Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1982, Síða 9
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982.
9
Útlönd Útlönd Útlönd
Gin- og klaufa-
veiki f Danmörku
Útflutningur á kjöti stöövaður til USA, Japan og Kanada.
— NorðmermogSví
Gunnlaugur A. Jónsson, frétlaritarl
DV í Lundi:
Tilkynnt var í Danmörku i gær að
fundizt hefði gin- og klaufaveiki þar í
landi í fyrsta sinn síðan 1970. Fréttin
hefur valdið mikilli örvæntingu inn-
an danska kjötiðnaðarins vegna
hinna alvarlegu afleiðinga, sem hún
kann að hafa fyrir danskan kjötút-
flutning.
Sjúkdómurinn uppgötvaðist á bæ
einum á Fjóni og var öllum kvígum
þar á bæ, 66 talsins, þegar í stað
slátrað.
Útflutningur Dana á nauta- og
svínakjöti til nýrra og hagstæðari
markaða í Japan, Bandaríkjunum og
Kanada var stöðvaður þegar i stað.
Útflutningurinn þangað er metinn á
tvo milljarða danskra króna á ári. —
Þessi lönd leyfa aðeins innflutning á
kjöti frá svæðum þar sem gin- og
klaufaveiki fyrirfinnst ekki. — Hins
vegar er reiknað með því að útflutn-
ingur til hinna stóru Evrópumarkaða
haldi áfram.
Norsk yfirvöld urðu fyrst til að
srinabúi á Jóttandi, en nauta- og svfnakjötsútflutningur Dana er meginstoð
þjóðarteknanna.
bregðast við fréttinni. Lýstu þegar í
stað yfir að innflutningur á kjöt- og
mjólkurvörum frá Danmörku yrði
stöðvaður frá og með deginum í dag.
— Sænsk yfirvöld stöðva einnig allan
innflutning á fersku kjöti frá Dan-
mörku. Sænskir tollgæzlumenn voru
þegar í gærkvöldi með sérstakan við-
búnað vegna málsins.
Að sögn danskra landbúnaðarsér-
fræðinga er ekki unnt að búast við að
útflutningur hefjist á ný fyrr en í
fyrsta lagi einu ári eftir að veikinnar
varð vart.
Danska landbúnaðarráðuneytið
tilkynnti í gær að öllum nauðsynleg-
um og tiltækum ráðstöfunum yrði
beitt til að einangra sjúkdóminn og
hefta útbreiðslu hans.
Natosinnar á íslandi komnir
á síður Rauðu stjörnunnar
í Sovétríkjunum
Dagblaðið Rauða stjarnan, sem er
málgagn Rauða hersins sovézka, birti í
gær grein um NATO-sinna á íslandi,
en hún er skrifuð af Jevgeni
Barbukho, yfirmanni APN-frétta-
þjónustunnar hér á landi.
Undir fyrirsögninni „Natosinnar
láta til sín taka”, skrifar Jevgeni:
„Undanfarið hafa hægrisinnaðir
fylgismenn Nato á íslandi — eins og
Olíuflóðið á heimsmarkaðnum, sem
leitt hefur til verðlækkana á olíu und-
anfarnar vikur, ber hæst í umræðum á
sérstökum aukafundi hjá OPEC,
samtökum olíuútflutningsríkja, er
kallaður var saman i dag.
Búizt er við að hin OPEC-ríkin
leggi á fundinum fast að Saudi Arabíu
að draga úr olíuframleiðslu sinni til
þess að vinna gegn þessari
markaðsþróun. — Framboð hefur
verið meira en eftirspurn.
Sumir olíumálaráðherrar aðildar-
ríkjanna telja að samkomulagi verði að
ná um að framleiða minna en þær 18,5
milljónir olíufata á dag sem stungið
hafði verið upp á í Quatar á óform-
kemur fram í íslenzkum blöðum —
látið til sín taka í því skyni að réttlæta
aðild landsins að Nato og þá stefnu að
landið skuli dregið inn í nýjan
hernaðarundirbúning. Fyrir skömmu
beitttu samtök um vestræna samvinnu
sér fyrir fyrirlestrum. Þar ræddu
Kjartan Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins, og
Jörgensen, yfirmaður Danahers,
legum undirbúningsfundi ráðherranna
6. marz. — Raunar segja sérfræðingar
að framleiðsla OPEC sé nú strax komin
niður fyrir það mark.
Olíusparnaðarráðstafanir hafa leitt
til minni eftirspurnar á oliu en ráð
hafði verið gert fyrir. Hefur verið hörð
samkeppni olíuframleiðenda um
markaðinn, þrátt fyrir samtök þeirra.
