Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1982, Page 32
BRAUD FRA BLONDUOSI
M» A NORDURPOUNN
— Franskir ævintýramenn ætla að aka á sn jóbílum á pólinn og hafa brauðið í nesti
Hópur ævintýramanna frá Frakk-
landi, sem er að leggja af stað í öku-
ferð á snjóbílum á norðurpólinn
kemur til með að gæða sér á íslenzku
brauði á því ferðalagi. Pöntuðu þeir
sérstaklega í ferðina brauð frá Brauð-
gerð Húnfjörðs á Blönduósi og hafa
þeir með sér þaðan um 50 kg af svo-
kölluðum kjarnabrauðum, sem þar
eru fram leidd.
Frakkar þessir komu hingað í fyrra
og voru þá nokkuð í fréttum vegna
flutninga á vörum og vistum til
Grænlands vegna þessarar ævintýra-
ferðar sinnar. Þeir komu svo aftur
hingað fyrir skömmu og flutti vél
Flugfélags Norðurlands þá til Scores-
bysunds á Grænlandi, þar sem þeir
höfðu komið tækjum sínum fyrir í
vetur.
Óskuðu þeir þá eftir því að taka
með sér héðan brauð sem hefði mikið
og gott geymsluþol. Tókst loks að út-
vega þeim það á Blönduósi en þar
hefur brauðgerð Húnfjörðs sérhæft
sig í að baka slík brauð og afgreiða
þau i þar til gerðum umbúðum.
Þeir hjá Flugfélagi Norðurlands
flugu í vikunni tii Scoresbysunds með
varahluti í snjóbilana sem kapparnir
ætla á. Voru þeir þá að gera sér vonir
um að geta lagt af stað einhvern
næstu daga.
Ætla þeir fyrst upp jökulinn til
Thule þar sem þeir eiga geymt elds-
neyti á bílana og þaðan halda þeir svo
á pólinn. Ef þessi ferð tekst verða
þeir fyrstir manna til að fara akandi á
snjóbílum á norðurpólinn.
-klp-
Neí þetta eru ekki menn í sjávarháska sem þama sjist um borO í ktta
bátnum. Þarna eru á ferðinni björgunarmenn frá Siysavarnafóiaginu og Land-
helgisgæzlunni. Í blíðunni í gærmorgun brugðu þeir á leik á shysavarnabátn
um Gísla Johnsen skammt út af Laugarnesinu i Reykjavik. TF-Rán, þyrla
Landhetgisgæziunnar, var með i leiknum og var verið að æfa björgun manna \
úr skipi i sjávarháska. Sfikar æfingar eru ekki óaigengar, þegar stund gefst
millistriða, enda eins gott að vera í góðri þjátfun þegar tii alvörunnar kemur.
(D V-mynd E.Ó.t
Sérleyfisdeilan á Austíjörðum veldur vandræðum:
NBTAEN AD FLYTJA AHOFNINAISNJOHL
—þegar skipverjar á Ársæli vildu fara frá Egilsstöðum til Eskifjarðar
Ástandið í samgöngumálum á Aust-
fjörðum er nú orðið mjög bagalegt að
sögn Rúnars Pálssonar umdæmisstjóra
Flugleiða á Austfjörðum. Sem kunnugt
er hafa sérleyfishafar á Austfjörðum
hætt akstri um sinn til þess að mót-
mæla því að aðrir aki inn á „þeirra”
leiðir. Rúturnar hafa fram til þessa
tengt byggðarlögin á Austfjörðum við
flugið til Egilsstaða.
Fundur sérleyfishafanna og sam-
gönguráðherra er fyrirhugaður í dag,
föstudag, þar sem reynt verður að
finna lausn á málinu, enda bitnar verk-
fallið talsvert á íbúum á Austurlandi.
-Emil Eskifirði.
Eimskipafélag íslands lætur gera úttekt á óhöppum:
Hafnarfjarðartogarinn Ársæll
Sigurðsson kom til Eskifjarðar úr
siglingu. Hluti áhafnarinnar, sem hafði
verið í fríi, ætlaði með flugi til Egils-
staða og þaðan til Eskifjarðar. Fagri-
dalur var ófær og því ekki hægt að fá
leigubíla.
Hafa valdið félaginu
tjóni og álitshnekki
Sveinn Sigurbjörnsson, einn
sérleyfishafanna, var beðinn að ná í
áhöfnina á snjóbíl og flytja til Eski-
fjarðar. Hann neitaði að sækja áhöfn-
ina, enda standa sérleyfishafarnir fast á
sínu.
