Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1982, Síða 1
Utanríkisráðuneytið með krók á móti bragði
herstöðvaandstæðinga:
Ný reglugerd um
aðgang að Vellinum
„Þetta er náttúrlega lagaspursmál
sem má deila um. Þess vegna var reglu-
gerð sett I gær til að taka af allan vafa,
að gefnu tilefni vegna þess að Samtök
herstöðvaandstæðinga voru búin að
tilkynna að þau ætluðu að láta reyna á
þetta atriði. Við gáfum reglugerðina út
I gær til þess að enginn vafi væri á því
að regiurnar um aðgang að Keflavíkur-
flugvelli væru ennþá í gildi,” sagði
Hannes Guðmundsson í varnarmáJa-
deild utanríkisráðuneytisins í samtali
við DV í morgun.
„Dómur gekk í skaðabótamáli í
undirrétti þar sem kona var að krefjast
miskabóta vegna þess að henni hefði
verið bönnuð umferð á Vellinum.
Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu
að lögin, sem reglugerðin byggði á,
væru ekki lengur í gildi.
Deila má um hvort reglugerðin sé
samt sem áður ekki í gildi af því að hún
byggðist á lögum þegar hún var sett. En
við viljum ekkert vera að deila um það
svo að við gáfum út reglugerð í gær,
sem ér nær samhljóða þeim sem áður
hafa gilt.
Við vísum í heimild í 77. grein laga
um ioftferðir frá 1964 sem er þá laga-
legur grundvöllur fyrir því að þessar
reglur séu í gildi. Svoleiðis að það er
engin breyting á reglunum um urnferð
eða inngang á Völlinn.
í lögum um loftferðir er gert ráð
fyrir því að hægt sé að setja reglur um
umferð á flugvöllum. Þetta er náttúr-
lega í þágu almennings til að fólk fari
sér ekki að voða í sambandi við flug-
brautir og annað. Lögreglan verður að
geta stjórnað því hvernig umferð t.d.
gangandi fólks er hagað þegar það er
komið á flugvallarsvæði,” sagði
Hannes.
Lögin, sem fyrri reglugerð byggði á,
voru sett á stríðsárunum, á því tímabili
þegar allir voru skyldaðir til að bera
persónuskilríki.
Þessi nýja reglugerð utanríkisráðu-
neytisins er þvi krókur á móti því
bragði herstöðvaandstæðinga að fara í
hópferð á Keflavíkurflugvöll frá
Umferðarmiðstöðinni á morgun
klukkan 13.30.
-KMU.
'br\k^ ^útíbú' a'hehjtU&U' ^*S#' ***”* Z*8" ^>e*rsíl/ 8 ógnarhtaáa niður skíða-
mmrnbwnihemkm. om“*r ‘ *'"* "*"
Hjörieifur svarar ekki „undir hótunum bandaríska hersins”
Hönnun f Helguvík
tefst ófyrirséð
—ef rannsóknir á geymastæðum dragast frekar
Orkustofnun mun ekki geta svarað
hönnuðum Helguvíkursvæðisins fyrir
klukkan 16 í dag um það hvort staðið
verði við rannsóknarsamninga og rann-
sóknir hafnar án frekari tafa — nema
Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráð-
herra hafi þá gefið grænleitt ljós. Hann
er hins vegar ekki á þeim buxunum:
„Það er af og frá að ég geri Orkustofn-
un grein fyrir áliti mínu I dag, eins og
ég ætlaði að gera. Þær hótanir sem ég
heyrði í útvarpinu í gærkvöld og eiga
upptök hjá bandaríska hernum eru
ekki viðeigandi og ég svara ekki undir
slíkum þrýstingi,” sagði Hjörleifur í
morgun.
En hvað rekur svo á eftir þessum
rannsóknum að hönnuðir krefjast
svara Orkustofnunar í dag? „Um það
er að ræða, að hönnuðir og sjóherinn
eru bundnir af því að ljúka 35% af
hönnun geymastæðisins fyrir 1. maí til
þess að hægt sé að leggja fram með
eðlilegum hætti fjárveitingabeiðnir
vegna verksins,” sagði Helgi Ágústsson
deildarstjóri varnarmáladeildar í sam-
tali við DV, „auk þess sem ljóst er að
rannsóknir af þessu tagi verða erfiðar
ef ekki óframkvæmanlegar þegar
kemur fram í vorleysingar í jörð.”
Helgi sagði ennfremur: „Ef ekki
tekst að ljúka þeim hluta rannsókna á
svæðinu sem samið var um við Orku-
stofnun og Jarðboranir á tilsettum
tíma, þýðir það einfaldlega frestun
hönnunar á geymastæðinu um ófyrir-
sjáanlegan tíma. Ákvörðun hefur verið
tekin um að vinna þessa hönnun og það
verður gert, þá með samningi við
erlenda aðila ef Orkustofnun getur
ekki staðið við sitt. Þeir missa einfald-
lega af fundnu fé, tæplega milljón
króna, því verkið verður unnið á til-
settum tíma og verður hafið á allra
næstu dögum.”
HERB
Steinullarverk-
smtöjan
á Sauðárkrók:
Slæmtað
Hjörleifurhitti
ekkiárétter
hannloksins
vaknaði
-segirEggert
Haukdal
— sjábls.3
Sunnlendingar
þegjaekki
fyrirmútufé
— sjábls.4
j Fjórir
hollenzkir
Iblaðamenn
drepnirí
BSalvador
— sjá erl. fréttir
bls.8-9
Bæ jarráð Kef lavíkur
og Njarðvíkur:
Fagnafram-
kvæmdumí
Helguvík
Á sameiginlegum fundi
[bæjarráða Keflavíkur og Njarð-
íkur í gærkveldi var samþykkt
Byfirlýsing þar sem fagnað er
þeirri ákvörðun utanríkisráð-
herra að hefja framkvæmdii
við byggingu oiíuhafnar i
IHelguvík og byggingu olíu-
geyma norðan hennar. Bæjar
mráðin telja að utanríkisráðherra
hafi tekið tillit til óska bæjar-
yfirvalda í Keflavík og Njarðvík
viðafgreiðslu málsins.
____________________ÓEF
Vigdísábeinni
línu tilDana
Þriggja klukkutíma
dagskrá um gesti að Bessa-
stöðum verður í danska út-
varpinu annað kvöld og hefst
kl. 21 að dönskum tíma.
Dagskráin heitir „Weekend
nted Vigdís” og er gerð af
Vagn Steen, blaðamanni og
rithöfundi.
Miðpunktur dagskrárinnar
er Vigdís Finnbogadóttir
forseti. Hún ræðir við gesti
sína um skáldskap,
menningarmál, kvennafram-
S| boð og margt fleira. Þau sam-
I töl taka tvo og hálfan tíma.
; Að auki verður forsetinn í
| beinu símasambandi við Dan-
mörku meðan dagskráin
l| verður send út og svarar
i ýmsum spurningum úr út-
varpssal þaðan. Lengist dag-
skráin við það um hálfan
tima.
-IHH
m
M—