Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1982, Síða 2
2
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982.
Tómas Árnason á fundi Kaupmannasamtakanna:
„Margar greinar tilbúnar að
taka við frjálsri verðmyndun”
,,Það leikur enginn vafi á þvi að
myntbreytingin hefur ruglað verðskyn
almennings mjög. Sjálfur þarf ég enn
að hugsa mig vandlega um og skipta
yfir í gömiu myntina til að gera mér
grein fyrir stærðunum,” sagði Tómas
Árnason, viðskiptaráðherra í svari sínu
við fyrirspurn á aðalfundi Kaupmanna-
'samtaka íslands, sem haldinn var í
gær.
Tómas flutti þar ræðu um nýlegar og
væntanlegar breytingar á verðlags-
málum. Biðu menn tölu hans með
nokkurri eftirvæntingu en fátt nýtt
kom þar þó fram. Tómas sagði að
stefnt væri að því, að í stað beinna
verðlagsákvæða yrði verðmyndun
beint inn á svið verðgæzlu og sam-
keppnishvetjandi aðgerða. Væri þetta
markmið þess frumvarps sem nú lægi
fyrir Alþingi um verðlagsmál.
Ekki vildi ráðherra tjá sig mikið um
framkvæmdahliðina á þessu frum-
varpi. Hún yrði í höndum Verðlagsráðs
þegar þar að kæmi og taldi hann stórt
skref að ákvarðanir yrðu nú alfarið
teknar af borði ríkisstjórnarinnar.
Tómas taldi það nokkuð ljóst að ýmsar
greinar viðskiptalífs væru nú þegar til-
búnar til að taka við samkeppnisverð-
myndun og nefndi sem dæmi innlenda
framleiðslu, svosem húsgögn, sælgæti,, Nýja tollafgreiðslugjaldið var sammála því að þetta væri hið mesta gildandi vísitölukerfi væri að mörgu
fatnað og hreinlætisvörur. Af inn- nokkuð til umræðu og kvaðst ráðherra ólánsgjald. Eins tók hann undir að leyti óraunhæft og hreinlega vitlaust.JB.
fluttum vörum nefndi hann bifreiðar,
hljómtæki, sjónvörp, heimilistæki og
skrifstofubúnað og bætti við þennan
lista ýmsum greinum „útseldrar
vinnu.” Hann kvaðst sannfærður um
að þessar breytingar á verðmynd-
unarkerfinu yrðu til þess að draga úr
verðbólgunni.
Allmargir fundarmenn lögðu spurn-
ingar fyrir ráðherrann að ræðu lokinni.
í svörum hans kom meðal annars fram
að hann væri alfarið á móti skattlagn-
ingu verzlunar- og skrifstofuhús-
næðis, þrátt fyrir að hann sjálfur
hefði haft forystu um að koma henni
á. Slíkt væri því miður oft hlutskipti.
ráðherra í samsteypustjórnum. Þá
kvaðst hann einnig fylgjandi lækkun
launaskatts og greiðslu innheimtu-
þóknunar vegna söluskatts og fleiri
opinberra gjalda, en bjóst ekki við að
breyting yrði á neinu þessara atriða á
þessu ári.
Þá nefndi Tómas að í gangi væru
endurskoðun á tollalöggjöf, lögum um
sainvinnufélög og verzlunaratvinnu.
Væri væntanlega von á einhverjum „ Var á mótiskattínumþó ég kæntihonum qfálhwí,"tagð/ TómmsÁmason viöskiptaráöherra á fundimeð kaup-
breytingum i kjölfar þess. mönnum umþaugjöldsem lögð erué vendunar- ogskrtfstofuhásnœði. DV-myndBj.Bj.
A/þýðuMkhúsfnu í Hafnartúói. Á myndhml sam takfn var i æfíngu má sfé
Arnar Jónsson i hlutverki rkkfarans og Borgar Garöarsson Lth. i hhrtvorki
skjafdsveinsins. Aórir á myndinni eru Sff Ragnhikfardóttir, Hefga E. Jóns-
dóttir og Bjarni Ingvarsson.
