Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1982, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982.
11
Eiaar M4r GuAmundsson tekur hér við verölaununum úr hendi Eiriks Hreins
Finnbogasonar, en til hægri má sjá þá Kristján Karlsson og Brynjólf Bjarnason,
framkvæmdastjóra Almenna bókafélagsins. (DV-mynd Bjarnleifur)
Almenna bókaf élagið veitir
viðurkenningar:
ékk 70 þúsund
fyrir fyrstu
skáldsögu sína
Hæsta viðurkenning sem veitt hefur
verið fyrir íslenzkt bókmenntaverk, eða
70 þúsund krónur, voru í gær afhentar
ungu skáldi og rithöfundi, Einari Má
Guðmundssyni, fyrir skáldsöguna
Riddarar hringstigans.
Það var Almenna bókafélagið sem
þessa viðurkenningu veitti en félagið
ákvað á 25 ára afmæli sínu, árið 1980,
að verja 100 þúsund krónum til
bókmenntaviðurkenningar fyrir áður
óprentað íslenzkt bókmenntaverk.
Mátti það vera í hvaða formi sem var
og rann skilafrestur út um síðustu ára-
mót. Höfundar sendu verk sín inn
undir dulnefni og alls bárust 35 hand-
rit, ljóð, skáldsögur, leikrit og fleira.
Þriggja manna dómnefnd, sem
skipuð var þeim Eiríki Hreini
Finnbogasyni, Gísla Jónssyni og
Kristjáni Karlssyni, ákvað að
upphæðin skyldi skiptast milli tveggja
höfunda. Einar fékk sem fyrr segir 70
þúsund krónur, en séra Bolli
Gústavsson í Laufási fékk 30 þúsund
krónur fyrir handritið Vorganga í
vindhæringi. Ákveðið var að veita
eina viðurkenningu til viðbótar að
upphæð 20 þúsund krónur en hana
hlaut ungur Reykvíkingur, ísak
Harðarson, fyrir ljóðabókina Þriggja
orða nafn.
Einar Már Guðmundsson er 27 ára
gamall og stundar nám í almennum
bókmenntum við Kaupmannahafnar-
háskóla. Eftir hann hafa áður komið út
þrjár ljóðabækur á islenzku og ein á
dönsku. Riddarar hringstigans er
frumraun hans í skáldsagnagerð. Hann
kvað bókina vera lýsingu á atburðum,
unhverfi og persónum í nýju hverfi í
Reykjavík á sjötta áratugnum. „Þetta
er ekki æviágrip nokkurs manns og
engin persóna í bókinni er til á skatt-
skrá,” sagði Einar. „Frásagnar-
aðferðin byggist eiginlega á því að full-
orðinn maður talar þarna með rödd
lítils stráks og lýsir nýjum heimi,
„Hverfinu”. Sagan er ein heild, en
hver kafli er þó sjálfstæður.”
Handrit séra Bolla er bæði í bundnu
og óbundnu máli og einnig dregur hann
upp myndir úr lífi barns. „Þetta er
eiginlega á mótum ljóðs og sögu og ég
styðst þarna við atburði og persónur
sem ég þekki frá bernskuárum mínum
á Oddeyri við Eyjafjörð,” sagði séra
Bolli, „en textinn er í hæsta máti
veraldlegur,” bætti guðsmaðurinn við.
í umsögn dómnefndar um ljóðabók
ísaks Harðarsonar segir að hún sé
eftirtektarverð tilraun til að Iýsa í
nútímalegum ljóðum leit ungs manns
að andlegri staðfestu og guðstrú. Ekki
vildi höfundurinn alveg kannast við þá
skilgreiningu en kvað erfitt fyrir sig að
segja um hvað ljóðin fjölluðu í raun og
veru. Til þess væru þau of nátengd
honum sjálfum. „Ætli þetta geti ekki
kallazt lýsing á almennri leit að lífstil-
gangi,” sagði þessi ungi höfundur.
Allar bækurnar þrjár verða gefnar
út af Almenna bókafélaginu í haust.
-JB.
Eskifjörður:
FER FYRRUM F0R-
INGIALLABALLA
INN FYRIR ÍHALD?
Veður skipast fljótt í lofti pólitíkur
svo sem kunnugt er. Nú hefur verið
gengið frá lista Sjálfstæðisflokksins á
Eskifirði fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar í vor. Annað sæti listans
skipar nú Hrafnkell A. Jónsson sem
var fyrsti maður á lista Alþýðubanda-
lagsins á Eskifirði fyrir síðustu
kosningar.
Alþýðubandalagið náði þá tveimur
mönnum í bæjarstjórn og Sjálfstæðis-
flokkurinn einnig. Fari likt og síðast
má því búast við að Hrafnkell sitji áfram
í bæjarstjórninni, en á öndverðum
kanti.
Fyrsti maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins er Guðmundur Á.
Auðbjörnsson málarameistari. í þriðja
sæti er Þorsteinn Kristjánsson
skipstjóri. 4. Ragnhildur Kristjáns-
dóttir húsfrú. 5. Georg Halldórsson
skrifstofumaður. 6. Anna Ragna
Benjamínsdóttir ferskfiskmatsmaður.
7. Skúli Sigurðsson vélvirki. 8. Friðrik
Þorvaldsson nemi. 9. Vilhjálmur
Björnsson vörubifreiðarstjóri. 10.
Snorri Jónsson útgerðarmaður. 11.
Jóna Mekking Jónsdóttir verzlunar-
maður. 12. Guðmundur Stefánsson
sýsluritari. 13. Ragnheiður Hlöðvers-
dóttir búðarmær og 14. Karl Símonar-
son vélvirkjameistari.
Emil, Eskifirði.
Listi óháðra
á Vatnsleysu
Listi Óháðra kjósenda í Vatns-
Jeysustrandarhreppi, H-listi, var á-
kveðinn í prófkjöri sl. sunnudag.
Listinn er þannig skipaður: 1. Kristján
Einarsson eftirlitsmaður, 2. Vilhjálmur
Þorbergsson bílstjóri, 3. Sæmundur
Þórðarson skipstjóri, 4. Hreinn
Ásgrímsson skólastjóri og 5. María
Jónsdóttir húsmóðir.
-ÓEF.
FÖSTUDAGSKVÖLD
IJIIHÚSINUI í J15HÚSINU
0PIÐ DEILDUM TIL KL.10 I KVÖLD
NÝJAR VÖRUR í ÖLLUM DEILDUM
MATVÖRUR
FATNAÐUR
HÚSGÖGN
BYGGINGAVÖRUR
TEPPI
RAFTÆKI
RAFLJÓS
REIÐHJÓL
Ótrúloga hagstæðir
greiðsluskilmálar ð
flestum vöruflokkum.
Allt niður í 20% út-
borgun og lánstimi allt
afl 9 mánuðum.
JIS
Jón Loftsson hf.
/A a a a a a
I Ciiiij iHD l
, H í
; 'ca
UíJOlV
Hringbraut 121 Sími 10600
0PIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 9-12