Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1982, Blaðsíða 2
2
DV. FIMMTUDAGUR 29. JULI1982.
óskar eftir blaðburðarbami í Sand-
gerði (norðurbæ) í einn mánuð.
Uppl. hjá umboðsmanni, Þóru Kjartansdóttur,
sími 92-7684.
PANTANIR
SÍMI13010
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG 29.
óskar eftir blaðberum strax víðs vegar um
Kópavog
Uppl. á afgreiðslu, Þverholti 11, sími 27022.
J Regnfatnaður
á alla fjölskylduna
Vindþéttir trimmgallar
Allar stærðir.
Úrval af stígvélum.
Verð frá kr. 195,00.
Höfum flestan fatnað fyrir
Póstsendum um land allt.
SJÓBÚÐIN
Grandagarði 7 — Reykjavík.
Sími 16814 — Heimasími 14714.
Verð frá kr. 2.430,-
Einkaumboð á íslandi.
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN HF.
Siðumúla2 simi 39090
ann
^íaiiaj ,t y
AUDIOLINE
Frá Þorlákshöfn. Hún var önnur löndunarhæsta höfnin á siðustu vertíð og þess vegna „bráðnauðsynlegt að halda hennl
í lagi,” eins og Kristján Andrésson, hafnarstjóri, orðaði það í samtali við fréttamann DV.
Hættunni boðið heim ef ekki verður að gert:
Herjólfur varó að
bíða á annan tíma
vegna grynninganna
—auk Herjólf s hafa togarar og varðskip tekið niðri í
innsiglingunni í Þorlákshöfn
„Við erum mjög óánægðir.
Grynningarnar fyrir utan höfnina
eru orðnar svo miklar að það er
hættulegt ef eitthvað er að veðri,”
sagði Ölafur Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri Herjólfs, í samtali við
fréttamann DV um innsiglinguna í
Þorlákshöfn.
Olaf ur sagði að Her jólfur hef ði orð-
ið að bíða á annan tíma síöastliðinn
föstudag vegna þess hve mikill sand-
ur hefur borizt fram meö hafnar-
garðinum í Þorlákshöfn.
„Þegar hálfflætt er þarna þá rótar
Herjólfur upp sandi,” sagði Ölafur
og bætti því við að sama gilti um tog-
ara og stærri báta.
Kristján Andrésson, hafnarstjóri í
Þorlákshöfn, sagði í samtali við.
fréttamann DV að svolítið ókyrrt
hefði verið síðastliðinn föstudag, en
ástandiö hefði þó ekki verið verra en
það að margir bátar sigldu inn i höfn-
ina. „Ef hins vegar ekkert yrði gert
þá kæmi upp sú staða að stærstu skip
þyrftu að bíða á háfjörunni,” sagði
Kristján.
Hann sagði að von væri á nokkurri
úrbót á næstunni þar sem nokkurt fé
hefði fengizt utan við fjárlög til að
hreinsa upp sandinn. „Það þyrfti að
hreinsa á tveggja til þriggja ára
fresti,” sagði hann. Nú eru liðin sjö
ár síðan síðast var hreinsað.
Kristján sagði að Herjólfur hefði
tekið þarna niðri í vor og togarar og
varðskip hefðu einnig tekið þama
niðri. „Þetta er hættulaust þegar
gott er veður, en ófært að vetrar-
lagi,”sagðihann.
„Það er vel hægt að halda þessu í
lagi. Gallinn er sá að Hafnarmála-
stofnunin hefur ekki viðurkennt
þessa þörf,” sagði Kristján.
Hann sagði að höfnin yrði dýpkuð
nokkuö í ágúst en ekki á fullnægjandi
hátt vegna 'þess að nægir peningar
hefðu ekki fengizt.
Kristján benti á að Þorlákshöfn
hefði verið önnur löndunarhæsta
höfnin á síðustu vertíð, næst á eftir
Grindavík og því mætti ljóst vera aö
bráönauösynlegt væri aö halda henni
í lagi.
