Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1982, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982.
Neytendur
Neytendur
Neytendur
TVOFÖLDUH Á EINFÖLOU GLERI
GAMALT
GLER '
SIGNA ÞÉTTIEFNI
SIGNA ALLISTI
RAKADRÆGT EFNI
NYTT
'GLER
- ÞEKJULISTI
KOPAR-
-ÞRAÐUR
SILICON I
'HOLRÝMI
GLUGGAKARMUR
m. FféRFÖtO STSKKUH ;
Á þessarí skýringarmynd sóst hvernig Signa-aOferðin, sem svo er nefnd, tH
að tvöfakla gler virkar.
settur koparþráður. Við sjáum seinna
til hvers.
Lím eða kítti er beggja vegna á list-
anum. Hann límist því bæði við nýju
rúðuna og þá gömlu. Fyrst er hann lát-
inn límast viðgömlu rúðuna. Sú nýja er
síðan pússuð vel að innan og límd við
hina hliðina.
Þá er komið að mikilli galdraathöfn.
Til þess að tryggja það að glerið límist
vel við listana þarf að hita límið eða
kíttið á honum. Það er gert með því að
hleypa straumi á koparþráðinn sem við
sögðum frá áðan. Þá hitnar listinn og
kíttið linast. Ýtt er á nýju rúðuna við
karmana þannig að fullkomin þétting
náist milli glers og lista á meðan kíttið
er lint.
Nú er verkinu í raun og veru að
mestu lokið. Eftir er að sprauta silikoni
með fram nýju rúðunni. Notað er sér-
stakt sílikon sem hefur góða viðloðun
við gler og ál og þornar fremur seint.
Plastlistar koma svo ofan á sílikonið og
hylja jafnframt rammann milli rúð-
anna.
Hægtaðsetjaí
allaglugga
Fræðilega er hægt að setja svona gler
i alla glugga, hvort sem er í opnanleg
fög eða glugga sem ekki er hægt að
opna. í gömlum húsum er það algengt
að sjálfur gluggaramminn er orðinn
sk.akkur. Það er rétt af með þekjulist-
anum góða þannig að ekki þarf að
skipta um karma, nema ef karmurinn
er orðinn fúinn eða ónýtur á annan
hátt.
Töluvert hefur verið gert að því að
setja gler á þennan hátt í glugga í Dan-
mörku. Þarlendir menn eru hrifnastir
af því, eftir blaðagreinum að dæma, að
ekki þarf að breyta útliti húsa til þess
að fá tvöfalt gler. Þeim er meinilla við
að augnstinga hús eins og það hefur
verið kallað. Við íslendingar miklum
það líklega ekki eins fyrir okkur þó
margir séu hrifnir af sínum frönsku
gluggum. En við ættum ekki síður en
Ðanir að kunna að meta þann orku-
sparnað sem er af því að hafa fremur
Athugasemd frá Mats
Framköllun á
ásama
Þar sem frétt yðar á neytendasiðu
um verðlag á framköllun á „siides”-
filmum um 47% verðmun var dregin
til baka i blaði yðar í sl. viku, verðum
við að vekja athygli yðar á eftir-
töldum staðreyndum:
1. Jafnvet þótt þið tækjuð fram að
hér væri um að ræða verð á fram-
köllun á ,,slides”-filmum þá hefur
komið í Ijós að fólk ber almennt ekki
skynbragð á misntunandi framköll-
unaraðferðir, framköllun er einungis
framköllun — og höfum við svo
sannarlega fundið fyrir þessu undan-
farna daga. (Venjuleg framköllun og
kopiering á iitpappírsmyndum, sem
er 95% af allri framköllunarveltu,
hefur dregist stórlega saman eftir að
frétt yðar birtist — þar er yður tókst
að telja fólki trú um að framköllun
væri almennl 47% dýrari hjá okkur.
Þetta er uppspuni og ætti einna helst
að flokkast undir atvinnuróg.).
2. Það hjálpar ekkert að þér dragið
að hluta til frétt yðar til baka nokkr-
um dögutn síðar, sérstaklega þar sern
ekki var minnst einu einasta orði á
okkar fyrirtæki og við beðin afsök-
unar á „mistökunum”.
3. Nú erum við samkvæmt leið-
réttum upplýsingum ritstjórnar yðar
aðeins 13% dýrari með framköllun á
„slides”-filmum.
í hverju er þessi verðmunur
fólginn?
A: Hröð þjónusta, filman inn kl.
12, tilbúin samdægurs, kl. 16—
16.30.
B: Hámarksgæði á framköllun
tryggð með daglegu eftirliti og fín-
stillingum á fullkomnustu fram-
köllunarvél samkvæmt ströngustu
kröfum Kodaks um gæðaeftirlit.
