Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1982, Síða 26
34,
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982.
í gærkvöldi I gærkvöldi
Kærulausir íslendingar
Andlát
Gróa Guðnadótlir frá Unnarholti lézt
13. marz. Hún var fædd 31. ágúst
1913, foreldrar hennar voru Elínborg
Pálsdóttir og Guðjón Jónsson Gróa
giftist Val Lárussyni, sem lézt fyrir
nokkrum árum, og eignuðust þau einn t
son. Gróa verður jarðsungin í dag
klukkan 16.30 frá Fossvogskapellu.
Elias Símon Jónson, Hringbraut 85
Keflavík, verður jarðsunginn frá Ytri-
Njarðvikurkirkju laugardaginn 20.
marz kl. 13.30.
Garðar Ingi Reynisson, Aðalgötu 2
Keflavik, verður jarðsunginn frá Kefla-
víkurkirkju laugardaginn 20. marz kl.
14. Jarðsett verður í Innri-Njarðvík.
Lýður Jónsosn vegaverkstjóri var jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni í morgun
klukkan 10.30.
Listasöfn
GALLERY LÆKJARTORG: — Kynning á graHk.
Ingiberg Magnússon heldur um þessar mundir
sýningu á verkum sínum í Gallery Lækjartorg. Opið
virka daga.frá kl. 10—18, laugardaga frá kl. 14—18,
sunnudaga frá kl. 14—22. Sýningin stendur til 21..
marz.
NÝLISTASAFNIÐ — Þór Elías Pálsson sýnir.
Hann sýnir þar 5 verk, 4 myndlistaverk unnin í Ijós-
myndir og eru samansett úr fleiri en einni ljósmynd,
svo og eitt hljóðverk. Þór lauk námi frá Myndlista-
og handíðaskóla Islands 1978 og hefur nú undan-
farin þrjú ár stundaö nám i Hollandi.
Sýningin er opin daglega frá 16—22 og frá 14—22
um helgar.
Gallerí 32: Á laugardag opnar Sveinn Eggertsson
sýningu á olíu- og vatnslitamyndum.
I.istasafn ASÍ: Hjálmar Þorsteinsson frá Akranesi
sýnir olíu- og vatnslitamyndir.
Gallerí Langbrók: Sýning á málverkum Brian Pilk-
ington lýkur á laugardag, en á mánudag opnar sýn-
ing á verkum einnar Langbrókarinnar.
Listmunahúsið: „Gengið í smiðju” heitir sýning,
þar sem ísienzkir gullsmiöir sýna. Skúlptúr, skart-
gripir o.fl. Sýningin er opin ki. 10—18 á virkum
dögum, nema á mánudögum. Þá er iokað. Um heig-
ar er opið kl. 14—22.
Höggmyndasafn Ásmundar Sveinssonar: Safnið er
opið þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl.
14—16.
Mokka: Stefán frá Möðrudal sýnir olíu- og vatns-
iitamyndir.
Torfan: Sýning á ijósmyndum frá starfsemi Alþýðu-
leikhússins.
RAUÐA HÚSIÐ AKUREYRI: Guðrún Auðuns-
dóttir og Guðbergur Auðunsson hafa opnað sýningu
á textílverkum ásamt collage myndum og
tréskúiptúr. Sýningin er opin daglega frá klukkan
16.00—20.00.
MINNINGARSÝNING á verkum Ragnheiðar Ream
verður opnuð á laugardag á Kjarvalsstöðum. Ragn-
heiður starfaði lengstum i Bandaríkjunum en hafði
tekið þátt í ófáum sýningum hérlendis.
SAMSÝNING í Norræna húsinu: Hjörleifur Sig-
urðsson og Snorri Sveinn Friðriksson opna samsýn-
ingu í Norræna húsinu klukkan 15.00 á laugardag og
mun hún standa fram til næstu mánaðamóta.
