Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1982, Side 14
14
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982.
Spurningin
Hvaða íslenzkir
söngvarar eru beztir
Halldóra S. Róbertsdóltir nemi: Ja,
það eru Pálmi Gunnars, Diddú og
Björgvin Halldórs.
Áslaug Harðardóttir, vinnur hjá heild-
sala: Að minu mati bera þau Diddú og
Bubbi Morthens af.
Jón Styrmlsson, segist ekki gera neitt:
Bubbi Morthens, Ragnhildur Gísla-
dóttir og söngvarinn í Start.
Helga S. Magnúsdóttir nemi: Mér
finnst Jóhann Helgason, Björgvin
Halldórs og Ragnhildur Gísla bezt.
Bjarni Tómasson málarameistari: Já,
þetta er erfið spurning. Mér fannst
hann Stefán íslandi alltaf svo róman-
tískur og einnig var GuðmUndur Jóns-
son góður. Af kvenþjóðinni eru þær
Guðrún Á. og María Markan
langbeztar.
Vilhjálmur Svan, starfar hjá SÁÁ: Já,
það er nú það, ætli maður segi ekki
Pálmi Gunnars og hún þarna hjá
Grýlunum, hún Ragnhildur.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Um hækkaðan meðlagsaldur:
Sjaklan heyrast mótmæB
frá blessuðum feðrunum
—þótt oft sér ærin ástæða til, að mati lesanda
3254—4703 skrifar:
Ég vil senda smáaðvörun til
islenzkra kvenna áður en þær ganga
út í hjónaband með fráskildum
mönnum, sem eiga börn, því barna-
meðlögin eru ekki neinn smáliður í
heimilishaldinu og ekki sízt þegar þau
eiga að greiðast til giftingaraldurs (nú
kr. 924,- á mánuði).
í okkar ísl. þjóðfélagi er verið að
færa aldursmörk neðar, t.d. kosn-
ingaaldur og fjárráð, sökum aukins
þroska ungs fólks, en þá um leið er
verið að hækka aldurinn.
Ég varð fyrir því „óláni” fyrir 12
3254—4703 telur ósanngjarnt aö gera mönnum aó greiða meðiag meó fullorðnum „börnum” sem kannski eru í vinnu og hafa
hærri tekjur en feðurnir.
-DV-mynd: Ragnar TRh.
árum að kynnast einum fráskildum
með 2 börn, sem er nú maðurinn
minn. Eignir hans voru náttúrlega
engar; konan fékk ibúðina,
mublurnar, sjónvarpið og allt, svo
byrja mátti upp frá grunni.
Á þeim timamótum þegar eldra
barnið varð 16 ára komu ný lög um
að greiða skyldi með því til 17 ára
aldurs. Var þá móðirin gift aftur og
flutt í sjávarpláss, „barnið” farið út
á vinnumarkaðinn og hafði meiri
tekjur en faðirinn, sem þá var með
heimili og börn. Meðlagið kom sér
vel, þvi 17 ára er bílprófsaldurinn og
fáir drengir menn nema þeir eignist
bilinn strax.
Nú varð yngra barnið hans 17 ára
fyrir sl. áramót og tilkynningu fékk
hann í gær, um meðlagsskuld. Nú á
að greiða fullt gjald til 18 ára aldurs.
Mér finnst lítil sanngirni í í því að
borga sama gjaldið fyrir smábörn,
sem eru á dagvistunarstofnunum, og
fullorðið fólk.
Ég hef sjálf þurft að vinna allan
minn búskap utan heimilis til þess að
endar náist saman, með okkar börn í
gæzlu, og veit hvað það kostar.
Við verðum að taka þessu með
jafnaðargeði, ekki þýðir að deila við
dómarann, þótt ég sjái eftir meðlagi
til auðugs fólks, í einbýlishúsum og
með allan lúxus, og-engin munur
gerður á þótt forráðamaður barns-
sins giftist aftur og verði þar með
stöndugur.
En sjaldan heyrast mótmæli frá
blessuðum feðrunum. Þeir taka þessu
öllu með ró og mætti halda það ein-
göngu þeirra sök að börn fæðast í
þennan heim.
A ÍSLAND AÐ STANDA NORÐURLANDA-
BÚUM OPID TIL ATVINNU OG BÚSETU?
—Stjómmálamennimir eru miklir verzlunarmenn
Dr. Benjamín H. J. Eiríksson skrifar:
Þetta verður aðeins lítill hópur, sagði
Svavar ráðherra í útvarpinu að morgni
16. marz. Hann var nýbúinn að skrifa
undir samning erlendis þess efnis, að
Ísland standi Norðurlandabúum opið
til atvinnu og búsetu. Til allrar ham-
ingju, þá er það eftir, að rétt yfirvöld
staðfesti samninginn. En með því hve
miklir verzlunarmenn stjórnmálamenn-
irnir nú einu sinni eru, þá er óhjá-
kvæmilegt, að árvakrir menn og þjóð-
holiir séru með ugg. Það má strax gera
ráð fyrir því, að þarna sé nýtt Gerva-
sonimál í uppsiglingu. Hvers vegna?
