Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1982, Side 32
32
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MIÐVIKUDAGUR 7. JUU1982.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Henry Fonda að hressast
Henry Fonda sem nú er orðinn 76 ára Oskarinn fyrir frábæra frammistöðu í
er á batavegi eftir langa sjúkrahús- kvikmyndinni „On Golden Pond”.
legu. Gamli maðurinn er farinn að Shirley kona hans segir að ekki sé úti-
geta gengið og er allur óðum að hress- lokaö að hann leiki í fleiri kvikmyndum
ast eftir síðasta hjartaáfall. í framtíðinni. Fer það allt eftir því
Eins og flestir víst muna fékk hann hversu vel hann mun ná sér á strik.
Díana komin í mussu?
Hún prinsessa Díana varð 21 árs 1.
júlí sl. Hún er alltaf jafn vinsælt um-
talsefni í kokkteilboðum Englands og
núna er hún loksins orðin fullorðin og
fjárráða.
Fylgst er vandlega með hverju fót-
máli hennar og allt sem hún segir og
gerir greyið er umsvifalaust sett á
prent. Hún þykir vera glæsipía hin
mesta og fötin hennar vekja alltaf
umtal. Nú er það nýjasta nýtt hjá
þessu fatafríki aö hætta að ganga í
þröngum gallabuxum og aðskornum
peysum. llún er nefnilega oröin leið á
öllu þessu umtali um útlit sitt,
hversu glæsilegan vöxt hún hafi
o.s.frv. Brjóst hennar eru stöðugt til
umræðu og kennir hún klæðskera
sínum um það vegna þess að það var
jú hann sem saumaði alla þessa aö-
skornu brjóstasýnandi kjóla á hana.
Aftur á móti held ég að það sé ein
skýring til viðbótar sem í sjálfu sér
er ósköp eðlileg. Díana er nýbúin að
eignast bam og líkaminn breytist
eftir bamsfæöingu og tekur það tíma
þar til öll mál eru komin á sama staö
og áður. Það er ósköp eölilegt og
fallegt.
Ryan O'Neal
er yfir sig hrifinn af stórstjörnunni og
vinkonu sinni, henni Farrah Fawcett,
en hann sættir sig þó ekki við að fá
sömu laun og hún. Kærustuparinu var
boðið fullt af dollurum fyrir aö skrifa
undir þriggja ára samning við sjón-
varpsfyrirtæki eitt. Þar eiga þau að
leika spæjarahjón. Ryan segist vera til
í þetta ef hann fái nokkrum doUurum
meira en Farrah. Kappinn virðist ekki
líta svo á að stjömur eigi að fá sömu
laun fyrir sömu vinnu. Hann er greini-
lega karlremba hin mesta.
Katharine Hepburn
sem fékk Oskarinn fyrir leik sinn á
móti Henry Fonda í kvikmyndinni „On
Golden Pond” kemur til með að leika
ættmóður Kennedyanna, hana Rósu
gömlu, í samnefndri kvikmynd. Eina
skilyrðið sem hún setur fyrir leik
sínum er að ættingjar hennar, leikkon-
urnar Katharine Hoghton og Schuyler
Grant fái að vera með í kvikmyndinni.
Þær koma til með að leika Rósu Kenne-
dy sem barn og unga konu. Katherme
Hepburn mun síðan leika Rósu eins og
hún hefur verið undanf arin ár.
LINDA
BLAIR
FARIN
AÐ BÚA
Ameríska ungpíustjarnan Linda
Blair sem m.a. varð fræg fyrir leik
sinn í Særingamanninum er nú yfir sig
ástfangin af Scott Nederlander. Þau
eru byrjuö að búa saman og er ótrú-
legt að heimili ungu hjónanna sé fátæk-
legt því Scott þessi er milli og eiga for-
eldrar hans fullt af leikhúsum víðs veg-
ar um Ameríkuna.
