Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1981, Qupperneq 5
PAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981.
5
„Heimsæki og
heilsa uppá
sem flesta”
—segir sr. GyKfi Jónsson en hann segisf
jaf nf ramt vera andvígur
prestkosningum
„Það telst sjálfsagt til áróðurs ef ég
segi að kirkjusókn í Hornafirði sé
vaxandi en þannig er það nú samt.
Aukin þátttaka sóknarbarna í
guðsþjónustunni hefur þar sitt aðsegja
ai auk þess hef ég að nokkru tekið upp
léttari messusöng,” sagði sr. Gylfi
Jónsson í samtali við Visi en hann
sækir um Glerárprestakall ásamt sr.
Pálma Matthíassyni. Undir það presta-
kall heyra Lögmannshlíðarsókn og
Miðgarðasókn í Grímsey.
Gylfi er fæddur og upþalinn á
Akureyri, sonur hjónanna Petronellu
Pétursdóttur og Jóns Helgasonar,
skósmiðs og verkstjóra hjá skógerð
Iðunnar. Eiginkona Gylfa er Þorgerður
Sigurðardóttir Guðmundssonar, ný-
kjörins vígslubiskups á Grenjaðarstað.
Móðir hennar er Aðalbjörg Halldórs-
dóttir. Gylfi og Þorgerður eiga 8 ára
gamlan son, Jón Gunnar.
Gylfi lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1%5.
Gylfi Jónsson er fæddur og uppalinn á
Akureyri.
með kirkjuskóla fyrir 4—5 ára börn og
síðan sunnudagaskóla fyrir eldri
börnin, bæði í Bjarnarnesi og Hafnar-
kirkju. Þá er líflegt æskulýðsstarf i
gangi á Höfn.
Lótt lögviðmessu
Hinn þátturinn er aukin þátttaka
sóknarbarna í guðsþjónustum og
safnaðarstarfi, sem ég hef gert tilraun
með á Hornafirði með góðum árangri.
Hafa leikmenn þá tekið þátt i flutningi
messunnar og jafnframt hafa verið
sungnir léttir söngvar ásamt okkar
ágætu hefðbundnu sálmum. Þetta
hefur leitt til aukinnar kirkjusóknar.
Ég get nefnt Hafnarkirkju sem dæmi,
en þar hafði ég 50—60 manns við
messu i fyrrahaust. Undir vorið voru
kirkjugestir komnir yfir hundraðið.
Þessir tveir þættir, öflugt barna- og
æskulýðsstarf ásamt léttara messu-
formi hafa reynst mér vel. Ég mun því
feta í sömu spor á Akureyri nái ég
kjöri.”
— Hvað með frístundir og
tómstundastörf?
„Það verður að segjast eins og er,
að preststarfið gefur ekki margar
frístundir. Flest mín tómstundastörf
eru í tengslum við tónlist. Tók ég þátt í
stofnun Tónlistarskóla Austur-Skaft-
fellinga og hef kennt við hann á píanó
og orgel. Einng hef ég sungið með
karlakórnum og stjórnað kirkjukór,. í
forföllum organista.”
Gylfi var næst spurður um viðhorf
hans til prestkosninga.
„Almennt er ég andvígur því fyrir-
komulagi, sem er á prestkosningum. Ég
lel betra að veita prestaköllin eins
og gert er með önnur embætti ríkisins.
Ég held að það yrði farsælla.
Á hitt ber líka að líta að prest-
kosningar hafa sinar jákvæðu hliðar.
Ég hef að undanförnu reynt að
heimsækja og heilsa upp á sem flest
sóknarbörn í þeim sóknum, sem ég nú
sækist eftir að þjóna. Ég er sannfærður
um að þessi kynni eiga eftir að verða
mér gagnleg fari svo að ég nái kjöri. ”
Gylfi hefur aldrei verið langdvölum
á Akureyri síöan hann hélt -suður til
náms 1%5. Hann var næst spurður
hvernig honum þætti heimkoman,
hvort Akureyri væri lík þeirri sem hann
kvaddi?
FÖSTUDAGSKVÖLD
IJI5HUSINU11 JliHUSINU
OPIÐ I ÖLLUM
DEILDUM TIL , KL.10 I KVOLD
NÝJAR VÖRUR í ÖLLUM DEILDUM
MATVÖRUR
FATNAÐUR
HÚSGÖGN
BYGGINGAVÖRUR
TEPPI
RAFTÆKI
RAFLJÓS
REIÐHJÓL
Ótrúlega hagstæðir
greiðsluskilmálar ó
flestum vöruflokkum.
Allt niður í 20% út-
búrgun og lánstími allt
að 9 mánuðum.
JIE
Jón Loftsson hf.
/A AA AAA
IO Q £H E3 G2 23 I
1 ia im m hí o i
BSÍI19I
Hríngbraut 121 Sími 10600
Frá 1. okt. verður opið: Mánud.-miðvikud. 9—18, fimmtud.
9—20, föstud. 9—22 og laugard. 9—12.
HAFSKIP HF.
