Tölvumál - 01.10.1996, Síða 24
Október 1996
nemandinn að leysa 100 atriði og
það gefi 10 í einkunn. Einkunnin
10 þýðir að nemandinn hafi lokið
tilteknu kennsluforriti en 5 þýðir
að hann hafi lokið helmingnum af
því. Ljúki nemandinn öllum for-
ritunum fær hann 10 í hvert skipti,
eða 5 sinnum. Nemandinn keyrir
kennsluforritið áfram og stýrir
hraðanum sjálfur. Hætti hann að
vinna stöðvast kennsluforritið og
þar með framvindan á námsefninu.
Ráði nemandi yfir færni sem
krafist er í fyrstu þremur forrit-
unum og fyrri hluta þess fjórða eru
einkunnir hans í námsgreininni 10
+ 10+ 10 + 5 og við vitum hvað
hann kann. Hvenær nemandi fær
Villudreifing í góðu kennsluforriti
á að vera jöfn og lág og líkur á
villum eiga að vera þær sömu hvar
sem nemandinn er staddur í því.
Hvað viljum við sjá að
loknu dagsverki?
Við hönnun kennsluforrits
reynum við að koma í veg fyrir að
nemandinn geri villur. Til þess
beitum við m.a. AHA+ reglunni.
Með henni getum við fylgt eftir
þeim markvissa ásetningi að sem
flestum gangi vel en ekki aðeins
um fjórðungi nemenda. Við getum
líka fylgt eftir þeim markvissa
6. mynd Breytingar á fœrni nemenda
Skematísk mynd
Flestirnemendurná markfœrni þarsem vinna nemandans íhverjum
ramma forritsins er einskonar próf
10 í einkunn er því í raun spurn-
ing um tíma. Þeir sem eru fljótir
að ljúka við efnið eru fyrri til að
fá 10 en hinir og fá það væntanlega
oftar.
Það er bæði flókið og tímafrekt
að hanna forrit sem KENNIR vel.
Það er alveg sérstaklega seinlegt
að skrifa kennsluforrit þar sem
mikið er af vísbendingum og við-
gjöf, þ.e. kennsluforrit fyrir byrj-
endur. Það er óhætt að miða við
að hönnun á góðu kennsluforriti og
reynsluprófanir á því taki um 100
klst. fyrir efni sem tekur nemand-
ann um klukkustund að vinna.
ásetningi að leyfa ekki öðrum 25-
30 % að detta út og síðan helmingi
allra nemendanna að dóla við að
leysa sum viðfangsefni og önnur
ekki. Með því að beita í kennslunni
þeim verkfærum sem tiltæk og
þekkt eru, þar á meðal AHA+
reglunni, þá fáum við fleiri nem-
endur í þann hópinn sem mælist
efstur á kvarðanum og færri í hina
hópana sem neðar mældust.
Kennsluleikni okkar eykst einn-
ig með æfingunni sem þýðir að
kennslumarkmiðin nást á skemmri
tíma en áður var. Hverjum og
einum nemanda mun fara fram og
sumum mjög mikið. Kennsluforrit
sem hönnuð eru samkvæmt
kennslutækni atferlisfræðinnar
gagnast jafnt í staðkennslu, fjar-
kennslu og sjálfsnámi fyrir nem-
endur á öllum aldri. Mikil kennslu-
reynsla og áratuga rannsóknir á
þessari kennslutækni sýna einnig
mælanlegan og varanlegan árang-
ur. Ef við leggjum niður fyrir
okkur hvað við viljum sjá að loknu
dagsverki hlýtur það meðal annars
að vera að nemendurnir kunni það
sem átti að kenna þeim.
Samantekt
Hér hefur verið fjallað um
kennslutækni atferlisfræðinnar og
hvernig hún nýtist. Sérstaklega
var fjallað um gagnsemi hennar
við hönnun kennsluforrita. I því
sambandi var minnst á athuganir
á upphafsfærni, og mikilvægi
kennslumarkmiða, ítarlegra fyrir-
mæla, tíðra vísbendinga og við-
gjafar. Færð voru rök fyrir því,
að væri vinnuferlinu stýrt
nákvæmlega með AHA+ reglunni
og rökrænni röðun verkeining-
anna, væri líklegt að nemandinn
hefði alltaf viðfangsefni við hæfi.
Einnig var því lauslega lýst
hvernig breyttar forsendur gera
okkur kleift að breyta einkunna-
kerfinu.
Hugmyndir að nánara lesefni
eru birtar á næstu síðu.
GuðríðurAdda Ragnars-
dóttir er atferlisfrœð-
ingur
24 - Tölvumál