Áramót - 01.03.1906, Side 47
5i
þeim, er þá á aö halda; séra N. S. Thorlaksson studdi
þá tillögu, og var hún samþvkt.
Þá .lag'Si Jón J. Bíldfell fram svohljóöandi skýrslu
frá nefnd þeirri, sem sett var á síöasta kirkjuþingi í
málinu um fastan þingstaö :
Háttvirti forseti!
Vér, sem kosnir vorum á síSasta kirkjuþingi til þess
að íhuga málið um fastan þingstað, leyfum oss aS leggja
fram eftirfylgjandi álit:
Eftir all-ítarlega umhugsun um mál þetta, og sam-
kvæmt vilja mikils meiri hluta allra safnaSa kirkjufélagsins,
ráðum vér kirkjufélaginu til þess að halda áfram stefnu
þeirri, sem þaS hefir haft, og sem það nú hefir í þessu
máli, sem vér álítum uppbyggilegasta og blessunarrikasta.
Oss dylst ekki, að það er erfiSleikum bundiS, fyrir fátæka
og fámenna söfnuSi, að taka á móti kirkjuþingunum, jafn-
umfangsmikil og þau eru nú orðin, en væntanlega fara þeir
erfiðleikar minkandi eftir því, sem söfnuSurnir stækka og
styrkjast. VTér fáum ei fcetur séð, en það sé stór hagur
fyrir söfnuSina að fá kirkjuþingin til sín, og ef til vill
hvaS mest fyrir þá, sem mest leggja i sölurnar, því eftir
því sem menn leggja meira í sölurnar fyrir eitthvert mál-
efni, því kærara verður það málefni þeim. Vér erum mót-
mæltir þessari breyting líka fyrir það, aS vér álíturn það
óhyggilegt og óheppilegt að binda framkvæmdir kirkjufélags
mála við einn sérstakan söfnuð, hvaða söfnuSur sem þaS
svo væri. Hver og einn söfnuöur í kirkjufélaginu þarf að
finna til þess, að réttur hans til hluttöku í öllum fram-
kvæmdum kirkjumála vorra sé óskertur, og svo að eins get-
ur þaS orðiö, að kirkjuþingin séu hér eftir, sem hingaö til,
haldin hjá sem allra flestum söfnuöum kirkjufélagsins.
Winnipeg, 19. Júní 1906.
Jón J. Bíldfell, H. S. Bardal.