Okkar framköllun þarf að vera svo
nákvæm vegna þess að við þjónum
fyrst og fremst atvinnuljósmynd-
urum.
4. Framköllun og kopiering á lit-
pappírsmyndum, amatörmyndum, er
hins vegar á sarna verði alls staðar á
landinu, filmuframköllun kr. 18 og
hver kopia kr. 4,50 hjá okkur eins og
í öllum öðrum verslunum.
Við hörmum það að hægt skuli
vera að gera samstæða, villandi og
falska verðkönnun einn daginn sem
svo er dregin til baka nokkrum
dögum síðar. Við hörmum slika
framkomu gagnvart okkur, hverju
svo sem um er að kenna en þetta er
ekki í fyrsta skipti sem DBL/Vísir
birtir rangar fréttir um okkur — án
þess að sjá ástæðu lil þess að biðjast
afsökunar.
Við vonumst til að þér leitið fram-
vegis haldgóðra upplýsinga og full-
vissið yður um sannleiksgildi fréttar
áður en til birtingar kemur.
Við vonumst til að þér sjáið yður
fært að leiðrétta þann misskilning
sem orðið hefur, að svo miklu leyti
sem það er hægt.
Óskum við eftir birtingu á Ieiðrétt-
ingu skv. efni þessa bréfs á áberandi
stað i blaði yðar strax, helst með af-
sökunarorðum frá yður.
Virðingarfyllst,
pr.pr. Ljósmyntlaþjónuslan s.f.
Mal.s Wibe Lund jr.
Mals Wibe Lund ætti að venja slg á
að lesa það sem skrifað stendur ogn
belur áður en hann ræðst á ritarann
með skömmum. Það sem hann kallar
að draga til baka var aðeins örlitil
viðbót við frétt af verði framköllunar
á skyggnufilmum. í viðbótinni eru
tíndar . fram skýrlngar þeirra er sclja
slíka framköllun á 75 og 78 kr. Það
brcytir ekki þeirri slaðreynd að enn er
hægt að fá á að minnsta kosli þrem
stöðum hér í bæ framköllun á 60
krónur á meðan Mats selur hana á 88
krónur. Þvi hvarflar hreint ekki að
mér að biðja hanit afsökunar.
Dóra Stefánsdóttir.
IV NN NN , SEM FALL AF ÚTIHITA. HITASTIG 22 °C.
ý.
!
Ul-
26 'i' ‘S'j
JS 7
- 20 - tí b * lœ * »
líking ty = ti - mj - |t-| tj -10)
yfirbordsmðtstaba: mj=0,TD *C nfjW
Heimild -.Jtstamlskoraiun einangrunanjlers' R.b. 29.
Munurinn t eénfOldu gteri og
tvöföldu er grfuriegur.
tvöfalt gler en einfalt. Sérlega á þetta
við úti á landi þar sem orkuverð er
miklu hærra en hér í Reykjavík. Aukin
hljóðeinangrun fæst einnig með því að
setja þykkara gler innan við gamla
glerið. Jón ætlar einmitt, þegar hann er
búinn að koma mönnum hér í Reykja-
vík upp á lagið með að setja þetta gler
í, að kenna mönnum utan af landi. Þeir
munu þá taka verkið að sér i hans
umboði. DS
TIMBUR
BYGGINGAVÖRUR
Flísar • Hreinlætistæki • Blöndunartæki •
Málningarvörur • Verkfæri • Baðteppi •
Baðhengi • Baðmottur.
Harðviður • Spónn • Spónaplötur •
Viðarþiljur • Einangrun »Þakjárn • Saumur •
Fittings
Ótrúlcga hagstæðir grciðsluskilmálar
alit niður í 20% útborgun
og eftirstöðvar allt að 9 mánuðúm.
Mánudaga til fimmtudaga
frá kl. 8-18
Föstudaga frá kl. 8—22.
Laugardaga kl. 9—12.
Ol BYGGlNGAVÖRURl
HRINGBRAUT119, SÍMAR10600-28600.
Munið aðkeyrsluna frá Framnesvegi
HUSGAGNASYNING
UM HELGINA
Sófasett — húsbóndastólar — sófaborð — spegla-
sett — símabekkir o.fL, o.fí.
U
Nr. 100. Skap mttredor. Nr. 105. Skap m/glassdor. Nr. 106. Svingbar.
B. 85. H. 75. D. 38 cm. B. 85. H. 75. D. 38 cm. B 85. H. 75. D 38 cr
1
■>/ T:' I T7 B.
) B ! j 25 /. Senator
r. lll.Bue. Nr. 114. Hjoi
E
raðsamstæðan
Óteljandi
möguleikar
Mahony
og beyki
Kíktu við —
það borgar sig!
-HÚSGÖGN
■ SKEIFUNNI 8 - SÍMI 39595