Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1982, Blaðsíða 19
18
DV. ÞRIÐJUDAGUR 27. JULI1982.
DV. ÞRIÐJUDAGUR 27. JUU1982.
19
íþróttir íþrótti
■ ■ » ^ - ■
(þróttir
(þróttir
(þróttir
(þróttir
íþróttir
Bíkoiinn /f.
Adidas Europa nflngagaHar frá kr. 466,-
Adidas Oríon safingaskór kr. 445,-
Sportvöruverslun
Skólavörðustíg 14 - Sími 24520
VerAlannahalar og „stjórar” í Toyota-golf mótinu í Halnarftrði um helgina.
högg
76
77
79
högg
80
83
84
högg
83
88
88
högg
77
78
78
Úlfarnir í
úlfakreppu
— Félagið enska verður lýst gjaldþrota á föstudag
hafi ekki úr rætzt í sambandi við fjárhag þess
Íslandsmótíð í handknattleik utanhúss:
sér meistaratitilinn
Stúlkurnar úr ÍR gerðu sér iítið fyrir
í gærkvöldi og sigruðu íslandsmeistar-
ana innanhúss, FH, á ísiandsmótinu í
handknattleik kvenna utanhúss í Hafn-
arfirði. Sigur þeirra var fyllilega verð-
skuldaður en leiknum lauk 19:16.
Eftir þennan sigur standa ÍR-stúlk-
urnar, sem nýlega hafa fengið til iiðs
við sig Ingunni Bemódusdóttur úr Vik-
ingi, vel að vigi til að verða íslands-
meistarar. Þær eiga eftir leik við Val á
miðvikudagskvöldið og er það hreinn
úrslitaieikur í kvennaflokki.
Valsstúlkumar léku í gærkvöldi við
Wolverhampton Wanderers, eitt
frægasta knattspymufélag Englands,
sem féll niður i 2. deild sl. vor, á nú i
miklum f járhagsörðugleikum. Skuldar
1,8 milljón sterlingspund. Félagið
verður að gera hreint fyrir sinum dyr-
um á föstudag hvað fjárhagsstöðunni
viðkemur samkvæmt kröfu enska
knattspyrausambandsins. Verði ekki
búið að tryggja lán eða öruggar trygg-
ingar kann svo að fara að félagið verði
dæmt gjaldþrota.
Skipaðar hafa verið fimm nefndir á
vegum stjómar félagsins til að útvega
peninga. Aðeins einni þeirra hefur
orðið eitthvað ágengt. Talið er þó víst
að borgaryfirvöld í Wolverhampton
muni leggja fram einhverja peninga á
föstudag ef allt annaö þrýtur.
Utsala er þegar hafin á leikmönnum
félagsins. Skozki landsliðsmaöurinn
Willie Carr var seldur á iaugardag til
Millwall fyrir 10 þúsund sterlingspund.
Hann er fyrsti leikmaðurinn sem fer og
verðið er hlægilega lágt. Andy Gray,
sem Ulfamir keyptu frá Aston Villa
fyrir nokkrum árum á eina milljón og
Hauka og sigruðu 20:9. Verður gaman
að sjá viðureign þeirra við ÍR og ekki
gott að segja hveraig sá slagur endar.
Einn Ieikur var i karlaflokki í gær-
kvöldi. FH lék við Gróttu og sigraði
27:11 eftir að staðan í hálfleik hafði
veriðl5:4. -klp-
350 þúsund sterlingspund, hefur veriö
■boðinn til kaups fyrir aöeins 200 þús-
und sterlingspund. Það er litið fyrir
miðherja sem hafði möguleika á að
komast í HM-lið Skota þó meiösli
'kæmuívegfyrirþað. -hsím.
Fá leikinn
færðan til
Mótanefnd Knattspyrausambands
íslands hefur orðið við beiðni Akurnes-
inga um að fresta leik þeirra gegn KR i
1. deildinni sem vera átti á miðviku-
dagskvöldið.
Skagamenn óskuðu eftir þessari
frestun þar sem þeir ættu einn leik-
mann í drengjalandsliðinu, sem nú
leikur i Finnlandi. Er það hinn 15 ára
gamli Sigurður Jónsson sem hefur ver-
ið með i síðustu tveim leikjum liðsins!
-klp-
Hvaðalið
faraíúrslitá
útimótinu?
Tveir stórleikir verða á útimótinu í
handknattleik við Haukahúsiö í Hafn-
arfirði í kvöld. Fæst þá úr því skorið
hvaða liö leika til úrslita i meistara-
flokki karla á mótinu og hvaða lið leika
um3.sætiö.
