Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1981, Qupperneq 28
36
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR4. DESEMBER 1981.
Lilja Kristjánsdóttir, sem lézt þann 29.
nóvember sl., var fædd 22. október
árið 1896 að Tröð í Fróðárhreppi. For-
eldrar hennar voru Sigurlin Þórðar-
dóttir og Kristján Þorsteinsson. Lilja
giftist Ágústi Jóhannessyni árið 1919
og eignuðust þau 5 börn. Þau bjuggu
fyrst á Snæfellsnesi, síðar á Akranesi
og loks í Hafnarfirði. Síðast var Lilja
til heimilis að Álfaskeiði 64 í Hafnar-
firði. Útför Lilju verður gerð í dag kl.
13.30 frá Hafnarfjarðarkirkju.
Alfreð Clausen sem lézt þann 26.
nóvember si. var fæddur 7. maí árið
1918. Foreldrar hans voru Steinunn
Eyvindsdóttir og Areboe Clausen.
Alfreð kvæntist Huldu Stefánsdóttur
fyrir 25 árum og eignuðust þau eina
dóttur. Áður hafði Alfreð verið
kvæntur Kristínu Engilbertsdóttur.
Alls eignaðist hann 7 börn. Alfreð var
kunnur dægurlagasöngvari. Síðast var
hann til heimilis að Miklubraut 62.
Jarðarför hans var gerð í morgun kl.
10.30 frá Fossvogskirkju.
Jóhann Björasson vélstjóri, áður tu
heimilis að Framnesvegi 8 A, lézt 15.
nóvember. Hann var fæddur í Grafar-
koti i Borgafirði 13. júni 1895. Jóhann
var vélstjóri á sjómælingaskipinu Tý.
Hann kvæntist aldrei og eignaðist ekki
börn. Útför Jóhanns fer fram í dag, 4.
desember, frá Fossvogskirkju kl.
13.30.
Andlát
Guðmundur Benedlktsson, fyrrverandi
borgargjaldkeri, Grenimel 39, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni, mánu-
daginn7. desember kl. 13.30.
Helgi Pálsson, kennari frá Haukadal,
Dýrafirði, til heimilis að Norðurbrún
1, iézt i Borgarspitalanum, 2.
desember.
Hermann Hermannsson frá ögurvík,
verður jarðsunginn frá ísafjarðar-
kirkju, laugardaginn 5. desember kl.
14.00.
Kristín Eyjólfsdóttir, Norðurbraut 23
Hafnarfirði, verður jarðsungin i dag,
föstudag, frá Þjóðkirkjunni í Hafnar-
firði kl. 15.00.
Sigurjóna Ólafsdóttir, frá Görðum, í
Vestmannaeyjum, er lézt 24. nóvember
sl., verður jarðsungin frá Landakirkju í
Vestmannaeyjum laugardaginn 5.
desember kl. 14.00.
Þórunn Fjóla Pálsdóttir, Ásabraut 3
Sandgerði, verður jarðsungin frá
Hvalsneskirkju laugardaginn 5. desem-
ber kl. 14.00.
Jóhanna Vigdis Sæmundsdóttir,
Barónsstig 21, verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni í Reykjavík, í dag, 4.
desember, kl. 15.00.
60 ára er í dag 4, desember Jón Andrés-
son frá Snotrunesi, Borgarfirði eystra,
nú til heimilis að Skúlaskeiði 22
Hafnarfirði. Jón tekur á móti gestum í
lönaðarmannahúsi Hafnarfjarðar við
Linnetstíg 3, kl. 19.00 í kvöld.
90 ára er í dag, 4. desember, Ingveldur
Sigurðardóttir frá Hellissandi en þar
bjó hún ásamt manni sínum Pétri
Magnússyni allan sinn búskap. Hún er
nú á heimili dóttur og tengdasonar síns
Páls Sigurðssonar, Hólagötu 37 Ytri-
Njarðvik.
