Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1982, Síða 4
4
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982.
Vinstri menn sjá ekki ástæðu til að mynda
meirihluta innan Háskóla íslands:
„Hrein uppgjöf
afþeirra hálfu”
—segir formaður Stúdentaráðs
„Eg lít svo á og get ekki túlkað
hessa yfirlýsingu öðruvísi, en hreina
uppgjöf af hálfu vinstri manna, þess-
arar stærstu fylkingar innan Háskóla
íslands,” sagði Finnur lngólfsson,
formaður Stúdentaráðs, í samtali við
DV, en ekkert bendir til, að nýr
meirihluti verði myndaður í Stúd-
entaráði, þrátt fyrir að rétt vika sé frá
kosninguhum.
Kosningar til Stúdentaráðs fóru
fram 11. marz síðastliðinn. Þar unnu
vinstri menn á, þannig að nú eru þeir
Á fundi launþegaráðs Framsóknar-
fiokksins í Suðurlandskjördæmi, sl.
miðvikudagskvöld, var samþykkt að
semja nú þegar við Jarðefnaiðnað h/f
um byggingu og rekstur steinullarverk-
smiðju í Þorlákshöfn.
í yfirlýsingu fundarins er bent á að
hagkvæmnisathuganir iðnaðarráðu-
neytisins hafi leitt í Ijós að hagkvæm-
Ákveðið hefur verið að rífa tækja-
búnað sorpeyðingarstöðvar Reykja-
víkurborgar. Mun vélsmiðjan Normi i
Garðabæ annast verkið gegn því að fá
stærsta pólitíska fylkingin innan Há-
skólans. Núverandi meirihluta
mynda Félag umbótasinnaðra
stúdenta og Vaka, félag lýðræðis-
sinnaðra stúdenta.
„Menn hafa setið alveg aðgerða-
lausir og beðið,” sagði Finnur, ,,það
hafa þó verið fundir í félögunum og
eftir fund Félags vinstri manna barst
mér þessi ályktun.”
í ályktunni segir, að Félag vinstri
manna telji ekki ástæðu til að hafa
frumkvæði af sinni hálfu til myndun-
ara sé að staðsetja steinullarverksmiðj-
una í Þorlákshöfn en á Sauðárkróki.
Auk þess hafi sú ákvörðun að færa
virkjunarframkvæmdir um skeið í aðra
landshluta leitt til þess að atvinnu-
ástand á Suðurlandi sé nú frekar slæmt
og hafi viða orðið fólksfækkun af þeim
sökum.
Þórður Ólafsson formaður Verka-
brotajárnið til eignar.
Sorpeyðingarstöðin er á Ártúns-
höfða, Grafarvogsmegin.. Hún var reist
fyrir aldarfjórðungi en hefur ekki verið
ar meirihluta innan Stúdentaráðs,
þar sem núverandi meirihluti sé ekki
fallinn.
„Þetta er í meira lagi undarleg yfir-
lýsing,” sagði Finnur, ,,og með
henni eru þeir að viðurkenna, hversu
mikil og mörg mistök þeir gerðu,
þegar þeir réðu lögum og lofum. En
síðast en ekki sízt eru þeir hreinlega
að lýsa yfir því, að þeir treysti sér
ekki til að takast á við „stóru mál-
in”, það er að segja að koma lögun-
um um námslán og námsstyrki í
lýðsfélags Hveragerðis og nágrennis
sagði í samtali við DV að það væri
greinilega vilji ríkisstjórnarinnar að
velja versta kostinn en reyna siðan að
múta Sunnlendingum með því að
segjast ætla að endurgreiða þeim út-
lagðan kostnað sem ganga á til iðn-
fyrirtækis í Þorlákshöfn. ,,En smá-
mútufé fær Sunnlendinga ekki til að
starfrækt síðustu þrjú árin.
f ráði er að húsnæði stöðvarinnar
verði nýtt sem bækistöð fyrir garðyrkju
borgarinnar. -KMU.
fínnur Ingótfsson, fomtaður Stú-
dentariðs.
gegnum Alþingi og taka að sér rekst-
ur Félagsstofnunar og um leið hrinda
í framkvæmd byggingu stúdenta-
heimila.”
Samkvæmt lögum Stúdentaráðs
ber formanni ráðsins að kalla saman
nýtt stúdentaráð fyrir 20. marz. En
tekst að mynda nýjan meirihluta fyrir
þann tíma?
,,Ég hef kallað formenn félaganna
á minn fund á morgun, föstudag, og
þar mun reyna á það,” sagði Finnur
Ingólfsson. -KÞ.
þegja,” sagði Þórður „enda kemur það
víst seint að notum ef hraðinn á þeim
framkvæmdum verður eins og á öðru
hjá iðnaðarráðherra.”