Mótið í kvöld byrjar kl. 19 meö leik
FH og Fram í kvennaflokki. Strax að
honum loknum, eða um kl. 20, leika
Haukar og Valur en þau eru einu tap-
lausu liðin í A-riðlinum í karlaf lokki.
Sá leikur á að vera búinn um kl. 21.15
en þá hefst hinn stórleikurinn, sem er
viöureign KR og FH. Þau lið eru bæði
án taps í B-riðlinum. Sigurvegaramir í
þessum leikjum mætast í úrslitaleik Is-
landsmótsins á fimmtudagskvöldið en
tapliðin tvö keppa þá um bronsverð-
launin. -klp-
Norðurlandamót drengja í knattspymu í Finnlandi:
Svíar náðu að
merja jafntef li
— og til þess f engu þeir góða aðstoð gegn íslenzku strákunum
hjá lélegum norskum dómara
Svíar máttu þakka fyrir að
merja jafntefli gegn Islandi í
Norðurlandamóti drengjalands-
liða, 14 til 15 ára, sem hófst í
Finnlandi í gær. Það tókst Svíum
með góðri aðstoð lélegs dómara
frá Noregi, sem sleppti augljósu
broti þegar Svíarnir skoruðu
jöfnunarmarkið.
Islenzku strákamir stóðu sig virki-
lega vel í leiknum, sem fór fram í nær
25 stiga hita og sólskini. Léku þeir Sví-
ana oft mjög grátt og þá sérstaklega í
fyrri hálf leiknum.
Hinn ungi leikmaður af Akranesi,
Sigurður Jónsson, var hetja Islending-
anna i þessum leik og vakti óskipta
athygli áhorfenda. Hann var fyrirliði
liðsins og er þaö í fyrsta sinn sem hann
er það í drengjalandsliðinu.
Islendingamir komust yfir á 17.
minútu leiksins. Það var marka-
skorarinn mikli frá leiknum við Færey-
inga í Laugardalnum fyrr í þessum
mánuöi, Guðmundur Magnússon,
Fylki, sem skoraði markiö. Gerði hann
það eftir frábæra sendingu frá Sigurði,
sem s jálfur hafði átt mikið skot í stöng
skömmu áður.
1 síöari hálfleiknum höfðu Svíarnir
það af að jafna á 18. minútu. Var það
mjög vafasamt mark því einn Svíanna
hélt Elíasi Friðrikssyni markverði
þegar markið var skorað.
Norski dómarinn lét sem hann sæi
þetta ekki, en annars sá hann frekar
litið í leiknum og þótti hann afar slak-
ur. Hann sá þó og og heyrði skömmu
fyrir leikslok en þá dæmdi hann enn
einn furðudóminn á íslenzku piltana.
Þeir voru þá orðnir mjög svekktir á
honum og Sigurði var þaö þá á að
klappa. Þreif þá sá norski upp
„rauöa spjaldið” og rak hann umsvifa-
laustútaf.
Sigurður fer því beint í leikbann og
leikur ekki með íslenzka liðinu gegn
Dönumídag.
-kip-
Æfa með sænska
landsliðinu í Sví-
þjóð og Miinchen
— Guðrún Fema Ágústsdóttir og Eðvarð Eðvarðs-
son halda til Svíþjóðar á morgun til undirbúnings
fyrir EM unglinga
Efnilegasta sundfólk okkar, þau
Guðrún Fema Ágústsdóttir, Ægi, og
Eðvarð Eðvarðsson, Njarðvík, halda á
morgun til Svíþjóðar og munu æfa með
sænska landsliðinu í sundi undir stjórn
landsliðsþjálfara Svía fram að
Evrópumeistaramóti unglinga, sem
haldið verður í Innsbrack í Austurríki
26.-29. ágúst næstkomandi.
Þau Guðrún . Fema og Eðvarð verða
fyrst í æfingabúðum með sænska
landsliðinu skammt frá Gautaborg.
Verða þar fyrstu vikurnar en síðan
verður farið til Miinchen í Vestur-
Þýzkalandi ásamt keppendum Svia á
mótinu í Innsbruck og æft þar fram að
mótinu. Svíar hafa þennan hátt á
vegna þess að Munchen og Innsbruck
eru á svipaöri breiddargráöu. Hiti og
loftslag svipaö og keppendur því alveg
tilbúnir í slaginn, þegar að mótinu
kernur. Svíar og þá einkum landsliðs-
þjálfari þeirra hefur sýnt íslenzka
sundfólkinu mikinn hlýhug með því aö
gefa því tækifæri til að æfa með sænska
landsliösfólkinu við nákvæmlega sömu
aðstæöur og það. Eðvarð Eðvarðsson
hefur áður æft undir hans stjóm og tel-
ur Svíinn hæfileika hans mikla í bak-
sundinu. hsím.