REYKJAVÍK
Til hluthafa Hafskips hf.
Kynning á starfsemi félagsins.
Eftir það iá leiðin i Kennaraskólann,
þar sem hann lauk kennaraprófi.
Guðfræðipróf tók Gylfi 1973, og
vigðist þá til Staðarfellsprestakalls,
sem Jón Aðalsteinn Baldvinsson, annar
umsækjandinn um Akureyrar-
prestakall, þjónar nú. Nær prestakallið
yfir Köldukinn og Bárðardal.
Siðan iá leiðin til Uppsala í Svíþjóð,
þar sem Gylfi var þjónandi prestur við
sænsku kirkjuna og spítalaprestur á
geðsjúkrahúsi um eins árs skeið. Eftir
heimkomuna tók Gylfí við Bjamaness-
prestakalli i Hornafirði, þar sem hann
hefur þjónað síðan.
Fyrst var Gylfi spurður um
kirkjusókn og þá siði sem hann hefði
tamið sér í sínu starfi.
Æskulýðsstarfið
er grunnurinn
„Það má skipta þessu í tvo þætti,”
sagði Gylfi. „Æskulýðsstarfið er
grunnurinn undir allt safnaðarstaiT
þegar til lengri tí ma er litið. Ég var svo
lánsamur að alast upp i æskulýðssiarfi
undir handleiðslu séra Péturs Sigur-
geirssonar, nýkjörins biskups. Fyrst
var það í sunnudagaskólanum og síðar
í Æskulýðsfélagi Akureyrarkirkju, þar
sem ég gegndi formennsku. Á skóla-
árum mínum var ég síðan í mörg sumur
stjórnandi sumarbúðanna \dð Vest-
mannsvatn. Þetta var skemmtilegt starf
og var mér lærdómsríkt. Gaf það mér-
gott veganesti út í preststarfið.
Æskulýðsstarf á Hornafirði er
mikið, enda er þar mikið af ungu fólki,
börnum og unglingum. Ég hef verið
„Bæði og,” svaraði Gylfi,
„stundum upplifi ég gömlu góðu
Akureyrarstemmninguna, en í stórum
hluta af Glerárhverfi hef ég kynnst
nýju andrúmslofti, þar sem býr margt
ungt fólk. Margt af því er fætt og upp-
alið á Akureyri. Það er einkennandi
fyrir Akureyringana að margir þeirra
minnast sunnudagaskólans og
æskulýðsstarfsins við Akureyrarkirkju
frá sinum uppvaxtarárum, þegar ég fer
að ræða um safnaðarstarf 1
heimsóknum minum til þeirra.”
— Nú er engin kirkja í Glerárhverfi.
Gerir það ekki erfitt um vik með
safnaðarstarf?
„Jú, vissulega gerir kirkjuleysið
erfitt fyrir en skólinn, Lögmanns-
hlíðarkirkja og Akureyrarkirkja brúa
það bil þar til úr rætist. Það er ungt og
dugmikið fólk starfandi í söfnuðinum
og það er trú mín að þetta fólk sjái til
þess að ekki verði löng bið í safnaðar-
heimili og kirkju í Glerárhverfi,” sagði
Gylfí Jónsson i lok samtalsins, um leið
og hann setti fram þá ósk sína að prest-
kosningarnar færu fram í bróðerni, svo
kirkjunni yrði sómi að.
-GS/Akureyri.
Þetta umferðarmerki
táknar ll að innakstur
JL er öllum bannaður
II
— einnig þeim sem hjólum aka.
J
Þriðjaárið í röð boðarfélagiðtilsérstaks fundarmeð stækkandi hópi hluthafa
sinna til kynningar á starfsemi félagsins.
Á fundinum munu deildarstjórar félagsins og framkvæmdastjórar sitja fyrir
svörum og taka þátt í umræðum sem Jón Hákon Magnússon mun stýra.
Kynningin ferfram laugardaginn 5. desembern. k. kl. 14.30
í Hliðarsal Hótel Sögu.
(Gengið inn um hóteldyr. Uppstigatil hliðarvið lyftu).
Þess er að vænta að á kynningarfundinum verði hinar margvíslegustu
spurningar ræddar, svo sem t. d.:
- Næstu skipaendurnýjunarverkefni.
- Hefur breytt tryggingarstefna félagsins skilað árangri?
- Á ferjurekstur framtíð fyrir sér?
- Endurskipulagningarmöguleikar í kjölfar úttektar á erl. rekstri félagsins
(sbr. verkefni það, sem Björgólfur Guðmundsson stjórnar nú erlendis).
- Á Hafskip hf. aö tengjast (vöru)flugrekstri?
— Hvernig verður hin nýja vörugeymsla og hafnarsvæði byggt upp?
— Er rétt að stuðla að því, að Ríkisskip verði gert að hlutafélagi með aðild
skipafélaganna?
Það ereindregin hvatning, að hluthafar komi til kynningarinnarog leggi sitt lið
til að gera kynninguna bæði gagnlega og skemmtilega.