RIDDARINN
SJÖNUMHRYGGI
Alþýðuleikhúsið í Reykjavík verki Cervantes „Don Kikóti eða sitt-
frumsýnir í kvöld leikgerð James
Saunders á hinu ódauðlega meistara-
Neshreppur utan Ennis:
Allirframboðs-
listarákveðnir
Framboðslistar stjórnmálaflokkanna
í Neshreppi utan Ennis, þ.e. á Hellis-
sandi, Rifi og Gufuskálum, eru nú
frágengnir fyrir sveitarstjórnarkosning-
arnar.
Lista Framsóknarflokksins og
óháðra skipa: 1. Ómar Lúðvíksson. 2.
Aðalsteinn Jónsson. 3. Jóhanna
Gunnarsdóttir. 4. Reynir Rúnar
Reynisson og 5. Ársæll Jónsson. Til
sýslunefndar af listanum er Sævar
Friðþjófsson.
Lista óháðra hreppsbúa skipa:
1. Gunnar Már Kristófersson. 2.
Ingibjörg Steinsdóttir. 3. Haukur Már
Sigurðsson. 4. Albína Gunnarsdóttir
og 5. Páll Stefánsson.
Lista Alþýðubandalagsins og óháðra
skipa:
I. Kristinn Jón Friðþjófsson. 2.
Arnheiður Matthíasdóttir. 3. Svanberg
Stefánsson. 4. Sæmundur
Kristjánsson. 5. Sigríður Þórarins-
dóttir.
Lista Sjálfstæðisflokksins skipa:
• I. Hákon Erlendsson. 2. Ólafur
Rögnvaldsson. 3. Örn Hjörleifsson. 4.
Haukur Matthíasson. 5. Kristján Guð-
mundsson. Til sýslunefndar Óttar
Sveinbjörnsson.
Hafsteinn Hellissandi.
hvað má Sanki þola”. Þýðandi verks-
ins er Karl Guðmundsson en leikstjórn
í höndum Þórhildar Þorleifsdóttur.
Leikgerð Saunders byggir aðallega á
fyrsta hluta sögunnar um þá félaga
Don Kikóti og skjaldsveininn Sankó.
Eins og lesendur bókarinnar kannast
við leggja þeir félagar upp í margar og
glæsilegar glæfrafarir en í leikgerðinni
er ferð þeirra aðeins ein. Þar fer eins
konar samnefnari allra ferða þeirra fé-
laga. Saunders styðst þó að mestu leyti
við atburði, persónur og texta, beint úr
skáldsögunni, en hagræðir vissulega
þannig að betur hæfi sviði.
Þetta leikrit spannar, líkt og sagan,
allt frá glensi og galskap til dýpsta
harms. Þó kallar höfundur þetta
„alþýðlegan gleðileik” og það réttilega
því þeir félagar hafa lag á því að vera
spaugilegir, jafnvel í. sínum verstu
hrakförum.
Með hlutverkin í uppsetningu
Alþýðuleikhússins á verkinu fara Arn-
ar Jónsson sem leikur sjálfan riddarann
og skjaldsvein hans leikur Borgar
Garðarsson. önnur hlutverk eru í
höndum Bjarna Ingvarssonar, Eggerts
Þorleifssonar, sem einnig samdi tónlist
sýningarinnar, Guðmundar Ólafsson-
ar, Helgu E. Jónsdóttir og Sifjar Ragn-
hildardóttur. Leikmynd, búninga og
grímur annaðist og gerði Messíana
Tómasdóttir. Lýsing er í höndum
David Walters.
Frumsýning á Don Kíkóti eða sitt-
hvað má Sanki þola verður sem fyrr
segir í kvöld og hefst hún klukkan
20.30. Önnur sýning er þann 19. og sú
þriðja 21. marz. -SER.
Fundur fyrir austan
um kísilmálmverðið
„Verður íslenzk verksmiðja með 150 manna starfsliði,”
segir Hjörleifur Guttormsson ráðherra
Austfirðingar efna til heils dags
fundar á morgun, laugardag,
um kísilmálmverksmiðju á Reyðar-
firði. Raunar verður fundurinn þar í
kauptúninu og stendur iðnaðarnefnd
Sambands sveitarfélaga i Austurlands-
kjördæmi fyrir honum. Þar á að kryfja
til mergjar þessa fyrirhuguðu verk-
smiðju og fjalla um undirbúning, fram-
kvæmdir og rekstur jöfnum höndum.