Eftir að hafa hlustað á útvarpið í
gær fórum við hjónin að ræða um
það hvort íslendingar væru forlaga-
trúar eða aðeins kærulausir. Það kom
fram hjá Óla H. Þórðar að íslending-
ar nota ekki bílbelti. Vissum við það
svo sem fyrir. Siðar um kvöldið var
síðan þáttur um kjarnorkustríð þar
sem sagt var frá viðbúnaði manna um
alla Evrópu við að gera sér geislaheld
byrgi í kjallaranum hjá sér. Ekki held
ég að neinn einasti íslendingur hafi
gert svoleiðis nokkuð. Við virðumst
bara láta okkur fljóta sofandi að
feigðarósi og hugsum um leið „þetta
á fyrir mér að liggja og ég get engu
um það breytt”. Skrýtinn
þankagangur.
En nóg um það. Útvarpsleikritið
var auðvitað það sem ég hafði mest
gaman af að hlýða á. Ég hef löngum
haft gaman af Agöthu Christie og
hún brást ekki vonum mínum, gamla
konan, í gærkvöldi. Leikritið sem
framan af virtist ætla að verða
væmin ástarsaga varð í lokin veru-
lega spennandi sakamálaleikrit. Það
er langt síðan ég hef skemmt mér eins
vel yfir útvarpsleikriti og í gær-
kvöld. Oft á tíðum hefur mér hrein-
lega leiðzt allt það vandamálarugl
sem fram hefur komið í þeim. En
þetta leikrit bætti mörg slík upp.
Sigúrjón Fjeldsted skólastjóri sagði
á Vettvangi hjá Sigmari og Arnþrúði
að skólabörn væru dauðþreytt allan
daginn. Vöknuðu snemma og færu
seint að sofa. Mig skal ekki undra.
Því nær alltaf þegar ég kem til vina
minna sem eiga börn eru þau vakandi
fram undir miðnætti þó skóladagur
sé að morgni. Foreldrarnir eru nefni-
lega líka þreyttir og hafa hreinlega
ekki orku til þess að reka börnin í
háttinn með látum. Því fá þau að
vaka þangað til sjónvarpið er búið.
en hvað er til ráða? Líklega ætti
verkalýðshreyfíngin að berjast fyrir
því í næstu samningum að vinna
minnki verulega og allir séu ekki
alltaf svona þreyttir.
Þegar Sveinn Einarsson byrjaði
með Kvöldstundina sína féll ég fyrir
freistingu. 1 videóinu var verið að
sýna eina af þeim myndum Woody
Allen sem ég hef ekki séð. Og ég
settist við að glápa. Sem gerir það að
verkum að í allan dag verð ég þreytt
og uppgefin eftir að hafa vakað fram
á nótt.
DS
Úrslití VinsœldavaliDV
veröur haldin á
fimmtudaginn 25. marz
Þeir fáu miðarsem enn eru til
verðaseldirá IBIDDaVIDWVaVT
/ dag, föstudag kl. 16 til 18
og á morgun, laugardag, kl. 16 til 18.
Verð kr. 395,-
Tónleikar
Sýning íslenzku óperunnar
Nk. föstudag, 19. marz, verður 30. sýning íslenzku
óperunnar á Sígaunabaróninum eftir Jóhann
Strauss.
Uppseit hefur verið á ailar sýningar til þessa og
undirtektir áheyrenda mjöggóðar.
Páll Pampichler Pálsson tók við hijómsveitar-
stjórn af Robin Stapietone á 22. sýningu. í aðalhlut-
verkum eru m.a. Anna Júliana Sveinsdóttir, Garðar
'Cortes, Halldór Vilhelmsson og Ölöf Kolbrún
Harðardóttir, ásamt kór og hljómsveit Islenzku
óperunnar.
Sýningar nú um helgina verða: föstudag kl. 20.00,
laugardag kl. 16.00 (ath. breyttan sýningartíma) og
sunnudag kl. 20.00.
Einsöngs- og kórtónMkar
Ragnheiður Guðmundsdóttir og Kór Tónlistarskól-
ans í Njarðvík halda tónleika í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju, iaugardag 20. marz kl. 16.00, i Samkomu-
húsinu Sandgerði sunnudag 21. marz kl. 14.00 og í
Tónlistarskólanum Seltjarnarnesi sunnudag kl.
