Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1982, Síða 3
DV. FÖSTUDAGUR13. AGÚST1982.
3
DANSINN DUNAÐI
í HELLISGERDI
1 Hellisgerði er ekki dansað á upp garðveizlu með kaffi og kræsing-
hverjum degi. En góða veðrið í gær gaf um. Rútur Hannesson mætti með nikk-
fullt tilefni til að gera sér dagamun. una og von bráðar var stiginn dans við
Heimilismenn á Sólvangi í Hafnarfiröi Ola Skans og fleiri óskalög.
héldu síðdegis út í Hellisgerði og slógu DV-mynd: Bj. Bj.
Atvinnuástandið:
Heldur skárra í
júlí en júní
Heldur rofaði til í atvinnumálum hér
á landi í júlimánuöi, ef miöaö er við
mánuöinn á undan.
Skráðir atvinnuleysisdagar voru
7.151 um land allt, en í júní tæplega tíu
þúsund. Þetta er þó mikil aukning frá
júlímánuði 1981, þegar skráðir voru
3.900 atvinnuleysisdagar. Hefur þessi
þróun öll verið á sömu lund það sem af
er árinu. Til merkis um það eru at-
vinnuleysisdagar fyrstu sjö mánuði
þessa árs um 140 þúsund, en voru um
68 þúsund sama tímabil í fyrra.
Tölumar fyrir júlí jafngilda því að
330 manns hafi verið skráöir atvinnu-
lausir allan mánuðinn eða 0,3% af
áætluðum mannafla. Þar eru konur
enn sem fyrr í miklum meirihluta eða
225.
Flestir eru atvinnulausir í Reykjavik
eða 95. Þar næst kemur Norðurland
vestra meö 59 og Norðurland eystra
meö 53. Bezt virðist ástandið á Vest-
fjörðum, en þar er einungis einn karl-
maðurskráður, álsafiröi.
Af stærri kaupstöðum má nefna
Kópavog með 17, Hafnarfjörð meö 20,
Akranes með 13, Siglufjörð með 48,
Akureyri meö 44, Selfoss með 16 og
Keflavík meö 15 skráða. I Vestmanna-
eyjum voru 5 á atvinnuleysisskrá.
-JB
Árneshreppur:
Léleg grasspretta
og útlitið svart
— en gott hljóð i íbúunum
Heyskapur er víöast hvar byrjaður í
Árneshreppi. Hér hefur verið mikiö um
þurrka, sem háð hefur grassprettu og
auk þess er talsvert kal í túnum og víða
mikill arfi. Þó hefur rignt töluvert
síðan heyskapur hófst.
Hjá Sigursteini Sveinbjömssyni,
bónda í Litlu-Ávik, sem fékk 35 vagna
af heyi í fyrrasumar, fást nú aðeins 10
vagnar af sömu túnsléttunni. Sömu
sögu er að segja víðar hér í hreppnum.
Útlitið er ekki glæsilegt. Grásleppa
brást alveg, grasspretta er lítil og sel-
veiði ekki stunduð þar sem selskinnin
eru alveg verðlaus. Rekaviöur er með
minna móti og eftirspurn eftir honum
minni en verið hefur undanfarin ár.
Sömu sögu má segja af dúntekjunni,
sem einnig er í minna lagi og hefur
dúnn lækkað geysilega í veröi. Kindur
voru á fullri gjöf frá 20. september sl.
fram í miðjan júní og því litlar sem
engar fyrningar frá síðasta ári.
Þrátt fyrir þessi áföll lítur fólk hér
björtum augum á framtíðina. Engan
hef ég heyrt tala um verkföll eða
annað, sem vinsælt er í Reykjavík og
víðar. Mættu fleiri taka sér fólkið hér á
þessu afskekkta svæði til fyrirmyndar.
Regína Thorarensen
HRAUN
utanhússmálmng
meiraen
15ára
ending
eru bestu
meðmælin
Æmlmálninglf
Snorrí Finnlaugsson
bæiarrítari á Dalvík
Snorri Finnlaugsson hefur verið ráð-
inn bæjarritari á Dalvík. Tekur hann
við störfum í byrjun október, um líkt
leyti og Stefán Jón Bjarnason, sem
nýlega hefur verið ráðinn bæjarstjóri
á Dalvík.
Snorri Finnlaugsson er Reykvíking-
ur, en á ættir að rekja í Svarfaðardal,
þannig að hann leitar á slóðir forfeðra
sinna með því að flytja til Dalvíkur.
Snorri hefur verið erindreki
Framsóknarflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra um eins árs skeið, en
auk þess hefur hann verið afleysinga-
maður hjá Degi, málgagni Fram-
Leituðu að
lyfjum
í gúmmí-
Menn í lyfjaleit rótuðu í gúmmí-
björgunarbát togarans Sigurðar í
fyrrinótt. Voru hylki bátsins opnuö
og leitað að lyfjum. Ekkert hafðist
upp úr krafsinu og er gúmmí-
björgunarbáturinn óskemmdur.
Ekki var fariö inn í sjálfan togar-
ann. Ovenjumikiö er um aö leitað
sé að lyfjum í björgunarbátum
skipa um þessar mundir. -JGH
sóknarflokksins. Snorri er stúdent frá
hagfræðideild Verzlunarskóla Islands.
Fimm umsóknir bárust um starf
bæjarritara á Dalvík. Tvær þeirra
voru dregnar til baka áður en til ráðn-
ingar í stöðuna kom. Annar þeirra sem
dró umsókn sina til baka var Rögn-
valdur Skíði Friðbjömsson, en aðrir
umsækjendur óskuöu nafnleyndar.
GS/Akureyri
Reykjahlíd,
Mývatnssveit:
Gífurleg
aðsókn að
nýju lauginni
Gífurleg aösókn hefur verið að
nýju sundlauginni, sem vígð var í
Reykjahlíð í Mývatnssveit í sumar.
Frá vigsludegi sem var 25. júní
og fram til 11. ágúst höfðu 15.774
heimsótt laugina. Metaðsókn yfir
daginner860manns.
I sundlauginni, sem er 25 sinnum
11 metrar að stærð, er mjög góð
aðstaða, heitir pottar með vatns-
nuddi og fleiru sem tilheyrir. Hafa
ferðamenn og aðrir sannarlega
kunnað aö meta laugina í sumar.
-JB/FB, Mývatni
að notaðir
VOLVO
bílar
séu betri
en nýir bílar
af ódýrari
gerðum
Opið laúgardaga frá kl. 10—161
VOLVO 244 DL '82
ek. 15.000, sjálfsk. Verð kr. 200.000
VOLVO 244 GL '81
ek. 36.000, beinsk. Verðkr. 185.000.
LAPPLANDER '81
ek. 25.000, beinsk. Verðkr. 195.000.
VOLVO 245 GL '80
ek. 43.000, beinsk. Verðkr. 185.000.
VOLVO 245 GL '79
ek. 38.000, beinsk. Verö kr. 165.000.
VOLVO 244 GL '80
ek. 27.000, beinsk. Verð kr. 170.000.
VOLVO 244 DL '79
ek. 50.000, beinsk., Verðkr. 130.000.
VOLVO 244 DL '78
ek. 62.000, sjálfsk. Verð kr. 125.000.
VELTIR
SUÐURLANDSBRAUT 16 1