Tölvumál


Tölvumál - 01.10.1996, Page 29

Tölvumál - 01.10.1996, Page 29
Október 1996 Norrœnn tungumáladiskur Sýnishorn bókxnennta á færeysku, samísku og grænlensku verða einn- ig á diskinum og óskað hefur verið eftir að íslendingar sjái um kynn- ingu fombókmennta. Hérlendis verður lögð áhersla á að diskurinn nýtist í kynningu allra grannmálanna og bókmennta grannþjóðanna og því sé ekki ástæða til að þýða danska, norska eða sænska efnið. Norrænn diskur til tungumálakennslu Fimm norræn skólabókaforlög hafa tekið sig saman um að fram- leiða margmiðlunardisk til tungu- málakennslu. Ákveðið var að byrja á að hanna disk til enskukennslu en meiningin er að hægt verði að nota sömu undirstöðu til að búa til diska til kennslu í öðrum tungu- málum. Diskinn á að vera hægt að nota sem ítarefni með hvaða grunnefni sem er og verður einkum ætlaður 14-16 ára nemendum. Áhersla er lögð á að efnið í heild verði áhugavekjandi, fallegt, hafi húmor, sé ekki of flókið og nýtist nemendum með mismunandi getu. Alfræði íslenskrar tungu Markmiðið er að gefa málnot- endum á öllum aldri, allt frá grunn- skóla til háskóla, tækifæri til þess að leita fróðleiks af sem allra flestu tagi um tunguna. Viðfangsefni verksins verður íslensk tunga í víðasta skilningi. Framtíðarhlutverk Námsgagnastofnunar Snemma á sl. vori gaf mennta- málaráðuneytið út skýrslu „I krafti upplýsinga“. Þar kemur fram mjög metnaðarfull stefna ráðuneytisins í upplýsingatækni og hlutverk Námsgagnastofnunar er þar skil- greint sem „lykilhlutverk“ í öflun hugbúnaðar fyrir grunn- og fram- haldsskóla - og mikil þörf á að gera myndarlegt átak í útgáfu kennslu- forrita. Hér er tæpt á nokkrum atriðum úr skýrslunni þar sem Námsgagna- stofnunar er getið og hvers vænst er af henni: - Námsgagnastofnun þarf að gegna lykilhlutverki í öflun hugbúnaðar fyrir grunn- og framhaldsskóla. í því felst: - Verkefnastjórnun í gerð kennsluhugbúnaðar. - Grófhönnun kennsluhugbún- aðar. - Gerð kröfu- og útboðslýsinga. - Eftirlit með verkefnum. - Mat á kennsluhugbúnaði. - Mat á umsóknum um styrki til þróunar á kennsluhugbúnaði. - Dreifing til menntastofnana. - Krafa um breytta áherslu í upp- Tölvumál - 29

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.