,,Ég er að vonast til að Alþingi grípi
fram fyrir hendurnar á ráðherrunum til
að tryggja hagsmuni þjóðarbúsins í
heild. Það sýna allar skýrslur að verk-
smiðjuna er hagkvæmara að reka í
Þorlákshöfn. Það væri að bíta höfuðið
af skömminni að ætla að láta lands-
menn bera skaðann af verksmiðju á
Sauðárkróki með því að greiða
flutninginn á steinullinni þaðan til
Reykjavíkur í gegnum meðgjöld með
Skipaútgerð rikisins,” sagði Þórður
Ólafsson.
ÓEF
Garðbæingar
velja á
lista Alþýðu-
flokksins
Garðbæingum gefst kostur á því
bæði á laugardag og sunnudag að velja
frambjóðendur á Iista Alþýðuflokksins
vegna bæjarstjórnarkosninganna í vor.
Að vísu takmarkast valið við átta til-
tekna bæjarbúa, sem Alþýðuflokks-
félagið hefur fengið i slaginn. Kosið
verður i Flataskóla, á laugardag klukk-
an 14—18 og á sunnudag klukkan 10—
18. Þátttökurétt hafa allir Garðbæing-
ar sem verða orðnir 18 ára á kjördegi
bæjarstjórnarkosninganna.
í prófkjörinu á að raða í fjögur efstu
sæti og verða niðurstöður bindandi ef
frambjóðandi fær 1/5 hluta þeirrar at-
kvæðatölu, sem Alþýðuflokkurinn í
Garðabæ fékk i síðustu bæjarstjórnar-
kosningum. Þá fékk hann 292 atkvæði,
svo að 60 atkvæði þarf til að ná bind-
andi kosningu nú.
Fimm manns bjóða sig fram i 1.—4.
sæti: Hilmar Hallvarðsson yfirverk-
stjóri, Aratúni 3. Kristinn Þórhallsson
sölumaður, Hofslundi 17, Magnús
Árnason kjötiðnaðarmaður, Hofslundi
3. Valborg S. Böðvarsdóttir fóstra,
Breiðási 9. Örn Eiðsson fulltrúi,
Hörgslundi 8.
í 2.—4. sæti bjóða sig fram Haukur
Helgason skólastjóri, Hraunhólum 10
og Karl Ó. Guðlaugsson borgarstarfs-
maður í umferðardeild, Garðaflöt 1.
Og i 3.—4. sæti býður sig fram Erna
Aradóttir fóstra, Smáraflöt 35.
Nú hefur Alþýðufiokkurinn einn
bæjarfulltrúa af sjö, Framsóknar-
flokkur og Alþýðubandalag sinn full-
trúann, hvor flokkur, og Sjálfstæðis-
flokkur fjóra.
HERB
Nepal:
Ný verzlun
íKeflavík
Nýlega var opnuð í Keflavík verzlun
með austurlenzkar vörur og er þar með
talin hin vinsæla Sanrio lína, sem hefur
náð gífurlegum vinsældum erlendis, og
ekta Monsur, og er hún eina verzlunin
á Suðurnesjum með þessa tegund leik-
fanga. Einnig er að finna í verzlun þess-
ari fjölbreytt úrval af gjafavörum.
Verzlunin ber austurlenzka nafnið
Nepal, og er hún til húsa að Hafnar-
götu 48. Eigendur Nepal, eru hjónin
Sigurður Hauksson og Guðrún S.
Pálmars. og Liljar S. Hreiðarsson og
Guðrún Hauksdóttir. Verzlunin er opin
virka daga frá kl. 1—6og einnig frá kl.
10 laugardaga.
-RS
Framsóknarmenn á Suðurlandi vilja steinullarverksmiðju í Þorlákshöfn:
Sunnlendingar þegja
ekki fyrir mútufé
—segir Þórður Ólafsson, formaður Verkalýðsf élags Hveragerðis
Sorpeyðingarstöðin rifin
Svomælir Svarthöfði__________Svomælir Svarthöfði ____________Syomælir Svarthöfði
Þjóðviljinn: Agentar á ríkisfjölmiðlum
Ekki er ónýtt fyrir
flokkana aö eiga sér agenta
inni á rikisfjölmiölunum,
eins mótandi og þeir eru i
öllum umræöum fólks i land-
inu. Alþýöubandalagiö er
Þjóðviljinn ræðir svolítið fjöl-
miðlamál í gær og hefur máls á þessa
leið: Ekki er ónýtt fyrir flokkana að
eiga sér agenta inni á ríkisfjölmiðlun-
um, eins mótandi og þeir eru í öllum
umræðum fólks í landinu.
