Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1982, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1982, Síða 22
30 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 28. JUNI1982. Heimabing- óið ífull- um gangi —„Fólk er spennt”, segir framkvæmdastjóri bingósins ÞÓRSKABARETT FER HRINGINN Þórskabarettinn er aö fara aö rúlla hringinn í kringum landiö á ný. Hann fór líka hringinn i fyrra og aö sögn forráöamanna viö geysimiklar og góðar undirtektir landsmanna. Þar sem þetta þótti takast svo vel hjá kabaretts mönnum þá var ákveðið núna aö skella sér annan hring. Næstu helgi byrjar síöan balliö meö þeim félögum og byrja þeir fyrir aust- an, nánar tiltekiö á Noröfiröi. Síöan fikrar kabarettinn sig norður í land og þannig kol) af kolli. Sá munur er á kabarettnum frá í fyrra aö skemmtiatriöin eru núna mun fleiri og styttri. Tekin veröa fyrir klassísk grínatriöi og sýndar spaugi- legar hliöar dægurmálanna. Skemmtiatriöin veröa sýnd frá 9 til 11 á kvöldin og aö þeim loknum mun veröa slegiö upp dansiballi og sjá hljómsveitirnar Geimsteinn og Áhöfn- in á Halastjörnunni um músikkina. Þrír alhliöa grínarar sjá um brand- arana, en þaö eru þeir Jörundur Guðmundsson, Þórhallur Sigurösson og Júlíus Brjánsson. Ennfremur munu þrír dansarar vera meö í förinni, en þeir heita Ingibjörg og Guörún Páls- dætur, ásamt ungum og efnilegum dansara, Köru Jóhannesdóttur. Tví- burasysturnar Ingibjörgu og Guðrúnu mun vera óþarft aö kynna, en þær hafa lengi veriö ballerínur í íslenzka dans- flokknum. En Kara Jóhannesdóttir er dansari í dansstúdiói Sóleyjar. Þórir Baldursson veröur músíkstjóri og er kominn aila leiö frá henni Ameríku til þess aö vera með Þórs- kabarettnum í þessari hringferö. Árni Elfar teiknari mun teikna einn eftirminnilegan karakter á hverjum staö. Nú svo er öllum frjálst aö láta teikna sig í því ástandi sem hann eöa húnerhverjusinni. Já, sex vikna hringferð meö úrvals skemmtikröftum er aö byrja. Góða skemmtun! -Eg. Jörundur og Júlíus bregöa á leik. „Fólk er spennt og þaö er mikið hringt útaf bingóinu. Enn er enginn bú- inn aö fá bingó enda ekki búiö aö draga út nema helming talna fyrstu vikunn- ar,” sagöi Haraldur Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Heimabingósins, í sam- tali viö DV í gærmorgun. Sjálfsbjörg og Iþróttasamband fatlaöra efndi til heimabingósins til styrktar starfsemi sinni. Haraldur kvað sölu bingóseölanna hafa gengiö prýöilega. ,,Salan gekk sér- staklega vel úti á landi. Þar gengu blaöburðarböm DV i hús og seldu seöl- ana. I þéttbýlinu á suð-vestur homi landsins vom seðlarnir hins vegar til sölu í verzlunum,” sagöi hann. Tölumar sem dregnar eru út í bingó- inu em birtar í Dagblaðinu og Vísi á hverjum degi. I þessari viku hafa eftir- farandi tölur veriö birtar: 83,56,80,19, 13,50,23,35,27,55,37,11,68. Alls veröa dregnar út 16 tölur í fyrstu vikunni. Síöustu þrjár tölumar veröa opinber- aöarámorgun. I þessari umferö heimabingósins vom seldar blokkir meö fjómm bingó- spjöldum. I næstu viku veröur byrjaö aö draga út tölur f yrir bingóseðla núm- er tvö í blokkunum. Allir sem veröa svo heppnir aö ná þvi á einni viku aö fá fimm tölur i láréttri röö fá 2000 króna peningavinning. Engu máli skiptir hversu margir vinningshafar veröa eöa í hvaða röð þeir hrópa BINGO! Síðustu tölur í fyrstu umferð Heima- bingósins veröa dregnar út laugardag- inn 17. júlí. Dreifing nýrra seöla hefst 19. júh' og önnur umferö bingósins byrj- ar hálfum mánuöi síöar. Ekki er hægt aö kaupa blokkir meö bingóseölum eft- ir að byrjaö er aö draga út tölur. Því er mikilvægt aö tryggja sér bingóseðla í tíma. -SKJ. Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Heimabingósins, heidur hér á heilli blokk bingóseöla. Fyrstu viku bingósins er nú að Ijúka. Eftir era þrjár spennandi vikur. GARÐAUÐUN Tvíburaruir Ingibjörg og Guðrún ásamt Köra taka nokkra létta takta. DV-myndir: EinarÖlason. DATSUN STÓR- LÆKKARIVERDI —eru nú fluttir milliliðalaust til iandsins „Viö höfum gert samninga viö Datsun verksmiöjuna í Japan um aö senda Datsun bifreiöar beint til Islands, án tengsla viö umboöiö í Danmörku. Auk þess tókst okkur að ná hagstæöari kjörum en Danir. Þannig lækkar verð Datsun bifreiöa um ailt aö 15 til 20 pró- sent, svo og alUr varahlutir í bifreið- arnar,” sagöi Ingvar Helgason, for- stjóri Datsun umboðsins, á blaða- mannaf undi fyrir skömmu. Ingvar Helgason hefur nýlega gert mjög hagstæðan samning viö Japani um kaup á Datsun bifreiöum. Hingaö til hafa bifreiöarnar veriö fluttar hing- að til lands í gegnum Datsun umboöiö í Danmörku. Hér eftir veröa bifreiðarnar aftur á móti fluttar beint til Islands og er fyrsta sendingin þegar komin. Jafn- framt tókst aö lækka verð bifreiðanna. Sem dæmi má nefna, aö Datsun Sunny 1500 4ra dyra kostar meö ryövöm og útvarpi 97 þúsund krónur. Þá eru vænt- anlegir á markaðinn um áramótin tveir neyzlugrannir smábílar. Annars vegar bíll af Datsun gerö og hins vegar Subaru smábíll. Verö á þeim verður samkvæmt verðlagi dagsins í dag um 80 þúsundkrónur. Ingvar Helgason hefur nýlega tekiö upp nýtt sölufyrirkomulag til þæginda- auka fyrir viöskiptavininn. Er þaö japanskt aö uppruna og hefur gefiö góöa raun. Þaöerþannig, aö viöskipta- vininum er boðiö til borös í sýningar- salnum, þar sem þeir bíða þess að sölu- maður sinni þeim. Viöskiptavinimir þurfa því ekki að bíöa í hóp eða röð eft- ir sölumanni, eins og tíökast víöast hvar. Samfara þessum breytingum hefur Ingvar Helgason hf. opnað glæsilegan sýningar- og söluskála aö Melavöllum við Rauðagerði. Er hann sá stærsti sinnar tegundar á Islandi, tæpir 360 fermetrar aö flatarmáli. -KÞ Soeu ’ 1 1-11 T"* \WPSM Wmmm I fsB'B í r haagy-:- . &U .A JL WáLtKLvmá. t JPofT8!1] •fa&r •, m m ■ líAf' Séð yfir hinn nýja sýningar- og söluskála Ingvars Helgasonar hf. Hann er sá stærsti sinnar tegundar hérlendis, tæpir 360 fermetrar. DV-myndEO.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.