Áramót - 01.03.1906, Blaðsíða 79
83
Friðjón Friðriksson lagði til, að skrifara væri gold-
in 25 dollara laun fyrir starfa sinn; samþykt.
Séra Björn B. Jdnsson skýrði frá, að hann hefði
farið á síðasta þing General Councils í Millwaukee sem
fraternal delegate, samkvæmt því, sem honum var fa’ið
á síðasta kirkjuþingi, og bar kirkjufélaginu mjög hlýja
kveðju frá því þingi.
Þá bar skrifari fram svohljóðandi tillögu til þings-
ályktunar:
„Vér, sem setið höfum á þessu kirkjuþingi, vottum
hérmeð Víkur-söfnuði innilegt þakklæti vort fyrir alla
þá gestrisni er oss hefir verið sýnd hér, og bæði þeim
söfnuði og nágrannasöfnuðunum fyrir hið hlýja bróður-
þel er vér höfum átt að mæta. Oss munu lengi í minni
þessir ánægjulegu dagar, sem vér höfum dvalið hér, og
þegar vér erum nú að fara héðan, biðjum vér drottinn
að blessa þessa kæru söfnuði og prest þeirra, og gefa
náð sína til þess, að hin kirkjulega starfsemi þeirra
megi bæði nú og á ókomnum tíma bera sem blessunar-
ríkasta og ánægjulegasta ávexti, hans heilaga nafni til
dýrðar.“ Tillagan var samþykt með því að aLlir stóðu á
fætur.
Þvínæst ávarpaði Elis Thorwaldson þingið með
nokkrum orðum í nafni Víkur-safnaðar.
Að því búnu voru sungin 2 vers af sálminum nr.
420 og séra N. S. Thorlaksson flutti bæn.
Sagði forseti svo þinginu slitið.
^000*