Þetta voru orð að sönnu, og hefur
varla sést sannara orð í Þjóðviljan-
um, málgagni sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis (með einka-
rétti) í manna minnum. Að vísu er til-
efnið einslætt, vegna þess að Þjóð-
viljinn telur að ráðherrann sjónum-
hryggi og fleiri pótintátar Alþýðu-
bandalagsins hafi lent á fréttamanni,
sem þeim er ekki að skapi. Þetta eins-
dæmi og mikla tilviljun innan ríkis-
fjölmiðlanna brýtur auðvitað öll
náttúrulögmál sósialisma og þjóð-
frelsis, bæði umgetning Þjóðviljans
og tilefnið, enda hafa engir séð út yfir
áhrif sósíalisma og þjóðfrelsis i ríkis-
fjölmiðlunum árum saman, eða síðan
það varð stefnumið að koma þangað
sem flestum kommúnistum og fylgi-
sveinum þeirra. Þetta var að vísu fá-
mennara átak en eitra skólana, frá
barnaskólastigi og upp úr, en tókst
þó svo sæmilega, að þess er ekki
nokkur von, að í ríkisfjölmiðlum séu
þeir kallaðir á vettvang til skoðana-
skipta, sem taldir eru andvigir sósial-
isma og þjóðfrelsi Þjóðviljans (með
einkarétti).
Landlægt er ástandið á fréttastofu
útvarps, en þar hafa heilir stórat-
burðir, sem varðað hafa þjóðfélagið
miklu árum saman, ekki komið í
fréttum nema sem aukageta, ein-
göngu af þvi að þar voru menn í for-
svari, sem ekki hentuðu ráðandi
öflum á fréttastofunni. Sjónvarpið er
nú að fara sömu leiðina, en frétta-
stofan þar erá góðri leiðmeðað verða
að viðundri fyrir einkaviðlöl starfs-
manna fréttastofu hversvið annan.
Þó skiptir það brot á hefðbundnum
venjum blaðamennskunnar sáralitlu
á móti þeirri stöðugu hollustu, sem
þar er t.d. sýnd hringnum Þórarinn
Þórarinsson — Árni Bergmann Þór-
arinn Þórarinsson — Kjartan Ólafs-
son. Þessi öxull hefur verið lengi
ráðandi í erlendum fréttaskýringum í
sjónvarpi, enda hefur Þjóðviljinn
ekki talið sósialisma eða þjóðfrelsi
(með einkarétti) hætlu stafa af. Það
er ekki fyrr en honum fellur illa við
eitt eða tvö fréttaviðtöl, sem hann
kveður upp úr með að gott geti verið
að eiga agenta inni á riklsfjölmiðlun-
um.
Í raun kemur flest af þvi fólki sem
nú vinnur á sjónvarpi og útvarpi aðr-
ar leiðir inn i fréttamennskuna en í
gegnum blaðamennsku undir örugg-
um ritstjórum. Sumt af þessu fólki
þykist hafa lært sérstaka „fjölmiðl-
un”, hvaða þýðingu, sem það kann
að hafa fyrir fréttir einvörðungu.
Það merkilega gerðist hér á árunum,
að frjáls blaðamennska og frétta-
mennska, sem er auðvitað æskileg-
ust, spratt upp á blöðum, sem í raun
voru pólitísk. Þar unnu menn í kyrr-
þey að því að vernda rétt einstaklinga
og félagasamtaka, og lókst það
merkilega vel. Þróun í blaða-
mennsku, síðan, hefur öll verið í
þessa átt og er kannski DV gleggsta
dæmið þar um. Á sama tíma hafa
fréttastofur útvarps og sjónvarps
orðið að einskonar nátttröllum á
gluggum frjálsrar fréttamennsku.
Blöð eiga auövitað i mismunandi
erfiðleikum hvað blaðamennskuna
snertir, eins og sanngjarnt er að reka
hana. En þau sýna þó lit og reyna.
Helsta vandamálið felst í hugmynd-
inni um frjálslyndið sjálft og hvernig
ber að túlka það. Það sést á verkum
sumra blaðamanna, að þeir halda að
frjálslyndið sé allt til vinstri. Hægt
væri að álíta að þeir væru ófærir að
skrifa um annað en vinstri málefni.
En þau eru nú ekki helmingurinn af
tilverunni eins og hún blasir við
okkur hér á landi og ekki einu sinni
einn fimmti. Þannig að frjálslyndi til
vinstri getur ekki verið einrátt ef vel á
að fara. En ríkisfjölmiðlarnir eiga
ekki við þennan vanda að stríða. Þeir
hafa þegar leyst heimsgátuna.
Svarthöfði.