Tölvumál - 01.10.1996, Qupperneq 19
Október 1996
Vex vilji þá vel gengur
nokkrar grundvallarreglur atferlisfræðlnnar við hönnun kennsluefnis
Eftir Guðríði Öddu Ragnarsdóttur
Útdráttur
Kynntar verða nokkrar grundvallarreglur atferlisfrœðinnar við
hönnun kennsluefnis. Fœrð verða rök að því að kennsluforrit sem
lúta sh'kum reglum auki líkur á að nemandinn hafi ætíð námsefni við
hæfi. Einnig verður hugað að breytingum á einkunnakerfinu sem hœgt
vœri að gera í kjölfarið.
Leitarorð: Computer mediated teaching, teaching machines,
behavior analysis, instructional design, behavioral objectives,
anticidents, shaping, fading, response contingent feedback .
Hvernig getum við
kennt betur?
Ég óska Skýrslutæknifélaginu
og undirbúningsnefndinni til
hamingju með ráðstefnuna og
þakka fyrir að ég fékk tækifæri til
að fjalla hér um helsta hugðarefni
mitt um ævina sem varðar spurn-
inguna hvernig við getum kennt
betur. Leit að svörum réði því upp-
haflega að ég gerðist kennari, fór
seinna í sálfræðinám og lagði
stund á atferlisrannsóknir.
Kennsla, sálfræði, atferlisrann-
sóknir, hvað skyldu þessi svið eiga
sameiginlegt? Jú, atferlisfræði er
kennslu- og stjórntækni. Viðfangs-
efni hennar lúta að hegðun og
breytingum á henni. Hvort við
köllum íhlutun okkar til að stýra
hegðun þjálfun, tamningu, með-
ferð, uppeldi, auglýsingar, áróður,
ráðgjöf, kennslu, stjórnun eða bara
samskipti, ræðst venjulega af efni
og samhenginu hverju sinni.
Hversdagsleg reynsla segir
okkur að hegðun sé breytileg eftir
aðstæðum. Atferlisvísindin segja
okkur auk þess að, eins og annað í
náttúrunni, lúti hegðun tilteknum
reglum. Atferlisfræðin fjallar um
þessar reglur og hvernig við getum
fært okkur þær í nyt við kennslu
1. mynd Kennsluvél frá 1958
og stjórnun. Það getum við
vissulega gert vélarlaust eins og
við getum vaskað upp án þvotta-
vélar. Vélarnar geta hins vegar létt
okkur störfin, tekið af okkur
rútínuvinnu og gefið okkur tóm til
að hlusta á nemendur okkar, gleðj-
ast með þeim og fylgjast með þeim
vinna. Með vélum er hægt að stýra
ýmsum áhrifaþáttum eða breytum
af mikilli nákvæmni. Uppþvotta-
vélar stýra hitastigi og vatnsmagni
og hafa áhrif á þvottagæðin.
Kennsluvélar stýra vinnusemi
nemenda og hafa áhrif á námsár-
angur þeirra.
Eitt afbrigði afforverum tölvunnar sem smíðuð var aý'IBM til að
kenna börnum réttritun og reikning (Ur Phi Delta Kappan 1986,
68, 2, 106.).
Tölvumál - 19