í stað þess að fljúga til Egilsstaða,
flugu skipvcrjarnir til Hafnar í
Hornafirði Þaðanfór áhöfnin með rútu
til Eskifjarðar, sem er um 300 km leið.
Þeir sem komu með togaranum og fóru
í frí sátu síðan í rútunni sömu leið til
baka.
Stjórn Eimskipafélags Islands hefur
fengið tvo menn til að gera úttekt og
ganga frá skýrslu yfir þau miklu tjón
sem orðið hafa á skipum félagsins á
undanförnum árum. Eru það þeir Arn-
Ijótur Björnsson, lagaprófessor við Há-
skóla íslands, og Guðjón Ármann
Eyjólfsson, skólastjóri Stýrimanna-
skólans.
Bréf varðandi þessa ákvörðun
stjórnarinnar hefur verið sent öllum
yfirmönnum félagsins og segir þar m.a.
að þessi tjón hafi valdið félaginu
miklum beinum og óbeinum skaða, og
hafi einnig orðið því mikill álitshnekk-
segir í bréfi stjómarinnar til yfirmanna á skipunum
Hafi stjórnin rætt um þessi tíðu tjón
og óhöpp með það i huga hvort ekki
væri hægt að grafast frekar fyrir um
orsakir þeirra og hvað væri til ráða til
að koma í veg fyrir slíka tjónatíðni í
framtíðinni.
Farið er fram á það í bréfinu að þeir
skipstjórnarmenn sem óski eftir að
koma fram sjónarmiðum sínum vegna
þessarar rannsóknar og skýrslugerðar
láti í sér heyra.
Tjón þau og óhöpp sem stjórnin vill
láta kanna nánar eru sex talsins og eru
þau þessi:
MÚLAFOSS — árekstur i Kattegat í
febrúar 1977.
SKEIÐSFOSS — strand í Húnaflóa í
júní 1979.
BRÚARFOSS — árekstur út af Ný-
fundnalandi í september 1980.
GOÐAFOSS — vélarstöðvun á Arnar-
firði í janúar 1981.
BERGLIND — sökk eftir árekstur i
júlí 1981.
TUNGUFOSS — sökk í óveðri á
Ermarsundi í september 1981.
Reiknað er með að skýrslan verði til-
búin i júní nk. og verður hún þá lögð
fyrir stjórn Eimskips og dreift til yfir-
manna á skrifstofu og á skipunum.
-klp-
frjálst, úháð dagblað
FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982.
Banaslys í
Fáskrúðsfirði
Banaslys varð kl. 17.30 í gær í
Staðarskriðum milli Fáskrúðsfjarðar
og Reyðarfjarðar. Range Rover bifreið
fór út af veginum og valt niður
snarbrattar skriður. Stöðvaðist
bifreiðin i stórgrýtisfjöru 120—140
metrum neðan vegar.
Bifreiðarstjórinn var einn í
bifreiðinni og lézt hann samstundis.
Mikil hálka var á veginum er slysið
varð. Ekki er unnt að birta nafn hins
látna að svo stöddu. — Ægir,
Fáskrúðsfirði.
Kópavogskrakkar:
Fá ekki að
busla lengur
ískolpinu
Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa heitið
því að nýtt holræsi verði tekið í notkun
um miðjan apríl næstkomandi og
þannig leysa af gamalt sem bagað Iféfur
starfsemi siglingaklúbba unglinga með
skolpmengun.
Heilbrigðisnefnd Kópavogs hafði
áður ákveðið að heimila ekki starfsemi
siglingaklúbba fyrr en viðunandi Iausn
væri fengin á máli þessu. Taldi nefndin
mengun frá holræsi því, sem endar við
bryggjusporð siglingaklúbbanna, alveg
óviðunandi. -KMU.
Stjomumessan:
Áfjótðahundr-
að miðar
seldustígær
Það var greinilegt í gær að mikill
spenningur er fyrir Stjörnumessunni,
úrslitunum í vinsældavali DV.
Klukkutíma eftir að miðasalan á
Broadway opnaði í gær höfðu selzt
rúmlega 350 miðar.
Þeir fáu miðar sem eftir eru verða
seldir á Broadway í dag milli kl. 16 og
18 og ef einhverjir verða eftir i kvöld þá
verða þeir til sölu á Broadway á
morgun, laugardag, milli kl. 16ogl8.
pr
hressir betur.
I
I
I
■
1
■
■
I
■
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Sagt er aö margir sjái nú
aftír því aö hafa æst Hjörieif
upp í að fara ioksins aö taka
ákvaröankí ýmsum méktm.
c ískalt
Seven up.
■
i
i
i
l
I
i
■
■
I
i
I
i