VÍTI -1 :ð/ \ El KH ;i ví Tl?
— Var það víti eða var það
ekki víti? Var þetta rangur
dómur eða var þetta ekki
bara réttur dómur hjá bless-
uðum dómaranum? Þannig
spyrja vallargestir sjálfa sig
og hverjir aðra í nær öllum
knattspyrnuleikjum sem
fara fram.
Að dæma víti í leik erj
strangur dómur og það víta
dómarar ekki síður en aðrir.
Þeir þekkja lika oft vel á
brögðin sem leikmenn nota
þegar þeir eru að reyna að
„fiska” víti. Aðrir bíta á
agnið og benda á vítapunktinn
eftir að leikmaður hefur dott-
ið með slíkum tilþrifum að
jafnvel beztu kvikmyndaleik-
arar yrðu grænir af öfund.
Ekki skulum við dæma um
það hvort það hefur átt við
þegar Friðþjófur ljósmyndari
okkar smellti þessum
myndum af í leik Akraness og
KA í 1. deildinni á Akranesi á
laugardaginn. Ljósmyndir af
brotum segja ekki alltaf allt. í
þessu tilfelli ber t.d. ljós-
myndavélinni ekki saman við
dómarann. Sveinbjörn Há-
konarson virðist vera ólög-
lega felldur inni í teignum, af
varnarmanni KA, en
Guðmundur Haraldsson,
okkar bezti knattspyrnudóm-
ari, taldi svo ekki vera og j
benti ekki á vítapunktinn, eins
og kannski Sveinbjörn hafði
vonað.
Enginlætieða hávaðivarð
út af þessu. Leikurinn hélt
áfram sinn gang og enginn
amaðist út í Guðmund á eftir
— hvorki leikmenn né áhorf-
endur. Brotið var jú rætt
manna á milli — var það víti
eða var það ekki víti? Sitt
sýndist hverjum. Ekki var
sama hvar staðið eða setið
var og það sem kannski mestu
máli skipti, það var ekki
sama með hvoru liðinu maður
hélt.
MIKIL OG GOÐ ÞATTTAKA
í TOYOTA-GOLFMÓTINU
Um síðustu helgi fór fram Toyota
golfkeppnin á golfvelli Golfklúbbsins
Keilis í Hafnarfirði. Mjög góð þátttaka
varð í mótinu þrátt fyrir að annað opið
mót var í gangi á Reyk javíkursvæðinu
en keppendur urðu alls 122 og komu
víðs vegar að, t.a.m. frá Keflavík,
Hellu, Selfossi, Akranesi, Borgamesi
og Sauðárkróki, auk Reykvíkinga sem
fjölmenntu. Toyota umboðið á Is-
landi gaf mjög glæsileg verðlaun að
vanda. Árið 1980 á 10 ára afmæli móts-
ins var þátttaka 227 manns og að gefnu
tilefni skal þess getið að það er lang-
stærsta helgargolfmót sem haldið
hefur verið á Islandi til þessa.
I Toyota keppninni voru leiknar 18
holur í f lokkum og urðu úrslit þessi:
ÖLÐUNGAR:
1. Jóhann Eyjólfsson, GR 77högg
2. HólmgeirGuðmundsson,GS 78högg
3. Olafur Ág. Olafsson, GR 78 högg
ÖLDUNGAR M/F: nettó
1. Jóhann Eyjólfsson, GR 77—10 =67
2. Lárus Arnórsson.GR 84—16=68
3. Gunnar Þorieifsson, GR 86—18=68
KONURM/F: nettó
1. LóaSigurbjömsdóttir,GK95—22=73
2. Þórdís Geirsdóttir, GK 85-12=73
3. Hildur Þorsteinsd., GK 107-30=77
1. FLOKKUR:
1. Olafur Skúlason, GR
2. Stefán Unnarsson, GR
3. Guðbjöm Olafsson, GK
2. FLOKKUR:
1. Már Gunnarsson GK
2. Tómas Baldvinsson, GR
3. Karl Bjarnason, GK
3. FLOKKUR:
1. Guðbjartur Þormóðsson GK
2. Sigurbergur Jónatansson GK
3. Vigfús Sigurðsson GL
MEISTÁR AFLOKKUR:
1. Sigurður Sigurðsson, GS
2. Tryggvi Traustason, GK
3. Páll Ketilsson, GS