Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1982, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1982, Blaðsíða 23
DV. FIMMTUDAGUR29. JULl 1982. mun klippa jafnóöum myndina um leið og lokið er töku á hverju atriöi, meðan maður hennar tekur til við hið næsta. Alain Levent er fæddur í París, 15. september 1934, og er sonur eins af fyrstu kvikmyndatökumönnum þar í' iandi. Segist Alain hafa veríð stað- ráðinn í að feta í fótspor föður síns frá 13 ára aldri. Er hann var kall- aöur til herþjónustu var hann svo heppinn að vera skipaður við kvik- myndadeild franska hersins þar sem hann fékk tækifæri að æfa sig við kvikmyndatöku. Að lokinni herþjón- ustu fór hann að vinna sem aöstoöar- maður við kvikmyndatöku og vann með ýmsum þekktum leikstjórum svo sem Truffaut (Les 400 coups) og Chabrol (Le beau Serge). Hann varð fljótt þekktur og var orðinn yfirmaður kvikmyndatöku innan við þrítugt. Árið 1964 vann hann kvikmyndatökuverðlaunin i Cannes (Grand prix de la photo) fyrir myndina La Religieuse eða Nunnan, sem byggð var á skáldsögu Diderot. Leikstjóri þeirrar myndar var Jacques Rivette og varð myndin mjög vinsæi þrátt fyrir að De Gaulle hafi látiö banna hana um tveggja ára skeið. Sagt er að kona De Gaulle hafi beöiö mann sinn um þaö því að myndin réðst á Kaþólska kirkju, en frú DeGaulle var mjög trúuð. Við eina af myndum sínum hitti Alain, Jacques Brél, en hann var mjög frægur söngvari og leikari í Frakklandi. Þeir urðu góðir vinir og hjálpaði Brél Aiain að gera sína fyrstu mynd sem leikstjóri. Sú mynd fékk ágæta dóma en í þeirri mynd lék komung stúlka, sem heitir Isabelle Huppert, og er orðin fræg leikkona bæði innan Frakklands og utan. Einnig hefur Alain leikstýrt nokkrum myndum fyrir sjónvarp. Hvernig vildi til að þú ákvaöst aö koma til Islands? Alain: .JF’orstjóri Antenne 2 hringdi í mig og bauð mér að leik- stýra mynd sem byggð yrði á skáld- sögunni La traversée de l’Islande eftir J.C. Barreau. Eg las bókina og leizt vel á. Svo einkennilega vill til að pabbi kom einhvern tíma til Islands og gerði stutta mynd um Reykjavík. Annars vissi ég lítiö um land og þjóð og kom hér fyrst í mai 1980 til að athuga staðhætti. Eg heillaðist alveg af landinu og vissi þá að ég myndi jafnvel fara lengra en bókin gerir í lýsingum á hinu sterka og einkennilega sambandi milli mannsins og náttúrunnar. ” Um hvað fjallar myndin? „Hún segir frá hópi franskra feröamanna, sem koma til tslands illa undirbúnir, og ætla sér að ganga þvert yfir landið. Þeir hafa litla hugmynd um hvers vænta megi af ferðinni og ferðin verður svaðilför. Hópurinn einangrast og í þessu litla þjóðfélagi magnast ástríður og afbrýðl I hópnum eru 3 manneskjur sem eru mest áberandi en landið sjálft verður aöalpersónan; eins- konar spegill fyrir hina og sýnir þeirra innri mann. Aðalhlutverkin eru í höndum Frederic de Pasquale, sem er einnig höfundur samtala í myndinni, Pierre Francois Pistorio og Agnés Garreau. En ekki má gleyma Islendingunum sem vinna við myndina. Eiríkur Thorsteinsson, sem stundar nám í kvikmyndagerð í París, er aðstoðarmaður minn, Filippus Pétursson, sem skipuleggur ferö hópsins um landiö fyrir Ferða- skrifstofu ríkisins og leikur einn af ferðalöngunum og Friðrik Haralds- son leikur íslenskan leiðsögumann.’ ’ Kona Alain, Ariane Broeglin, hefur unniö við klippingar á myndum og hljóðböndum síðastiiöin 10 ár. Hún hefur klippt bæði fyrir kvikmyndir og sjónvarp og hefur unnið með ýmsum þekktum leikstjórum í Frakklandi svo sem Tavemier Hanin og Grangier. Hvemig lærir maður að verða klippari? Ariane: „Nú eru skólar til þess en ég lærði að klippa á vinnustofu. Síðan vann ég við að klippa 6 stórmyndir og fékk þá réttindi til aö hafa yfimm- sjón með klippingu. Klipping er ekki listgrein heldur handiön, að vísu vandmeðfarin, en ekki list eins og til dæmis leikstjórn.” Hafið þið hjónin unnið saman áður? Ariane: „Við unnum saman í fyrrasumar við gerð stuttrar heimildarmyndar en þá voram við í sömu borginni. Núna verð ég ein í París að klippa þau atriði sem ég fæ send héðan. Þó svo að við séum búin að ræða mjög mikið um myndina er þetta hættulegt og hver veit nema úr verði skilnaður.” Og hvenær verður svo myndin sýnd? Ariane: ,,Ætli hún verði ekki tilbúin í byrjun desember og sýnd fljótlega eftir þaö. Islenska sjón- varpið fær að sýna hana endur- gjaldslaust því það hefur lagt okkur tiitæki.” Ætlið þið að koma hingað aftur? Alain: „Alveg ábyggilega. Við hjónin höfðum einnig samvinnu við gerð tvíbura sem eru 2 1/2 árs og eiga eftir að koma hingað í frí. Einnig langar mig til aö gera hér mynd að vetri til. Eg kom hingað í janúar síðastliðnum og hreifst mjög af vetrarveðrinu. Hún á að heita eftir algengasta orðinu í íslenska útvarpinu ,,Skýjaö”. -Sigríður Vigfúsdóttir. Auóvitað fær Stína dúkki fiítttilEoben en kiakkamir boma 1.085.-króntir! ( helgarferöunum okkar til Kaupmannahafnar í sumar hugsum við sérstaklega um börnin. Tívolí, dýragarðurinn og Bakkinn eru draumastaðir allra krakka og fullorðinna raunar líka. Við bjóðum þægilegt flug á föstudegi, gistingu á úrvals hótel- um í herbergi með baði, ásamt morgunverði og heimflug á mánudegi. Verðið er frá 4.254,- kr. fyrir fullorðna en frá 1.085,- kr. fyrir börn 11 ára og yngri í herbergi með foreldrum sínum og það kostar ekkert að láta Stínu dúkku fljóta með. Smellið þið nú krökkunum í strigaskóna og sjálf- um ykkur í stellingar og drífið í að kaupa miða strax því sætafjöldi er takmarkaður og ferðirnar fyllast óðum. Leitið upplýsinga hjá söiuskrifstofum Flug- leiða, umboðsmönnum eða ferðaskrifstofun- um. Farpantanir eru einnig teknar í síma 25100. FLUGLEIDIR Gott fólk hjá traustu félagi Háð samþykki viðkomandi stjómvalda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.