Áramót - 01.03.1906, Blaðsíða 76
8o
1. —Samkvæmt ákveöinni ósk séra Odds V. Gíslasonar
tekur kirkjuþingiö gilda úrsögn hans úr kirkjufélaginu.
2. —Kirkjuþingiö viðurkennir að ónærgætnislega
var breytt viö séra Odd á kirkjuþinginu í Argyle 1903,
og biður fyrirgefningar á því.
3. —Kirkjuþingið vottar séra Oddi samhrygð sína út af
þeirri sorg, sem hann hefir fyrir fáum dögum orðið fyrir
við hið sviplega fráfall tengdasonar síns.
4-—Kirkjuþingið biður séra Odd að þiggja sem gjöf
frá sér $60.35. °» óskar honum blessunar drottins og fag-
urs og friðsæls æfikvölds.
Á kirkjuþingi að Mountain, N.D., 22. Júní 1906.
N. Stgr. Thorlaksson, Friðrik Hallgrímsson,
Loptur Jörundsson, B. Walterson, Stefán Eyjólfsson.
Var nefndarálitið samþykt, og síðan tekin sam-
skot á kirkjuþinginu að upphæð $60.35, til þess að senda
sera Oddi.
Næst var rætt um styrkveitingar handa guðfræðis-
nemendum.
Séra Jón Bjarnason gjörði þá tillögu, að styrkur
sá, sem nemendum við prestaskólann í Chicago hefir
hingað til verið veittur, sé skoðaður sem gjöf, en ekki
sem lán; samþykt.
Séra Fr. J. Bergmann lagði til, að slíkttr styrkur,
sem framvegis verði veittur, sé skoðaður sem vaxta-
laust lán; samþykt.
Jón J. Vopni lagði til, að forseta kirkjufélagsins
sé falið að afgreiða það, sem kynni að hafa gleymst á
þessu þingi. Samþykt.
Þá var samþykt að forseti skyldi tilnefna þrjá
menn í nefnd til þess að gjöra ti.llögur um það, hverjir