17.30.
Á söngskránni er blandað efni íslenzkt og erlent
og má fullyrða að þar verður eitthvað við alira hæfi.
Kórinn hefur verið mjög virkur i vetur og er meðai
annars stefnt að öðrum tónleikum og söngferða-
lögum i vor.
Stjórnandi Kórs Tónlistarskólans í Njarðvik og
undirleikari á tónleikunum er Gróa Hreinsdóttir.
Guðný Guðmundsdóttir og
Mark Reedman á hádegis-
tónleikum
14. og næMseinustu Háskólatónieikar vetrarins
verða i föstudagshádeginu 19. marz i Norræna hús-
inu.
Þá leika Guðný Guðmundsdóttir og Mark Reed-
man þrjú stutt verk fyrir fiðlu og víólu:
a. Dúett nr. 2, op. 12 eftir þann bæheimska frum-
kvöðul sinfónískrar tónlistar, Karel Stamits. (1745—
1801).
b. Dúó K 424 eftir Wolfgang Amadeus Mozart frá
1783.
c. Passacaglia eftir Hándel í einhverri umskrifun
eftir Norðmanninn Johan Halvorsen.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.30, standa um það bil
hálfa klukkustund og eru ölium opnir fyrir 20—30
kr. eftir þjóðféiagsstöðu.
Tónleikar
Næstkomandi sunnudag (sunnudaginn 21.3) verða
tónleikar i Háteigskirkju. Kór og Hljómsveit Tón-
listarskólans í Reykjavík flytja verk eftir Bach og
Brahms. Stjórnandi er Marteinn H. Friðriksson, ein-
söngvari Rut Magnússon. Tónleikarnir hefjast kl. 17
og er aðgangur ókeypis.
SSlSÍSíSlSlSISLSZSZSZSISiSESlSZSlSTLSlSÍSTSTLSZSLSTSZSZSTSiLSZSISlSlSlSiLSlSiLSTSTSZSZSZSTp
UPPBOÐ
Ákveðið er á næstu mánuðum uppboð á frí-
merkjum, mynt, bókum, málverkum og öðrum
listmunum HLEKKUR HF.
Skólavörðustíg 21 A.
Óskum eftir efni.
Sími29820.
^zszszszsiszsmszszsEszsirzszsiszszszrzszsisTszsiszszszszszszsz.'sszszszsíszsiszszszsi!
Þjónustuauglýsingar //
Jarðvinna - vélaleiga
MCJRBROT-FLEYQCIN
MEÐ VÖKVAPRESSU
HLJÓÐLÁTT RYKLAUST
! KJARNABORUN!
NJ4II HotMnwi, Vételtly
SIMI 77770 OG 78410
Garðyrkja
Húsdýraáburður
i Dreift ef óskað er, sanngjarnt
verð.
Einnig tilboð.
Guðmundur, simi 77045 og 72686.
Ennfremur trjáklippingar.'
Verzlun
attóturíntók unörabrrnlb
I JasmÍR fef
k Grettisqötu 64- S: 11625
| Rýmingarsala
Allur fatnaður á niðursettu verði, kjólar á 200—300 kr.,
3E blússur á 90—120 krM pils á 175 kr., vesti (vatteruö) á kr.
2 150, kjóll-f vesti (sett) á 400 kr., klútar 20—40 kr., pils +
blússa (sett) á 300 kr., pils + blússa + vesti (sett) á 500 kr. og
2 margt fleira. 25% afsláttur af metravöru. Einnig mikið úr-
W val austurlenzkra handunninna listmuna og skrautvara til
■2 heimilisprýði og gjafa.
OPIÐ A LAUGARDÖGUM.
attóturlettók unöraberðlö
Þjónusta
TIL AUGLÝSENDA
SMÁAUGL ÝSINGADEILD
Dagblaðsins & Vísis
eríÞVERHOLT111
og síminn er27022.
Tekið er á móti auglýsingum
mánudaga—föstudaga fráki. 9—22
laugardaga frá kl. 9—14
sunnudaga frá kl. 14—22.