Sum aðildarrikin hafa lækkað verðið í
blóra við samkomulagið innan OPEC
en önnur bjóða undir borðið kosta-
kjör, sem jafngilda lækkunum.
Er svo komið samkeppninni að
margir ætla að framtíð OPEC sé í húfi
og ráðist af þessum aukafundi sem
hófst í morgun í aðalstöðvunum í Vín.
goðsögnina ,,um hættu á sovézkri
ógnun” i norðurhluta Evrópu. Hvöttu
þeir til aukinna hernaðarumsvifa i
þessum heimshluta. Svo og virkari
þátttöku íslands þar í.
Að áliti Kjartans Gunnarssonar ætti
að halda æfingar fyrir flugher og
sjóher Nato á íslenzku landsvæði og
gera ráðstafanir til að stækka her-
stöðina i Keflavík. Byggja skal nýja
herflugvelli i landinu og stærri
geymslur fyrir eldsneyti herflugvéla.
Einnig gáfu Samtök um vestræna
samvinnu út bæklinginn Varnir á
íslandi og er hann skrifaður af fyrrver-
andi formanni Alþýðuflokksins, Bene-
dikt Gröndal, sem er þekktur fyrir
virkan stuðning sinn við stefnu Nato.
(Til grundvallar bæklingnum er efni
fengið frá yfirstjórn herstöðvar USA i
Keflavík). Höfundur leitast við að
sanna að ísland eigi engan vaikost
nema taka virkan þátt í strategiskum
aðgerðum Bandaríkjanna og Nato á N-
Atlantshafi.
Fyrir skömmu kom fyrir augu
íslendinga „íslandsáætiun”, sem
unnin er af Menningarstofnun USA i
Reykjavík. Mikilvægast i þvi skjali er
sú niðurstaða, að á allan hátt verði að
vinna að því að gera íbúa landsins
hlynnta hernaðarumsvifum USA og
Nato og notfæra sér í þessum tiigangi
tslendinga og fulltrúa frá Norður-
löndunum þar sem höfundar þessarar
áætlunar eru þeirrar skoðunar að orð
Norðurlandamanna njóti meira traust
á íslandi heldur en ræður bandariskra
sérfræðinga.
Eins og sjá má er herferð Natosinna
i fullu samræmi við þessa áætlun
Menningarstofnunar USA.”
Framtíð OPEC
sögð ótraust
DAUÐAREFSING TIL TALS
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Breta, aftók með öllu að
teknar yrðu upp hýðingar afbrota-
manna i dag en slík hugmynd skaut upp
kollinum í umræðum í neðri málstofu
brezka þingsins í gær.
, ,Ég held ekki að líkamlegar refsing-
ar verði nokkurn tíma teknar upp aftur
i þessu landi,” svaraði hún John
Carlisle, einum af hægri mönnunum i
íhaldsflokknum.
Carlisle hafði spurt hvort hin mikla
aukning ofbeldisglæpa, eins og rána á
gangandi vegfarendum, táknaði að
taka þyrfti aftur fram böðulssvipuna.
Tilefni umræðunnar er áskorun lög-
reglumannafélagsins brezka um að
dauðarefsing verði tekin upp aftur, en
tveir lögregluþjónar hafa verið drepnir
við skyldustörf nú nýverið. Hún var af-
numin 1965.
Hægri menn í brezka þinginu hafa
tekið undir þá áskorun og á þingfundi í
gær svaraði William Whitelaw
innanríkisráðherra fyrirspurnum
þingmanna þar að lútandi. Hann
sagðist mundu senn leggja fyrir þingið
tillögur, sem miðuðu að því að auka
umboð lögreglunnar og efla lög-
gæzluna.
1979 felldi brezka þingið með yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða tillögu
um að gálginn yrði endurreistur og
hengingar teknar upp að nýju.
Thatcher forsætisráðherra var meðal
þeirra sem þá greiddu atkvæði með
hengingu. Hún sagði á þriðjudaginn að
það hefði enga þýðingu að bera upp
slíka tillögu aftur fyrr en að afstöðnum
næstu þingkosningum.
Ítalía
Borðstofusett
Veljum íslenzkt
veljum vandað
Napoleon
Frábærir
greiðsluskilmálar
Verzlið þar sem úrvalið
er mest og kjörin bezt.
Opið laugardag kl. 9—12.
Húsgagnasýning
sunnudag kl. 14—16.
Trésmiðjan
Dúnahúsinu
íðumúla 23
Sími 39700