Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1982, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1982, Blaðsíða 15
DV. FIMMTUDAGUR 29. JULI1982. 15 Árbók Akur- eyrar 1981 er komin út Hjá Bókaforlagi Odds Björns- sonar er nýútkomin Árbók Akureyr- ar áriö 1981 og er þaö annar árgang- ur bókarinnar. Arbók Akureyrar er 216 blaðsíður og mikill fjöldi ljósmynda af flestum helztu atburðum á Akureyri árið 1981 er í bókinni, alls yfir eitt hundrað myndir. \ Ritstjóri bókárinnar er Guðbrand- ur Magnússon blaðamaður. I Arbókinni eru fréttir sem tengj- ast Akureyri raktar í timaröð, en einnig eru í bókinni greinar um ýmis málefni sem hátt bar á árinu. Þar eru m.a. greinar um verkmennta- skóla, fjallaðerumlaunadeilufóstra við bæjaryfirvöld, greint er frá undirbúningi kvennaframboðsins, sagt frá biskupskosningu séra Pét- urs Sigurgeirssonar og prests- kosningum sem fylgdu í kjölfarið. I kafla um atvinnulífiö er greint frá rekstri Slippstöðvarinnar, skýrsla um sjávarútvegsfyrirtæki í bænum, vikið er að verzlunarmálum, iönaði og sérstök grein er um samvinnu- hreyfinguna. I menningarkaflanum er t.d. sagt frá tilraun á útgáfu ópóli- tísks fréttablaðs, undirbúningi þess að stofna útibú Ríkisútvai psins á Akureyri, taldar eru upp allar bækur sem út komu á Akureyri, leikdómur séra Bolla Gústavssonar í Laufási um Jómfrú Ragnheiði er þarna, yfir- lit myndlistasýninga og tónleika. Sérstakur kafli er um íþróttir þar sem vikið er að flestum greinum. Einnig eru greinar um hesta- mennsku, bridge og frímerkjasöfn- un. Látinna Akureyringa er getið og fleira sem of langt mál yrði upp aö telja. Þeir sem þess óska geta pantaö Ár- bók Akureyrar frá Bókaforlagi Odds Björnssonar á Akureyri. Nýjar bækur Stuttljóð eftir dr. Svein Bergsveinsson Stuttljóð eru skv. lýsingu höfund- ar: .^máljóð, heimspekileg og húmor, sem ekki ætti að bana nein- um við lesturinn, þau eiga heldur aö upplífga menn”. Sum ljóðanna hafa birzt áður í tímaritinu Spegillinn, sem Sveinn tengdist á árunum 1945— 53. Meðal samstarfsmanna hans þar var Halldór Pétursson. Halldór myndskreytti bæði ljóð og greinar, sem birtust eftir Svein. Fylgja nokkrar af teikningum Haildórs ljóð- um Sveins í þessari litlu bók. Að sögn Sveins þá hefur danski þúsundþjalasmiðurinn Piet Hein haft sín áhrif á stuttljóðin. Dr. Sveinn Bergsveinsson er fædd- ur 23. okt. 1907 aö Aratungu í Hróf- bergshreppi, Strandasýslu. Þriðji í röðinni af 15 systkinum. Hóf nám við MA 1927. Stúdent 1932. Fór í Háskóla Islands 1932 og lauk prófi í norrænum fræðum 1936. Hlaut1 styrk til náms í hljóðfræði við Berlínarháskóia 1936—37. Fór til Kaupmannahafnar 1937, skrifaði doktorsritgerð um íslenzka setninga- hljóðfræði (á þýzku). Lauk henni 1939 og var hún tekin gild til doktors- varnar 1940 við Kaupmannahafnar- háskóla. Sveinn hlaut doktorsnafn- bót 1941. Starfaöi í Berlín 1941—44 er hann veiktist af berklum. Kom haustið ’44 til Vifilsstaða. Stunda- kennari við MR 1946—47 og Gagn- fræöaskóla Vesturbæjar 1946—48. Starfaöi við Orðabók Ht og 1. hefti Nýyrða 1948—53. Boðin staða við Há- skólann í A-Berlín, starfaðifyrst sem lektor en frá 1961 sem yfirprófessor við norrænudeildina. Býr nú í A- Berlin. BIFREIÐA SKEMMUVEGI 4 KOPAVOGI SIMI 7 7840 KVERKSTÆÐIÐ nostás IGRJÓTGRINDURI Á FLESTAR TEGUNDIR BIFREIÐA | Eigum á lager sérhannaðar grjót- grindur á yfír 50 tegundir bifreiða! Ásetning á staðnum SERHÆFÐIRIFIAT 0G CITROEN VIOGERDUM Ljósritum \sant - istundis Ssekjunf gendum S T FJÖLRITUN LJÓSRITUN VÉLRITUN jf ■» hji r 11 W 1 ** 1» w ■ -REYKJAVÍK - SIM124: iiain Sætaáklæði í flestargerðirbíla. Falleg - einföld - ódýr. BENSÍNSTÖÐVAR SKELJUNGS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.