Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1982, Side 15
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982.
15
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
„Samkvæmt þeim fræðum, sem ég hef numið á lffsleiðinni, um hesta, þá fer hesturinn
á mvndinni á greiðu tðlti og hefur því ekki verið lagður,” segir hestamaður.
Svar við bréff i hestamanns:
Þá er bar-
áttan byrjuð
Þá er baráttan byrjuð. í fyrrasumar
birtust reglulega í dagblaðinu Vísi frétt-
ir frá hestamótum. Vegna þeirra skrifa
spunnust umræður um hvað væri tölt
og hvað væri skeið. Sýndist sitt
hverjum og hefur ekki fengizt enn
niðurstaða.umþaðmáliSigurjón Valdi-
marsson blaðamaður átti verulegan
þátt í þessum skrifum og fannst honum
að vissir hestar bæru sig ekki sem
skyldi á skeiði og væri jafnvel um tölt
að ræða. Og ekki hefur nema eitt hesta-
mót farið fram á árinu 1982 þegar um-
ræður hefjast á ný. Hestamaður skrifar
og er með athugasemdir um mynda-
texta sem birtist með mynd frá snjó-
kappreiðum sem hestamannafélagið
Fákurhélt 13. marz síðastliðinn.
Þáer því fyrst til aðsvara að ég nefni
tölt þetta og skeið snjótölt og snjóskeið
vegna þeirra aðstæðna sem ríktu.
Árlega hafa verið haldnar ískappreiðar
og ístölt og hefur enginn gert athuga-
semd við það orðalag. Eins hefur stökk
hesta á víðavangi verið nefnt víða-
vangshlaup og orðið hindrunarstökk er
dregið af þeim aðstæðum sem ríkja er
stökkið fer fram. Ég er ekki að búa til
nýja gangtegund heldur einungis að
lýsa því hvað var að gerast og hvernig. í
öðrum íþróttum tíðkast svipað orða-
lag. í ralli er orðið rallí cross notað yfir
rall sem fer fram við vissar aðstæður,
eins er talað um ísralli. Hlaup eru oft
kennd við stað þann sem hlaupið er á
svo sem Grýlupottahlaup og Kamba-
hlaup og dylst engum að hlaupið er við
Grýlupotta og Kamba, en ekki að
hlaupið sé á einhvern sérstakan Grýlu-
pottahlaupshátt eða Kambahlaupshátt.
Hestamaður segir svo orðrétt:
„Samkvæmt þeim fræðum sem ég hef
numið á lifsleiðinni um hesta þá fer
hesturinn á myndinni á greiðu tölti og
hefur þvt ekki verið lagður.” Út frá
þessum orðum gerir hann sín orð að
mínum en skrifar að einungis sé hægt
að leggja hesta á skeið, því ég skrifaði
hvergi að hesturinn væri á tölti heldur
skeiði. Mynd sem fylgir þessu bréfi er
tekin í skeiðröð þeirri er Gammur
hvelllá 150 metra skeiðið á 15,8
sekúndum og sannar að hesturinn
skeiðaði sprett þennan. Á mörgum
myndum sem ég hef tekið af frægustu
skeiðhestum i íslandi bregður fyrir
svipaðri mynd og þeirri sem birtist á
mánudaginn var af Gammi. Hesturinn
virðist vera í töltstöðu en þannig staða
kemur oft fyrir þegar hágengir skeið-
hestar eru að hefja svif. Má þar nefna
Skjóna á Móeiðarhvoli, sem á islands-
met í 250 metra skeiði svo og 150 metra
skeiði, en einnig Frama og Fannar svo
nokkrir séu nefndir. Þær myndir, séu
þær teknar út úr skeiðröðinni, eru þó
engin sönnun þess að hesturinn hafi
ekki skeiðað. Hitt er svo það að hestar
skeiða á mismunandi hátt. Sumir eru
hágengir og fjórtaktaðir en aðrir bera
fæturnalægra.
I lok þréfsins varpar hestamaður
fram spurningum. Þeim er til að svara
að ég hef ekki sagt að tölt sé skeið og
öfugt og því er það ljóst að tölt er
hvorki skeið né snjóskeið og skeið er
hvorki tölt né snjótölt.
Trausti Þór Guðmundsson hvelllegur Gamm i skeiól á snjókappreiöum iþróttadeildar
hestamannafélagsins Fáks,
(Ljósm. E.J.)
Vegna myndatexta:
Er hægt að hvell-
leggja hest á „snjótölt”
eða „snjóskeið”?
Hestamaður hringdi:
Á forsíðu blaðsins mánudaginn 15.
marz birtist mynd af kappreiðum.
Myndatextinn var svohljóðandi:
„Hestamannafélagið Fákur stóð fyrir
snjótölti og snjóskeiði i gær. Hér sést
Trausti Þór Guðmundsson hvellleggja
Gamm en þeir félagar sigruðu í 150 m
skeiði hesta, 8 vetra og eldri, á 15 sek-
úndum.” Svo mörg voru þau orð.
Við lifum svo sannarlega á byltingar-
timum og fátt er eins og það var —
jafnvel fyrir fáum árum.
Allt þar til ég las þetta á prenti i blað-
inu ykkar hafði ég heyrt talað um að
leggja hesta á skeið en ekki aðrar
gangtegundir. Ég hafði heldur ekki
heyrt nefnd þessi afbrigði gangtegund-
anna sem þarna eru kölluð „snjótölt”
og „snjóskeið”.
Samkvæmt þeim fræðum, sem ég
hef numið á lífsleiðinni, um hesta, þá
fer hesturinn á myndinni á greiðu tölti
og hefur þvi ekki verið lagður.
Ég treysti þvi að þeir sem skrifa
mvndatexta 1 blaði vkkar hafi þekkingu
spyr
hestamaður
á viðfangsefninu. Því bið ég þann, sem
þennan texta skrifaði, að skýra fyrir
mér og öðrum, sem álika illa eru á vegi
staddir með þekkingu á þessum nýjustu
afbrigðum hestamennskunnar, það
sem í þessum texta felst.
Er hægt að hvellleggja hest, hvort
sem það er á „snjótölt” eða „snjó-
skeið”? Eða heitir ef til vill sú gangteg-
und, sem áður hét tölt, nú snjóskeið?
Ef svo er, er þá töltið, sem nú heitir
snjóskeið, jafngilt til sigurs i skeið-
keppni og skeiðið sem hestar voru
lagðir á fyrrum?
m
-getraunin á fuiiu
SUZUKI-jeppi
Kannski fáið þið fjölhæfan
SUZUKI*ppa
í lok aprfl
%
wiABWÆmm
ÁSKRIFTARSÍMI27022