Basarar
Kökubazar íKeflavflt
Oigtarfélag Suöurnesja, heldur kökubasar í Tjarnar-
lundi Keflavík, sunnudaginn 6. desember kl. 14.00.
í gærkvöldi
í gærkvöldi
Axel Ammendrup skrífan
Langt mál um
lítlð efni
Fimmtudagsleikritið var bara
þokkalega skemmtilegt, enda er
Simenon enginn grænjaxl og leikar-
arnir hinir mætustu listamenn.
Ég hlusta yfirleitt á útvarpsleikrit-
in, ef ég kem því við, og ég verð að
nöldra út af einu atriði alveg sérstak-
lega. Þegar leikrit eru þýdd eru nöfn
persónanna höfð óbreytt. Þá heita
vesalings leikararnir okkar ein-
hverjum óskiljanlegum nöfnum eins
og „musju Baillard” eða öðrum
nöfnum sem leikararnir eiga bágt
með að bera fram. Það er óneitanlega
klaufalegt að geta ekki borið fram
eigið nafn.
Það er mín von að einhvern tímann
í framtíðinni ómaki þýðendur sig að
staðfæra nöfn persónanna — þannig
verður leikurunum textinn munntam-
ari og eðliiegri.
Jónas Guðmundsson, stýrimaður,
málari og rithöfundur með meiru,
hefur þá einstöku náðargáfu að geta
talað lengi um lítið og það án þess að
nokkrum manni leiðist. Sannast
sagna eru pistiar hans oftast stór-
skemmtilegir á að hlýða en ef maður
rifjar upp efni pistlanna eftir á er
niðurstaðan yfirleitt sú að ekki voru
atburðirnir stórbrotnir.
Kvöldstundir Sveins Einarssonar
eru áheyrilegar og róandi, svona rétt
fyrir svefninn. Þátturinn er vel unn-
inn hjá Sveini og kynningarnar
skemmtilegar.
í heildina tekið var dagskrá hljóð-
varpsins þokkaleg i gærkvöldi enda
hef ég yfirieitt þann háttinn á að
hlusta aðeins á þá dagskrárliði sem
mér finnst fýsilegir en slekk á tækinu
á milli. Sú regla hefur það þó óneit-
anlega í för með sér að oft er slökkt á
tækinu í marga daga f röð. -ATA.
Jónas Guðmundsson, stýrimaður
með meiru.
Hinn árlegi basar,
kökusala og flóamarkaður
Kirkjufélags Digrancsprestakalls verður haldinn
laugardaginn 5. desember nk. kl. 2 e.h. í Safnaðar-
heimilinu v/Bjarnhólastíg. Að venju verður á
boðstólum margt eigulegra muna. Komið og gerið
góð kaup — og styrkið gott málefni um leið.
Köku og munabasar
fólagsheimilinu Laufósvegi 25
Laugardaginn 5. desember kl. 14 verður basar á
vegum Húnvetningafélagsins í Reykjavík við
Laufásveg 25, Reykjavík. Félagar eru minntir á að
kökur eru vel þegnar, svo og góðir munir. Tekið
verður á móti munum kl. 10—12 f.h. sama dag.
Kvenfólagið Fjallkonurnar
Basar verður sunnudaginn 6. desember kl. 14 í Fella-
helli, Breiðholti III. Þeir sem vilja gefa á basarinn
komi því í Fellahelli laugardag 5. desember frá kl.
14—16 eða sunnudag frá kl. 12—14.
Jólafundurinn verður mánudaginn 7. desember
kl. 20.30 að Seljabraut 54. Kaffiveitingar. Stjórnin.
Opið föstudag til kl. 19.00
Opið laugardag kl. 9—16.
Húsgagnasýning
sunnudag kl. 14-17
Trésmiðjan
■
KIRKJUFÉLAG DIGRAIMESPRESTAKALLS ____—-n
Basar, kökusala
og fíóamarkaður pfes
verður í Safnaðarheimilinu við Bjarnhótastíg ^N'álEF — '
iaugardaginn 5. desember ki. 2 e.h. nefndin