Robert de Niro
Hann Robert De Niro Hollywood
stjarna er flæktur í hneykslismál og
vinur hans Robin Williams (sem ég
kann engin deili á) líka. Þeirtengjastá
einhvern dularfullan hátt dauöa grín-
istans John Belushis. Þeir eiga að
mæta í yfirheyrslu til löggunnar því
einhver ókunn kona viðurkenndi að
hafa gefiö grinistanum of stóran
skammt af heróíni og kókaíni á hóteli
Belushis. Þessi ónefnda kona segir aö
Robert De Niro og hinn Róbertinn hafi
báðir verið á þessu sama hóteli þegar
Belushi dó. Ohuggulegt mál þetta.
Barbara
Streisand
Barbara Streisand skilur ekkert í því
hversu illa henni gengur að halda í
karlmótleikara sína. Síðastliðin ár
hefur hún misst af ótal mörgum góðum
hlutverkum vegna þess að karlarnir
neita að leika á móti henni. Þeim finnst
hún vera allt of frek og eru pirraðir
yfir því aö Barbara vilji fá að ráða ein-
hverju. Clint Eastwood og Burt Reyn-
olds eru meöal þessara kappa sem
neita að leika á móti henni. Og Robert
Redford er sömuleiöis búinn að neita
henni um að leika meö henni í mynd
sem hún ætlaöi að gera í framhaldi af
kvikmyndinni „Okkar beztu ár”.
Strákarnir eru greinilega orðnir
nokkuð gamlir í hettunni og vita ekki
að nútímafólk, alla vega nútímakonur,
hafa bein í nefinu og láta ekki vaða
ofan í sig.
ÆVI BERGMAN
KVIKMYNDUÐ
Nastassa Kinski líkist Ingrid Bergman
eins og hún var á
yngri árum,
óneitan-
lega mikið.
;rid Bergm
¥
Ingrid Bergman rétt náði því að
leika í kvikmyndinni um líf og starf
ísraelska forsætisráðherrans Goldu
Meir áöur en líf hennar sjálfrar verður
fest á filmu. Hún er nú farin til Los
Angeles til þess aö ræöa við sjónvarps-
fyrirtækið NBC sem ætlar að gera
kvikmynd um ævi hennar.
Kvikmyndin verður gerð sérstak-
lega fyrir sjónvarp og er ætlunin að
senda hana út í tveim hlutum. Hver
sýning mun taka tvo klukkutíma.
Ingrid Bergman hefur Iýst því yfir
að hún muni ekki koma til með aö leika
sjálfa sig. Því bendir allt til þess að
Nastassa Kinski komi til með að leika
Ingrid á yngri árum og Liv Ullman
leiki Ingrid miðaldra og uppúr.
Nastassa sem þekkt er fyrir leik sinn
í kvikmynd Polanskis, Tass, þykir líkj-
ast Ingrid mikið eins og hún var héma
áður fyrr á árunum. Ekki þykir það
heldur saka að Nastassa hefur þennan
sjarmerandi útlenzka hreim sem Ing-
rid Bergman hefur líka. Um þessar
mundir er Nastassa þessi afar vinsæl
leikkona í Bandaríkjunum, hún þykir
góð leikkona og svo er það náttúrulega
útlitiö sem hún hefur líka meö sér.
Mary Osmond gengin út
Ameríska poppsöngkonan hún
Maria Osmond er gengin í þaö heil-
aga. Brúðarkjóllinn var úr glitrandi
silki og tafti. Hún giftist körfubolta-
spilara, Stephen Craig að nafni.
Söngkonan er 22 ára og Stephen er 25
ára. Ungu brúöhjónin héldu brúð-
kaupsveizlu, eina stóra og mikla, og
buöu 4.000 manns í hana. Þau ætla
síðan að fara í lítinn fjallakofa og
vera þar í þrjá daga, sennilega aö
taka upp allar brúðargjafirnar,
síðan fara þau með fjölskyldu
hennar í sumarfrí. Lítið er vitað
hvaða náungi þetta er sem hún giftist
utan það aö hann er mormóni eins og
hún og ætlar sér að taka B.A. próf í
samskiptafræðum, þaö er ef hann
fellur ekki.