski mest-
megnis vegna þess hversu
sjaldgæft það er. í einum
bekknum hefur þessi kennara-
nemi upp raust sína og segist
heita Stígur. Snýr þá einn
nemandi sér að honum og segir
glottandi:
„Kallaðu mig bara
Suðurlandsbraut.“
Er kennai'i í fjölbrautaskóla
einum kom inn í stofuna sína
til kennslu var búið að krota á
töfluna:
„Kennarinn er dauður."
Hann lét sér ekki bregða
heldur tók sér krít í hönd og
bætti við:
„En kennir samt.“
Það vafðist fyrir nemanda
nokkrum að tíðbeygja sögnina
„að synda“.
Hann komst klakklaust frá
nútíð sagnarinnar, en þátíðin
var „syndgaði“.
Tölvumál - 15