Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1982, Qupperneq 29
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982.
37
Sviðsljósið
Sviðsljósið
jSviðsljósið
Nýjungar í
hárgreiðshi
Heildverzlun Halldórs Jónssonar
hélt nýlega vörukynningu í skemmti-
staðnum Hollywood á ýmsum
hárgreiðsluvörum sem fyrirtækið
hefur á boðstólum. Það voru hár-
greiðslumeistararnir Villi Þór og Sól-
veig Leifsdóttir sem kynntu vörurn-
ar, en Sólveig sigraði sem kunnugt er
á sterku hárgreiðslumóti í Royal Hall
í Lúndúnum.
Á vörukynningunni fengu áhorf-
endur að sjá útfærslu Sólveigar á
Gala-greiðslu, en svo nefnist greiðsla
hennar er vann til verðlauna ytra.
Módel hennar Hildigunnur Hilmars-
dóttir, var auk þess klædd sigur-
kjólnum frá sömu keppni, en eins og
fram hefur komið i blaðinu var það
móðir Sólveigar, María Auðun
Guðnadóttir sem hannaði og saum-
aði þennan margrómaða kjól.
Villi Þór sýndi nýjustu línuna i
herragreiðslum og gat þar að lita all
nýstárlegar greiðslur sem hljóta að
teljast fara ótroðnar brautir miðað
við það sem hefur áður þekkst í hár-
tískunni hér á landi.
Myndirnar hér á síðunni tók ljós-
myndari blaðsins Friðþjófur, af
vörukynningunni í Hollywood.
KoUurínn á Samúofí Grydvik full frágroiddur ef svo má segja og feg-
mannlegt handbragö hárgreiösiumeistarans leynir sár ekki.
Femoudou Don Moye, trommuleikari Art Ensamble of Chicago i táknrænum búnmgi.
MM fengur fyr-
ir jazzunnendur
Art Ensamble of Chicago heldur tónleika hér á landi á vegum
Jazzvakningar.
— Við viljum leyfa okkur að halda
því fram að þetta sé meiri háttar tón-
listarviðburður, segir örn Þórisson,
en hann og félagar hans í Jazz-
vakningu hafa fengið hingað til lands
hljómsveitina Art Ensamble of
Chicago, og heldur hún tónleika í
Broadway 5. april nk.
Hljómsveitin er skipuð 5 mönnum:
Leister Bowie, trompet, Roscoe
Mitchell, blásturshljóðfæri, Joseph
Jarman, blásturshljóðfæri, Malachi
öm Þárisson: Mikii gróska t starfssemi Jaxzvakningar.
Favors Magoustous, bassi, ásláttur
og Famoudou Don Moye, trommur,
ásláttur. Tvö undanfarin ár hefur
hljómsveitin sigrað með yfirburðum í
vali allra jazztimarita á hljómsveit
ársins.
— Þeir hafa spilað.saman í 20 ár,
segir Örn. — Þeir reka þó hver sina
hljómsveitina og hal'a á undan-
förnum árum aðeins spilað saman í
nokkra mánuði á ári.
Það er heldur ekki hlaupið að
því að fá þá til að konia og spila,
en við notuðum tækifærið núna að
nýlokinni hljómleikaför þeirra um
Evrópu. Þar héldu þeir 40 tónleika á
45 dögum og var uppselt á þá alla. Og
við hefðum alls ekki haft ráð á að fá
þá hingað nema af þvi að þeir hafa
sýnt okkur íslendingunt þá sérstöku
vinsemd að slá mjög af venjulegum
greiðslukröfum sínum. T.d. þurfum
við ekki að borga flutninginn á
hljóðfærum þeirra, en hann nemur
hvorki meira né minna en 1 1/2
tonni.
— Félagarnir í Art Ensamble of
Chicago Icika alls ekki hefðbundinn
jazz, heldur má segja að tónlist þeirra
spanni allt litróf svartrar tónlistar. 3
þeirra koma fram í gervum sem
minna á forna ættbálka í Afríku,
enda eru einkunnarorð hljómsveitar-
innar: Great Black Music — Ancient
Fo The Future.
Jazzvakning hefur nú starfað af
mikilli grósku í rúmlega 5 ár og stað-
ið að fjölda tónleika, þar á meðal
margra erlendra gesta. Að sögn
Arnar má þó telja Art Ensamble of
Cicago einn veigamesta feng sem rek-
ið hefur á fjörur þeirra félaga til
þessa. Jazzvakning vinnur um þessar
mundir einnig að útgáfu jvöfalds al-
búms með Gunnari Oripslev og verð-
ur það þriðja platan sem kemur út á
vegum félagsins. JÞ
Sófvoig Leifsdóttir hárgrefösJumeistarí 1. tv. ásamt módek sinu Hildi-
gunni Hilmarsdóttur, sem er iklædd hinum margrómaöm veröiaunakjói.
Karimennina á myndinni kunnum viö þvi ndöur okkieð nafngrekm.