Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1982, Side 31
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982.
Útvarp
Sjónvarp
Veðrið
Kvikmyndir Kvikmyndir
1‘tvarp
| Föstudagur
19. mars
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-'
ingar.
12.20 Fréltlr. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Á frívaktlnni.
Sigrún Sigurðardóttir kynnir óska-
lög sjómanna.
15.10 „Vitt sé ég land og fagurt”
eftir Guðmund Kamban. Valdimar
j Lárusson leikari les (29).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
í fregnir.
16.20 Glefsur. Sigurður Helgason
í kynnir fjögur íslensk ljóðskáld. 1
' þessum fyrsta þætti kynnir hann
Tómas Guðmundsson og nokkur
Ijóöa hans. Lesari með Sigurði er
Berglind Einarsdóttir.
16.50 Leitað svara. Hrafn Pálsson
félagsráðgjafi leitar svara við
. spurningum hlustenda.
17.00 Sfðdegistónleikar. Wilhelm
Kempff leikur á píanó Fjórar ball-
öðurop. IOeftir Johannes Brahms
/ Mieczyslaw Horszowski, Sándor!
Végh og Pablo Casals leika Pianó-
trió nr. 3 í c-moll op. 1 eftir Lud-.
wig van Beethoven.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
. 19.40 Á vettvangi. Stjórnandi þátt
arins: Sigmar B. Hauksson. Sam-
starfsmaður: Arnþrúður Karls-
dóttir.
20.00 Lög unga fólksins. Hildur
Eiríksdóttir kynnir.
'20.45 Kvöldvaka. a. Elnsöngur:
Þórunn Ólafsdóttir syngur íslensk
lög; Ólafur Vignir Albertsson leik-
ur á píanó. b. A fjallabaksleiö
' eystri. Sigurður Kristinsson kenn-
ari segir frá búsetu 1 Stafafellsfjöll-
um, einkum á Grund i Víðidal; —
fyrsti hluti af þremur. c. Skrímslis-
rima eftir Sigurð Óla Sigurðsson i
Flatey um skoplegan atburö vestur
' þar fyrir 70 árum. Baldur Pálma-
son les. d. Hún iOkaði glimu í
gamla daga. Þórarinn Björnsson
frá Austurgörðum i Kelduhverfi
í talar við Andreu Pállnu Jónsdóttur,
i Leirhöfn á Melrakkasléttu. e.
Kórsöngur: Karlakórinn Fóst-
bræður syngur lög eftir Gylfa Þ.
Gislason. Söngstjóri: Jón
Þórarinsson.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dag-
skrá morgundagsins. Lestur Pass-
íusálma (35).
22.45" Franklin D. Roosevelt. Gylfi .
Gröndal les úr bók sinni (7).
23.05 Kvöldgestlr — þáttur Jónasar •
Jónassonar.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Sjónvarp
Gengið
Kvikmyndir Kvikmyndir
Gengisskróning
NR. 46 - 17. MARZ1962 KU 09.16
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Saia
1 Bandcrfit jadoil& r 10,021 10,049 11.053
1 Staríingspund 18,138 18,189 20.007
1 K.iutdadotlar 8349 8,272 9.099
1 Dönsk króna 1,2620 13555 1.3810
1 Norsk króna 1,6654 1,6701 1.8371
1 Sasnsk króna 1,7203 1,7252 1.8977
1 Rnnskt mark 2,1962 23013 2.4214
*1 Franskur franki 1,8321 1,6386 1.8002
h Bsig.franki 03261 03267 0.2493
H Svissn. franki 6,3190 53339 5.8872
1 Hoftenxk florína 33476 33583 43441
1 V.+ýiktmwfc 4,2236 43356 4.6691
1 itöisk Ifra 0,00778 0,00780 0.00858
1 Au.turr.Sch, 0,6013 0,6030 0.9633
1 Portug. Escudo 0,1429 0,1433 0.1578
1 Spánskur pssatí 0,0983 03966 0.1062
1 Japansktyan 0,04159 0,04170 0.04567
1 Irskt ound 14,899 14340 16.434
8DR (aérstök . * — * -■*—... oratianaiunoti 11,2347 113662
Sánavari vagna gangtaakráningar 22190.
Veðurspá
] Búizt við hæð austan- og norð-
llaustanlands, bjart um allt land,
I þykknar sunnanlands með kvöld-
| inu, frost um allt land en verður þó
Kheldur mildara sunnanlands með
Imorgninum.