„Friðarsinninn” Gervasoni kvaddi
þannig, að hann lýsti því yfir, að hann
væri ekki friðarsinni. Hann vildi aðeins
ekki bera vopn í her þáverandi Frakk-
landsforseta. Þegar kommúnistar
komust svo í stjórn, þá var hinn
„umkomulausi” Gervasoni strax settur
í þýðingarmikla opinbera nefnd.
Þótt Svavar hafi veitt Gervasoni
atvinnuleyfi með hraði, varð liinn
síðarnefndi samtaðfara.Það voru fyrst
og fremst falsanir hans, sem urðu
honum að falli. Með nýju samn-
ingunum yrði sett undir þess háttar
leka. Sendimaðurinn þyrfti þá aðeins
að hafa borgararétt einhversstaðar á
Norðurlöndum. Þá standa honum
opnar dyr á íslandi. Erfiðleikar ráð-
herrans tilheyrðu þá liðinni tíð. En
fyrir aðra hafa nýjar hættur skyndilega
komið til.
Moldvörpur
í lok stríðsins streymdi fólk frá
austantjaldslöndunum vestur á bóginn.
Þetta var kallað að greiða atkvæði með
fótunum. Og þessi straumur hefir
haldið áfram. Margir hafa komið til
Norðurlanda. Út í þennan straum hafa
leyniþjónustur kommúnistaríkjanna,
fyrst og fremst Sovétríkjanna, dreift
sendimönnum sínum. Þeir koma sér
fyrir meðal hinna lýðfrjálsu þjóða,
sumir til að njósna, sumir til mannrána
eða morða, og enn aðrir bíða þess tíma,
að í þá verði hnippt og við þá sagt:
tíminn er kominn. Borgarar hinna lýð-
frjálsu ríkja þurfa því að halda vöku
sinni. Með verzlun nær óvinurinn
mörgu. Það er ekki einleikið með há-
vaðann út af Helguvík. Og það er ills
viti, að ráðherra skuli leyfa sölu á
íslenzku landi með húsi á, til erlends
stórveldis, sem á hér fyrir miklar fast-
eignir — gegn sölu á fiskflökum, eins
og stóð i einu blaðanna.
Lítill hópur, sagði Svavar. Já,
Svavar hefír fyrst og fremst áhuga á
„litlum hópi”. Hann yrði samt stærri
en einn Gervasoni. Og án vafa yrði
grugg í hópnum.
Nauðsynlegt að
halda vöku sinni
í Kyrrahafi, Indlandshafi og í Karí-
bahafi eru litlar eyþjóðir með nýfengið
sjálfstæði. Þær eiga það til að vakna
morguninn við þá frétt, að komnir séu
nýir valdhafar. „Lítill hópur” hafði
rænt völdum! meðan þjóðin svaf.
Lítilli þjóð getur því komið mikið
ógagn frá litlum hópi: njósnir, undir-
róðursstarfsemi, morð, mannrán og
jafnvel valdarán. Um þessa hluti hefir
þjóðunum hlotnast mikil — en ekki að
sama skapi skemmtileg — reynsla
seinustu áratugina. Það getur ekki
verið, að forystumenn íslenzku þjóðar-
innar hafi gleymt aðferðum komma-
foringjanna, þegar þeir voru að eyði-
leggja lýðræðisflokkana í Austur-
Evrópu. Það er mikil nauðsyn, að þeir
og þjóðin haldi vöku sinni og hafni
skýrt og skorinort samningi Svavars.
Til forráðamanna sjónvarpsins:
DALLAS AFTUR SEM FYRST
— eða verðum við að fara í kröfugöngu?
Erla Jakobsdótlir skrifar:
Við erum að velta því fyrir okkur
allmörg, hvermg hægt sé að troða því
inn í hausinn á ráðamönnum sjón-
varpsins að Dallas-þættirnir voru
mjög vinsælir og að fólk vill fá að sjá
meiraaf þeim.
Hvernig væri að gera sér grein fyrir
því að fólk vill einfaldlega fá að ráða
sínum smekk sjálft. Flestir, sem ég
þekki, eru mjög óhressir vegna þessa
ráðríkis sjónvarpsmanna. Við
skorum þvi á ráðamenn þessara mála
að sjá til þess að sýningar á Dallas
verið hafnar aftur hið snarasta.
Annars — já, við förum kannsi
bara í kröfugöngu. Það virðist oft
duga vel nú til dags.
„Þetta verður aðeins lítill hópur,” sagði
Svavar ráðherra I útvarpinu, að morgni
16. marz. Hann var nýbúinn að skrifa
undir samning erlendis þess efnis að
tsland standi Norðurlandabúum opið til
atvinnu og búsetu — segir m.a. i bréfi dr.
Eirikssonar.