Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1982, Page 8
8
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Utlönd
NOBELSVERÐ-
LAUNAHAFA SNÚIÐ
VIÐ FRÁ CHILE
Nóbelsverðlaunahafanum Adolfo
Perez Esquivel frá Argentínu hefur
verið neitað um landvistarleyfi í Chile,
en hann er einnig þekktur baráttu-
maður á sviði mannréttinda.
Var honum, að sögn mannréttinda-
nefndar í Chile, snúið aftur heim til
Buenos Aires eftir fjögurra stunda við-
komu á flugvellinum í Santiago, en þar
voru félagar úr nefndinni og prestar
mættir til að taka á móti honum.
Esquivel hlaut Nóbelsverðlaunin 1980.
Seinna kom yfirlýsing frá innanríkis-
ráðuneytinu þess efnis að Esquivel
hefði verið neitað um landvistarleyfi
vegna hegðunar sem flokkaðist undir
óæskileg afskipti af innanríkismálum
landsins i þau skipti sem Esquivel hefur
áður gist Chile.
Esquivel átti í þetta sinn að hitta tvo
fanga, sem handteknir voru í nóvember
vegna þess að þeir eru félagar í vinstri-
sinnuðum kristilegum flokki, sem er
bannaður í Chile.
Esquivel hefur vakið mikla athygli á
sér í heimalandi sínu með því að krefja
herstjórnina skýringar á hvarfi
þúsunda manna sem hurfu er herinn lét
til skarar skríða gegn vinstrisinnuðum
skæruliðum á áttunda áratugnum.
Hann hefur einnig beitt sér gegn
broti á mannréttindum í öðrum Suður-
og Mið-Ameríkuríkjum og í fyrra var
flugvél sem hann var farþegi í snúið við
frá Paraguay þar sem hún fékk ekki að
lenda með hann innanborðs.
Skæruliðar i viðræðum við blaðamenn, sem hafa heimsótt þá i búðir þeirra.
Fjórir hollenzkir
blaðamenn drepnir
í El Salvador
Adolfo Perez
gestur i Chile
Esquivel: Óvelkominn
Fjórir blaða- og tæknimenn
hollenzka útvarpsins og sjónvarpsins
voru drepnir í átökum stjórnarhers og
vinstrisinna skæruliða í norðurhluta E1
Salvador, eftir því sem segir í til-
kynningu stjórnarhersins.
Tilkynningin var birt í gær, heilum
/\ ATH: Opið alla virka daga frá kl. 9 -18,
/ \ sunnudaga frá kl. 13—17.
/ \ Það eru meiri möguleikar á að billinn
/ V seljist hjá okkur.
W/ Borgartúni 24
V"' / Sími 13630 og 19514
\/ Bflasala — Bflaleiga
Arg.: Verð:
Saab 900 GLE ek. 25 |iús. km . . . 1980 190.000
Range Rover ek. 13 |mjs ... 1980 325.000
Galant 1600 ... 1979 95.000
Oldsmobil Cutlass ak. 56 þús. km. Dýrasta týpa . .. 1980 200.000
Scout Traveller ek. 4 þús. km. Einn m/öllu ... 1979 210.000
Ch. Malibu Classic ek. 51 þús. km ... 1978 138.000
Chevrolet Impala, ek. 80 þús. Tveir eig., toppbill ... 1976 90.000
Subaru 4 x 4, ek. 45 þús. km. Fallegur bfll ... 1978 78.000
Mazda 626 2000,2 dyra, ek. 29 þús ... 1980 110.000
Galant 1600 GL, ekinn 20 þús. km ... 1980 105.000
Toyota Corolla station ... 1979 85.000
Pick-up Chevy 4x4 m/húsi ...1977 165.000
BMW 5201 ek. 4 þús 220.000
Toyota Carina GL ... 1980 120.000
Datsun Cherry GL ek. 16 þús. km ...1980 90.000
Malibu Classic f sórflokki ... 1979 160.000
Cadilac Eldorado m/öllu ... 1975 155.000
Benz 350 SE m/öllu 180.000
Toyota Cressida station ek. 25 þús 140.000
Mazda 323 station sjálfsk. ek. 19 þús ... 1979 95.000
Honda Accord sjálfskipt ek. 37 þús ... 1979 100.000
Daihatsu Charade ek. 16 |>ús ... 1980 79.000
Toyota Hi-Lux Pick-up ... 1980 145.000
Toyota Corolla ek. 4 þús. km . .. 1981 115.000
Volvo 245 GL, ekinn 4 þús. km ... 1980 185.000
GMX Suburban 4 x4 10 monnu ok. 62 þús. km. . ...1977 170.000
Plymouth Volare 4 d., ek. 38 þús. km ... 1978 125.000
VÖRUBÍLAR:
Volvo F88, ek. 270 þús. km ... 1969 180.000
GMC, 2ja hásinga, drif á báðum ... 1973
Skipti á 6 hjóla bil m/krana möguleg.
Einnig vantar allar gerðir vörubíla og vinnuvéla á
skrá.
Stór og bjartur sýningarsalur, malbikað útisvæði.