Veðrið
hér og þar
Klukkan 6.00 í morgun
Akureyri léttskýjað -10, Bergen
skýjað 0, Helsinki léttskýjað
Kaupmannahöfn þokumóða -2
Ósló þokumóða 1, Reykjavík heið
skírt -6, Stokkhólmur þokumóða 1
Klukkan 18.00. 1 gær. Aþena
heiðskirt 11, Berlín skýjað 8
Chicagó alskýjað 8, Feneyjar
þrumuveður 8, Nuuk alskýjað 1
London skýjað 9, Luxemborg
léttskýjað 3, Las Palmas léttskýjað
17, Mallorka skýjað 13, Montreal
skýjað 4, París skúr 7, Róm
léttskýjað 12, Vín rigning 6
Winnepeg ísnálar 12.
Föstudagur
19. mars
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Á döfinni. Umsjón: Karl Sig-
tryggsson.
21.05 Allt i gamnl með Harold
Lloyd s/h. Syrpa úr gömlum
gantanmyndum.
21.20 Fréttaspegill. Umsjón: Bogi
Ágústsson.
21.55 „Fyrirkomulagið”. (Thc
! Arrangement). Bandar. bíómynd
frá árinu 1969. Leikstjóri og,
höfundur: Elia Kazan. Aðalhlut-
verk: Kirk Douglas, Faye
I Dunaway, Deborah Kerr, Richard t
1 Boone og Hunte Cronyn. Myndin'
fjallar um forstöðumann aug-
| lysingastofu, sem hefur tekist að',
afla sér veruíegra tekna i lífinu. En
1 cinkalíf hans er i rúst, hjónabandið
I er nánast eins konar „fyrir-
! kontulag”, framhjáhaldið lika og
raunar önnur samskipti hans við
I fólk. Þýðandi: Kristmann Eiðsson.
‘23.55 Dagskrárlok. I
Fyrírkomulagið—sjónvarpið kl. 21.55:
Vélmenni á f ramabraut fer
að leita að sjálf u sér
í bók sem heitir „The New Male”
eða Nýi karlmaðurinn lýsir höfundur-
inn, Herb Goldberg, hvað það geti
orðið hættulegt fyrir karlmenn að láta
kerfið gleypa sig. Byrja kornungir að
„vinna sig upp” og týna sínum eigin
persónuleika í starfinu. Verða síðan
firrtir og óhamingjusamir þrátt fyrir
háar tekjur. Þeir gleyma alveg að rækta
sálina í sjálfum sér, verða sístritandi
hylki utan um ekki neitt.
Myndin í kvöld er tilraun leikstjór-
ans Elia Kazan til að lýsa einmitt
slíkum manni og er sennilega enn tíma-
bærari nú en þegar hún kom fyrst
fram, 1969. Aðalpersónan í myndinni
er Eddie, hálaunaður starfsmaður í
auglýsingabransanum, leikinn af Kirk
Douglas. Hann á einbýlishús utan við
bæinn og fagra konu (Deboru Kerr).
En þótt allt gangi vel á ytra borði er
hann í rauninni sáróánægður. Starf
hans er að semja tóbaksauglýsingar og
honum er auðvitað fullljóst að þær eru
rangar og villandi.
Það er hægara sagt en gert að
komast út úr vítahringnum. Inn í þau
átök blandast faðir hans, grískur inn-
flytjandi sem hefur alið hann upp af
strangleika, (Richard Boone) . Konan
hans, sem óttast að missa öryggi og
fastar tekjur, ef hann breytir til. Og svo
er það skrifstofustúlkan (Faye
Dunawayj'sem reynir að eggja hann til
sjálfstæðis og lendir í skrykkjóttu
ástarsambandi við hann.
Myndin er spennandi, enda gerð af
Elia Kazan. Talið er að hún sé að ein-
hverju leyti sjálfsævisöguleg en ekki
vitum við sönnur á þvi, nema hvað for-
eldrar hans voru að minnsta kosti
grískir innflytjendur.
ihh
Fjalakötturinn: Don Giovanni
EINSTÆTT
USTAVERK
Fjalakötturínn.
Kvikmyndin, Don Giovanni, ópara W
Mozarts.
Lelkstjóm: Joseph Losey.
Handrit: Patricia og Joseph Losay, Franz
Salierí, byggt á uppfœrski RoK Liebermanns á
óperu Mozarts.
Kvikmyndataka: Garry Fischer.
KHpping Roginald Beck.
Löngum hafa kvikmyndastjórar
haft beyg af óperum sem myndefni.
Óperan hefur þá bindingu umfram
önnur sviðsverk að músíkin njörvar
textann og allar athafnir svo að kvik-
myndastjórinn hefur býsna lítið frítt
spil. Hlutunum er ekki jafnauðvelt
að snúa við og breyta og þegar leikriti
er snúið upp í kvikmynd, að maður
tali nú ekki um skáldsögu. Það er því
skiljanlegt að kvikmyndastjórar hafi
látið óperurnar í friði. Þar við bætist
að efniviður margra ópera er fenginn
aö láni úr sögnum og sögum svo að
sjálfsagt hefur þótt lengstum að
kvikmyndamaðurinn meðhöndlaði
efnið eftir sínu höfði og eftir reglum
sinnar listar.
