Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1982, Page 3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982.
Tillaga Hjörleifs Guttormssonar iðnaðarráðherra:
STEINUlJJiRVEIlKSMIÐJA
VERBIA SAUDARKRÓKI
- þingmenn Suðurlands mótmæia harðlega og saka Hjörleif um að hagræða sannUiii»ni.m
Hjörleifur Guttormsson iðnaðrráð-
herra lagði til, á ríkisstjórnarfundi í
gær, að ríkið tæki þátt í að reisa og
reka steinullarverksmiðju á Sauðár-
króki í samvinnu við heimamenn.
Alþingi samþykkti í fyrra að leggja
fram 40% af hlutafé væntanlegrar
steinullarverksmiðju en tók ekki af-
stöðu til staðsetningar.
Sem kunnugt er hafa Þorlákshöfn og
Sauðárkrókur verið þeir tveir staðir
sem barizt hafa um verksmiðju þessa
og reyndar eru þegar til félög á báðum
stöðunum um slíka verksmiðju.
Sem nokkurs konar sárabætur til
Sunnlendinga lagði Hjörleifur til að
fyrirtæki þeirra, Jarðefnaiðnaði hf.,
yrði endurgreiddur sannanlegur útlagð-
ur kostnaður vegna undirbúnings að
stofnun verksmiðjunnar í Þorlákshöfn,
allt að 600 þúsund krónum. Fylgir því
skilyrði að það fjármagn verði notað til
að koma sem fyrst fótum undir annað
iðnfyrirtæki á vegum félagsins.
Eins og fram hefur komið i fréttum
flytja þingmenn Suðurlands saman
Slæmt að Hjörleif ur
hitti ekki á rétt er hann
loksins vaknaði
— segir Eggert Haukdal
„Þingmenn Suðurlands eru búnir að
leggja frani tillögu í þinginu um að
steinullarverksmiðjan verði staðsett í
Þorlákshöfn. Það er búið að liggja
lengi fyrir að hagkvæmni er þar miklu
meiri. Það þarf ekki að rekja það. Það
er öllum löngu ljóst,” sagði Eggert
Haukdal alþingismaður Sunnlendinga
og stuðningsmaður rikisstjórnarinnar,
er hann var inntur álits á ákvörðun
iðnaðarráðherra um steinullarverk-
smiðjuna.
„Ráðherra er búinn að sofa á þessu í
tvö ár. Hann hefði getað verið búinn að
vinda sér í þetta mál fyrir tveimur árum
en hann hefur sofið á málinu og ekkert
gert. Og tekur ekki ákvarðanir í nein-
um málurn.
Það er slæmt þegar hann svo loksins
vaknar af þessum Þyrnirósarsvefni að
hann skuli þá ekki hitta á rétt,” sagði
Eggert Haukdal.
Hann var spurður um hvort hann
myndi gera uppsteit innan stjórnarliðs-
ins vegna ákvörðunar Hjörleifs.
„Það liggur fyrir tillaga í þinginu og
hún verður rædd. Tillagan fer svo til
nefndar en verður svo væntanlega af-
greidd. Við skulum sjá hver verða af-
drif hennar.
þingsályktunartillögu um að steinullar-
verksmiðjan skuli rísa í Þorlákshöfn.
Hafa þeir sameiginlega mótmælt harð-
lega tillögu Hjörleifs og sakað hann um
að hagræða sannleikanum með þvi að
segja að útflutningur steinullar sé ekki
raunhæfur. Hugmyndin um Þorláks-
hafnarverksmiðjuna gerði enda ráð
fyrir að flutt yrði út steinull samfara
framleiðslu fyrir innanlandsmarkað.
Áætlanir um Sauðárkróksverksmiðj-
una miðast eingöngu við innanlands-
markað.
DV leitaði álits tveggja þingmanna
Suðurlands á tillögu Hjörleifs iðnaðar-
ráðherra.
-KMU.
Þeir voru hressir og kátir, Stefán
Guðmundsson alþingismaður, frá
Sauðárkróki, og Árni Guðmundsson,
stjórnarformaður Steinullarfólags-
ins á Sauðárkróki, í gær. Þeir sjást
þarna á tali við Hjörleif Guttormsson
iðnaðarráðherra.
DV-mynd: Einar Ólason.
Eggert Heukdal afdngtsmaður: Þeð
hriktiri mörguþessa dagana.
Það væri óeðlilegt í hæsta máta ef
málið yrði afgreitt í ríkisstjórninni
meðan þessi tillaga liggur fyrir. En við
skulum bara sjá hvað setur. Það gæti
vel verið að hrikti i stjórnarsamstarf-
inu. Við Sunnlendingar unum ekki því
þegar við erum búnir að vera með hag-
kvæman iðnaðarkost og löngu tilbúinn
að hann sé bara skyndilega tekinn frá
okkur. Merkisfélag á Suðurlandi, Jarð-
efnaiðnaður hf. er búið að vera að
vinna að þessu urn árabil. Þegar þetta
er tekið frá svæði sem vantar stóraukin
atvinnutækifæri þá hljóta menn að
skoða sitt mál. Það er nú margt sem
hriktir í þessa dagana,” sagði Eggert
Haukdal.
VIÐ TELJUM
Hjörleifurhefur
ekki þingflokk-
inn aðbaki sér
— segirGarðar
Sigurðsson
„Hjörleifur hefur ekki þingflokkinn
að baki sér,” sagði Garðar Sigurðsson,
þingmaður Alþýðubandalagsins í
Suðurlandskjördæmi, um þá ákvörðun
iðnaðarráðherra að leggja til að stein-
ullarverksmiðjan rísi á Sauðárkróki.
,,En hann er sérfræðingur í því að
vera seinn til ákvarðana. . . nema þær
séu rangar,” sagði Garðar og var rok-
inn á braut.
-KMU.
að notaðir
VOLVO
bflar
séu betri
en nýir bflar
af ódýrari
gerðum
VOLVO 244 GL ÁRG. '81
ekinn 13.000 km, sjálfsk.
VOLVO 244 GL ÁRG. '79
ekinn 68.000 km, sjálfsk.
VOLVO 244 GL ÁRG. '79
ekinn 16.000 km, beinsk.
VOLVO 244 DL ÁRG. '78
ekinn 30.000 km, sjálfsk.
VOLVO 343 DL ÁRG. '78
ekinn 41.000 km , sjálfsk.
VOLVO 244 DL ÁRG. '78
ekinn 36.000 km, beinsk.
VOLVO 245 DL ÁRG. '78
|
ekinn 105.000 km, beinsk.
88.000
118.000
115.000
352Q0 VELTIR
„Hjörle/fur er sórfrmðingur i því eð
vera seinn til ákvarðana ... nema
þær séu rangar," sagði Garðar
Sigurðsson aiþingismaður.
Opið laugardag kl. 10—16.
OSTRDIGAP
Osta- og smjörsalan stendur fyrir sérstakri ostakynn-
ingu í samvinnu við Hótel Loítleiðir, nú um helgina.
Á boðstólum verða hinir Ijúíustu réttir og hlaðið
Víkingaskip aí ostum, t.d. hinir nýju kryddostar,
ostakökur og ostaábœtir.
Matur íramreiddur írá kl. 19.00.
Borðapantanir í símum 22321-22322.
HÓTEL LOFTLEIÐIR