„Þetta verður engin endanleg
lausn núna. Það þarf að fylgjast vel
með þessu. En það hefur gengið
þunglega að fá Hafnamálastofnun-
ina til að viðurkenna þörfina. Viö
erum búnir að biðja um þetta í þrjú
ár,” sagði Kristján Andrésson,
hafnarstjóri í Þorlákshöfn aö lokum.
-GAJ.
BÆ J ARSTJ0R ASKIPTI
ÁKVEÐIN Á AKRANESI
— Ingimundur Sigurpálsson tekur við af Magnúsi Oddssyni
Nýr bæjarstjóri var kosinn á fundi
bæjarstjómar Akraness í gærmorgun,
eins og DV skýrði raunar frá í gær.
Ingimundur Sigurpálsson hlaut fjögur
atkvæði sjálfstæðismanna og eitt at-
kvæði alþýðuflokksmanna, en aðrir
sátu hjá. Ingimundur tekur við bæjar-
stjórastöðunni af Magnúsi Oddssyni,
sem hefur gegnt henni um nokkurt ára-
bil.
Eftir kosningar í vor tókst áfram-
haldandi meirihlutasamstarf þriggja
flokka, en framsóknarmenn voru
áfram einir í minnihluta. Á bæjar-
stjómarfundinum í gær kom strax í
ljós, að ágreiningur hefur verið innan
meirihlutans um ráðningu bæjar-
Jónersonur
Sigurðar
I frétt DV í gær um atvinnuhorfur
byggingamanna á Akureyri, var með-
ai annars rætt við formann atvinnu-
málanefndar bæjarins. Sá var sagður
heita Jón Sigurðsson, sem í sjálfu sér
teldist allt í lagi ef rétt væri. Maðurinn
er nefnilega Sigurðarson, sem óneitan-
lega er eftirminnilegra. Er beðist
velvirðingar vegna þessa.
-JB.
stjóra. Sjálfstæðismenn og alþýðu-
flokksmenn lögðu fram tillöguna um
Ingimund. Fulltrúi Alþýðubandalags í
samstarfinu lagði þá fram breytingar-
tillögu um að velja Rúnar B. Jóhanns-
son endurskoðanda. Sú tillaga varfelld
með 5 gtkvæðum gegn 4. Auk alþýðu-
bandalagsmannsins greiddu fram-
sóknarmennirnir þrír Rúnari atkvæði
sín.
Að svo búnu var aöaltiliagan um
Ingimund borin upp og samþykkt sem
fyrr segir með 5 samhljóða atkvæðum.
Við umræður á fundinum skýrði fuU-
trúi Alþýðubandalagsins, EngUbert
Guömundsson, svo frá, að hann tæki
ekki á þeim fundi afstöðu tU frekari
þátttöku bandalagsins í meirihluta-
samstarfinu. Félagsfundur myndi
fjaUa um það mál. En samkvæmt
heimildum DV eru aUt eins Ukur á að
Alþýðubandalagið beygi sig undir vilja
samstarf sflokkanna.
Umsækjendur um embætti bæjar-
stjóra voru 10, þar af óskuöu 6 nafn-
leyndar.
Um helzta keppinaut kjörins bæjar-
stjóra er það að segja, aö hann er fuU-
trúi fjármálaráðherra í stjórn Flug-
leiða hf.
Nýi bæjarstjórinn á Akranesi, Ingi-
mundur Sigurpálsson, er þrítugur
Reykvíkingur, viðskiptafræðingur að
mennt og starfar nú í Framkvæmda-
stofnun ríkisins. Kona hans er HaUveig
HUmarsdóttir og eiga þau hjón tvo
syni- HERB.
Nýl bæjarstjórinn á Akranesi, Ingi-
mundur Sigurpálsson, á skrifstofunni
sem hann yfirgefur nú i Fram-
kvæmdastofnun ríkisins.
DV-mynd: GVA.