En samt hefur óperan freistað
nokkurra leikstjóra þó og í lang-
flestum tilvikum hefur verið um að
ræða beinar upptökur á óperusýning-
um með þeim aukamöguleikum sem
hreyfanleiki myndavélarinnar bætir
við venjulegt óperusvið. Eða þá að
farið er út í ævintýri, eins og þegar
Aida var efniviður og uppistaða
„stórmyndar”. Fjármagn og tækni
nýtt út 1 æsar og Tebaldi látin leggja
til röddina en Loren kroppinn á
Aidu. Samt höfðaði stórmyndin ekki
eins mikið til manns og mátulega vel
lukkuð konsertuppfærsla vestur í
bæ.
Joseph Losey færist því töluvert
mikið í fang að leggja til atlögu við
sjálfan Don Giovanni með hendur
bundnar — bundnar af Wolfgang
nokkrum Mozart, snillingi, fyrir
hartnær tvö hundruð árum. Að
mínum dómi tekst Losey ótrúlega vel
til. Velgengni hans í glimunni við
Don Giovanni er líkast til mest því að
þakka að hann er Mozart fyllilega
trúr. f raun er eins og hann sé aðeins
að bjóða Mozart einn tjáningarþátt-
inn enn í óperuna, frelsi í rúmi. Hann
fylgir Liebermannuppfærslunni en
hún er notuð víða i þekktum og
minna þekktum óperuhúsum og er
eins konar standard uppfærsla hjá
þeim óperuhúsum sem hafa efni á að
brúka „jet set” einsöngvaralið.
í leikstjórn sinni víkur Losey aldrei
frá hinum söngræna, stundum
barnalega, leikmáta sem tiðkast í
óperunni. Hann fellur aldrei í þá
gildru sem margur „upptöku-
stjórinn” dettur svo gjarnan í, að
nota „play-backiö” ósmekklega.
Dæmi slíks finnast i mörgum upptök-
um, þegar primadonnan bylur há c-ið
útafiiggjandi í hægindastól og jafn-
vel étandi vínber. Hans Don
Giovanni er óperukvikmynd. Hann
notar umhverfið, lýsinguna og klipp-
inguna til að láta eðlilega kvikmynd
renna með hrynjandi óperunnar og
maður hefur það á tilfinningunni að
kvikmyndin fengi staðist sem heil-
steypt listaverk þótt hún væri þögul.
Þetta tekst Losey og hans liði þótt
hvergi sé um að ræða frítt spil, nema
í forleiknum, en þar notar hann tæki-
færið og tengir músík og mynd sög-
unni þannig að hin myndræna
músík Mozarts verður enn skarpari.
Hér er sem sé á ferðinni einstætt
listaverk, sem ætti að koma óperu-
þyrstum íslendingum vel.
Eyjólfur Melstefl
Faye Duaaway efla Runaway þekklst
alltaf i hnjánum, segja þeir.
Leitað svara—
útvarp kl. 16.50:
Góður
þáttur á
ómöguleg
um tíma
Hver hlustar á útvarp klukkan tíu
mínútur fyrir fimm? Að minnsta kosti
engin húsmóðir. Þá kemst ekkert
annað að en listinn fyrir helgarinn-
kaupin. Og allir eru að flýta sér að ná
því sem gera þarf áður en hægt er að
kasta af sér vinnubelgnum og fieygja
sérávit helgarinnar.
Það eru helzt leigubílstjórar og
kannski vaktavinnufólk sem getur
hlustað. Og þeir heyra Hrafn Pálsson
leita svara við spurningum hlustenda.
Það er því kannski ekki undarlegt að
raargar spurningarnar fjalla um um-
ferðarmál, ástand vega, hvort leyfa eigi
hægri beygju á rauðu ljósi. „Það er
kannski eins gott,” segir Hrafn Páls-
son, stjórnandi þáttarins. „Á tiu
minútum hálfsmánaöarlega er ekki
hægt að leysa fiókin vandamál.”
Hrafn fór 15 ára gamall að spila með
danshljómsveitum, „byrjaði með
Bjarna Bö. og endaði með Ragga
Bjama syni hans 23 árum seinna”. En
síöan lærði hann félagsráðgjöf árum
saman 1 Bandaríkjunum.
IHH
Hrafn Pilssoa féUgsráð(jafi er fyrr-
verandi „dansmúsikant” og ekki laust
viö aö hann sé hreykinn af hvita
Steinway-flyglinum á heimilinu. „öll
fjölskyldan spilar,” segir hann.