Bflaleigan Bflatorg leigir út nýlega
fólks- og jeppabíla. Lancer 1600 GL, Mazda 323,
Datsun Cherry GL, Lada Sport 4x4 og 10 manna
fjórhjóladrifsbfla.
sólarhring eftir átökin, sem voru á mið-
vikudagskvöld. Segir í henni að Hol-
lendingarnir, sem störfuðu á vegum
kirkjulegs útvarps, hafi verið í fylgd
með skæruliðunum þegar þeir voru
drepnir.
Að Jreim meðtöldum hafa nú alls níu
fréttamenn látið lifið í borgarastríðinu í
El Salvador á einu ári.
Yfirmenn stjórnarhersins í höfuð-
borginni San Salvador greindu frá
þessu á blaðamannafundi í gær. Sögðu
þeir að komið hefði til skotbardaga
milli skæruliða og herflokks á eftirlits-
ferð. Stóð skothríðin í fjörutíu
mínútur. Þegar valurinn var kannaður
fundust átta lík.
Til viðbótar Hollendingunum fund-
ust lík þriggja skæruliða og eins útlend-
ings. Taldi herinn að þar gæti verið um
að ræða enn einn blaðamanninn ellegar
erlendan málaliða á snærum skærulið-
anna.
í tilkynningu þess opinbera var
dauði Hollendinganna harmaður en
Valurinn kannaður eftir bardaga við skæruliða.
um leið voru hinir erlendu blaðamenn,
sem eru að störfum í E1 Salvador,
varaðir við því, eigin öryggis vegna, að
villast inn á landsvæði, sem ekki eru
fullkomlega á valdi hersins.
Fjórmenningarnir eru nafngreindir.
Koos Koster sjónvarpsþáttaframleið-
andi, Has Locewijk ter Laag hljóð-
tæknimaður, Jan Cornelius Kuyper
stjórnandi og Johannes Willemsen
myndatökumaður.
Það sem gerir þessi dauðsföll
ískyggilegri en ella eru skrif og deilur
undanfarnar vikur um að skæruliðar
hafi notið meiri samúðar í umfjöllun-
um fjölmiðla. Það er vitað að blaða-
mennirnir erlendu í E1 Salvador hafa
reynt að setja sig í samband við skæru-
liða ogólmirreynt að komast með þeim
í leiðangra eða heimsækja búðir þeirra
upp til fjalla og í skógarþykknum.
í síðustu viku var Koos Koster hand-
tekinn og færður á lögreglustöðina í
San Salvador til yfirheyrslu, eftir að
skjal fannst á líki skæruliða, en á því
kom fram að Koster væri tengiliður
milli skæruliða og blaðamanna.
Koster tókst aö hreinsa sig af gruninum
og var leyft að starfa áfram í landinu.
Á miðvikudagskvöld var 35 nafn-
greindum blaðamönnum innlendum og
erlendum, hótað dauða af leynisam-
tökum hægri róttæklinga, sem kalla sig
Andkommúnista bandalagið. í þessari
hótun voru blaðamennirnir kallaðir vit-
orðsmenn með kommúnistum. —
Hollendingarnir fjórir voru þó ekki á
þeim lista.
í tilkynningu hersins var engin
skýring gefin á því, hvers vegana það
hafði dregizt i sólarhring að greina frá
dauöa blaðamannanna. Fréttamenn
fengu að fara á vettvang, þar sem bar-
daginn hafði verið háður, skammt frá
bænum Santa Rita.
Kóreumenn metnaðar-
fulliríiðnaðinum
„ Við höfum notið mikilla framfara á
síðustu árum og erum orðnir iðnaðar-
ríki, en með mjög þróaðan landbún-
að,” sagði Om Yong Sik, sendiherra N-
Kóreu á íslandi, sem aðsetur sitt hefur
íStokkhólmi.
Hann hefur verið hér á ferð þessa
viku ásamt Wang Song Rim sendiráðs-
ritara til þess að viðhalda þeim dipló-
matísku tengslum sem N-Kórea og
ísland tóku upp 1973. — Þessa dagana
er Pétur Thorsteinsson, sendiherra ís-
lands hjá N-Kóreu einmitt staddur í N-
Kóreu að afhenda trúnaðarbréf sitt.
Diplómatarnir frá N-Kóreu hafa
heimsótt ritstjórnarskrifstofur blað-
anna hér í Reykjavík til þess að vekja
athygli á ýmsum hugðarefnum N-
Kóreustjórnar. Annað eru tillögur
hennar til sameiningar N- og S-Kóreu,
þar sem hún telur veru bandaríska her-
liðsins í S-Kóreu helztan þröskuld. Hitt
er nýjasta 10 ára áætlun um uppbygg-
ingu iðnaðar í N-Kóreu.
Iðnaðarþróunin segir sendiherrann
að hafi verið ör í N-Kóreu frá því 1946.
Er nú svo komið að það tekur ekki
nema 8 klst. að afkasta árs-
framleiðslunni, eins og hún var 1946.
En á næstu tíu árum er ætlunin að
ríflega þrefalda hana. T.d. er ætlunin
að ná upp slíkri raforkuframleiðslu, að
nemur 100 milljörðum kv-stunda í lok
þessa áratugar.
í N-Kóreu búa 17 milljónir manna
við drjúgar náttúrulegar auðlindir og
landgæði.
Om Yong Slk, sendiherra N-Kóreii
Hann afhenti trúnaðarbréf sitt i júli
fyrra, en Pétur Thorsteinsson er þess
dagana að afhenda sitt bréf i N-Kóreu.