Bæði heimamenn og gestir verða
þátttakendur í þessum fundi og munu
meðal annars helztu sérfræðingar sem
fjallað hafa um verksmiðjuna á undir-
búningsstigi framsögumenn. Auk al-
mennra umræðna verða umræður í
hópum um afmarkaða þætti fram-
kvæmda.
í samtali við Hjörleif Guttormsson
iðnaðarráðherra sagði hann að
kísilmálmverksmiðjan yrði væntanlega
„islenzk verksmiðja með um 150
manna starfsliði”. Undirbúningur er
það vel á veg kominn að þess vegna
gætu framkvæmdir við byggingu verk-
smiðjunnar hafizt áður en langt um
líður. Hins vegar hefur ekki verið tekin
endanleg ákvörðun um tilurð þessa
iðjuvers.
-HERB.
Prófun fiskvinnslu-
véla er ekki skylda
— segir BjSrn Dagbjartsson forstöðumaður
Rannsóknarstofnunarfiskiðnaðarins
fns.
,,Það eru engin skýr ákvæði um
hvernig prófunum á vélum, sem notað-
ar eru í fiskiðnaði, skuli háttað,” sagði
Björn Dagbjartsson, forstöðumaður
Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins,
er DV bar undir hann fréttir hér í
blaðinu um seilingarvél fráStálberg.
„Það er gert ráð fyrir því í lögum að
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins geri
prófanir á vélum en þá aðeins ef inn-
flytjendur eða aðrir aðilar óska þess.
Það er sem sagt ekki skylda fyrir selj-
endur.” Björn sagðist ekki sjá ástæðu
til að prófa seilingarvél Stálbergs nema
einhver aðili færi fram á það og sá aðili
þyrfti jafnframt að bera kostnaðinn af
prófuninni.
„En ég vil taka það fram,” sagði
Björn, ,,að Framleiðslueftirlit sjávaraf-
urða hefur ekki tæknimenntaða menn
né tæki til að prófa vélar. Mér finnst
þeir því ekki hafa neina ástæðu til að
skipta sér af því hvernig tækin eru svo
framarlega sem afurðirnar sem úr þeim
koma séu í lagi, — það er þeirra verk-
efni.
Mér þykir einnig einkennilegt að for-
stöðumaður Framleiðslueftirlitsins
skuli láta birta af sér einhvers konar
atiglýsingamynd með þessari seilingar-
vél frá Stálberg.”
-ÓEF.
ATT ÞU SYNISHORN AF RITHOND
EIN ARS BENEDKTSSON AR SKÁLDS!
Mál afkemenda Einar Benedikts-
sonar skálds, til ógildingar samnings
við útgáfufélagið Braga, um útgáfurétt
á verkum skáldsins, á þeirri forsendu
að undirskrift Einars hafi verið fölsuð,
verður tekið fyrir í borgardómi í dag.
Búizt er við því að lögmenn muni þá
óska enn frekari frestar til gagnaöfl-
unar.
Ragnar Aðalsteinsson hrl. er
lögmaður afkomenda Einars og
Magnús Sigurðsson hdl. lögmaður út-
gáfufélagsins Braga. Dómari er Auður
Þorbergsdóttir.
Málsaðilar hafa verið að grúska í
gömlum skjölum að undanförnu í
þeirri von að finna fleiri undirskriftir
Einars Benediktssonar, sérstaklega frá
síðustu æviárum hans, Herdísarvíkur-
árunum, en Einar lézt þar í ársbyrjun
1940.
Skjöl frá árunum 1935 og 1937 með
undirskrift Einars eru komin i ljós,
meðal annars þrívottað gjafabréf um
Herdísarvík til Háskóla íslands.
Lögmaður afkomenda Einars hefur
þegar leitt eitt vitni fyrir dóminn, er-
lendan rithandarsérfræðing, James T.'
Miller, sem telur skrift Einars undir
samninginn við Braga vera falsaða.
Magnús Sigurðsson lögmaður hefur
beðið blaðið að koma þeirri ósk á
framfæri að þeir sem hugsanlega geti
átt undirskrift Einars Benediktssonar
frá síðustu æviárum hans láti vita af
þvi. Ekki sé ólíklegt að til séu áritaðar
bækur eða bréf frá Einari í fórum ein-
hverra.
-KMU.