Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1982, Qupperneq 5
ÐAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982.
Stjörnumessa DV eftir tæpa viku:
Ekkert sparaö til
að gera Stjömu-
messma sem gjæsi-
legasta úr garði
—segir Þorgeir Ástvaldsson, einn aðalkynnir
Messunnar
,,Það verður vandað mjög til allra hluta á Stjörnumessu til að gera hana sem
glæsilegasta úr garði, enda engu til sparað,” sagði Þorgeir Ástvaldsson, aðal-
kynnir Stjörnumessu, þegar við hittum hann að máli í gær, en unnið er af kappi
þessa daga til að allt verði tilbúið fyrir daginn stóra.
„Það þarf ekki að fara mðrgum
orðum um staðinn Broadway, þar er
allt eins og bezt verður á kosið fyrir
hátíð af þessu tagi. Aðstæður allar til
hljómleikahalds eru eins ákjósanleg-
,ar og hægt er. Þá eru hljómflutnings-
tæki og Ijósabúnaður allur af beztu
og fullkomnustu gerð. Broadway er
stór staður og kemur það sér vel, þvi
aðsókn er gifurleg, enda hafa færri
komizt- að en vilja undanfarin ár.
Einnig má geta þess, að í Broadway
er séð fyrir öllu, til dæmis sézt jafn-
vel á sviðið, hvar sem setið er í
salnum.”
Það er 50 manna dómnefnd auk
lesenda DV, sem ráða úrslitum vin-
sældavalsins á Stjörnumessu, þar
sem kosið verður um hljómsveit árs-
ins, söngvara og söngkonu ársins, lag
og lagahöfund ársins, textahöfund og
tónlistarmann ársins, svo og verða
veitt verðlaun mest seldu hljómplötu
ársins og sérstökum heiðursgesti.
„Reynt hefur verið að haga vali
dómnefndar þannig, að val á þeim
sem stóðu upp úr og létu mest að sér
kveða í heimi dægurtónlistar á ís-
landi verði sem trúverðugast,” sagði
Þorgeir. „Dægurtónlistin var óvenju
fjölbreytt síðastliðið ár, svo það
verður mjög forvitnilegt að sjá, hver
útkoman verður í vinsældavalinu.
Þetta verður stórkostleg skemmt-
un,” sagði Þorgeir, „Stjörnumessa
heitir hún og stjörnumessa skal það
verða. ” -KÞ.
I
Þorgeir Ástva/dsson verður
kynnír Stjömumessu og
mun njóta aðstoðar hins
stóra og stæði/ega Magnús-
ar Óiafssonar.
Placido
Domingo
Óperusöngvarinn Placido
Domingo og popparinn John
Denver leiða saman hesta sina á
plötunni Perhaps Love. Samstarf
þessara ólíku tónlistarmanna hef-
ur skilað einstökum árangri, því
Perhaps Love er ein mest selda
platan i Bandaríkjunum, Bret-
landi og á íslandi í dag.
Við vorum að taka upp enn eina
sendinguna af þessari frábæru
plötu.
Littu við í dag.
Laugavogi 66 —
Glœsibæ —
Austurstræti 23.
Sími fró skiptiborði
85055.
slolnorhl
Simar 85742 og 85055.
Jeppinn sem fer ótmðnar sióðir.
Verð kr. 115.000.-
Sveinn Egiisson hf.
Skeifan 17. Sími 85100