Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1982, Qupperneq 6
6
DV.FÖSTUDAGUR13. AGUST1982.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Loks fáum við aftur nýjar kartöf lur:
12 tonna sending frá
Þykkvabæ á markaðinn
Eftir langa biö eru nýjar íslenzkar
kartöflur loks aftur komnar á mark-
aðinn. Er hér um aö ræöa kartöflur frá
Þykkvabæ og kom fyrsta sendingin
meö flutningabíl til Reykjavikur á
miðvikudag. Voru það 12 tonn aöallega
gullauga, en einnig ostara og aörar
tegundir. Verð á 2 1/2 kg pokum er
44,25 kr.
Aö sögn Eövalds B. Malmquist, yfir-
matsmanns garðávaxta, eru horfur á
sprettu sérlega góöar, en kartöflumar
sem nú koma á markaöinn voru settar
niöur 20. maí. Til samanburöar má
geta þess aö í fyrra komu fyrstu nýju
íslenzku kartöflumar ekki á mark-
aðinn fyrr en um 20. ágúst. Eðvald
kvað erfitt aö segja til um hvaö upp-
skeran á öllu landinu yröi mikil í ár, en
ef tíö héldist þokkaleg og sprettan færi
fram úr meöallagi, mætti búast viö um
200.000 tunnum. Er þaö langt umfram
neyzlu á íslenzkum kartöflum, sem er
um 140.000 tunnur.
Eövald sagöi aö kartöflumar sem nú
væm aö koma á markaöinn væru
ákaflega vandmeöfarnar. Þær heföu
verið teknar upp meö vélum og ef aö
hýöiö flagnaði viö upptökuna snar-
minnkaöi geymsluþol þeirra.
Ekki kvaöst hann vita hvort meira
magn af íslenzkum kartfölum væri
væntanlegt á markaöinn, það myndi
alveg fara eftir eftirspurn.
-SA.
Nýju kartöflurnar í Grænmetisverzlun
landbúnaöarins koma frá Þykkvabæ
og eru þær stórar og fallegar. Þessar
eru af tegundinni ostara, en byrjaö
var aö rækta þá tegund á íslandi fyrir
nokkrum árum. Þykja þær henta vel í
franskar kartöflur og til bökunar.
DV-mynd: GVA.
„Kvikmyndaúrvalið batnað
mikið undanfama mánuði”
segir Ástþór Ægir Gíslason í Vídeóbankanum
„Viö emm nú meö á sjöunda
hundrað titla til leigu og emm sífellt aö
bæta við okkur, því að viðskiptavin-
unum fer ört fjölgandi,” sagöi Ástþór
Ægir Gíslason í Vídeóbankanum er viö
litum inn hjá honum um daginn.
Tiiefniö var aö kynna okkur litillega
leigukjör á myndbandaleigunum og
þær myndir sem standa leigjendum til
boöa.
Ástþór sagöi aö langflestar mynd-
imar væm framleiddar í Bandaríkj-
unum og Bretlandi. Myndir frá öðmm
löndum væm sárafáar og þeir sem
legöu leiö sína á myndbandaleigur
þeirra erinda aö ná sér í franskar,
þýzkar eöa japanskar myndir myndu
sennilega þurfa aö snúa tómhentir
heim.
Myndirnar em flestar fengnar frá
Danmörku eöa Bretlandi. Sumar eru
lánaðar til sex mánaöa frá vídeó-
klúbbi í Danmörku, en flestar em
myndimar keyptar til eignar. ,dlver
einasta mynd er lögleg,” sagöi Ástþór
og bætti því viö aö flestar myndbanda-
leigur hefðu nú losaö sig viö allar
ólöglegarmyndir.
Vinsælastar era spennumyndir
ýmiss konar, svo sem leynilögreglu-
myndir og annað í þeim dúr. Aö sögn
Ástþórs njóta góöir vestrar og stríös-
myndir einnig ætíö mikilla vinsælda.
,,Annars hefur úrvaliö batnað mikiö
undanfama mánuöi, hér áður vom
einu löglegu myndirnar ákaflega
lélegar. Þetta voru oft „döbbaöar”
myndir, t.d. ítalskar myndir sem enskt
tal haföi verið sett inn á. Utkoman var
oft á tíðum sú aö tal, hreyfingar og lát-
bragð passaöi engan veginn saman.”
Ástþór sagöi einnig aö viðskipta-
vinirnir væru úr öllum stéttum og á
öllum aldri. „Ég get nefnt sem dæmi
aö tvær konur á áttræðisaldri em á
meðal minna beztu viðskiptavina,”
sagði Astþór.
1 júní sl ákváðu flestar myndbanda-
leigur á höfuöborgarsvæðinu að
samræma leigugjöld sín á mynd-
böndum og myndsegulböndum og var
Vídeóbankinn aðili aö því samkomu-
lagi. Ef myndband meö einni kvik-
mynd er leigt í einn dag kostar það 50
kr. Sé myndbandið leigt til lengri tíma
lækkar veröiö í 30 kr. á dag á ööram
degi leigutímans. Barnaefni, sem er
innan viö klukkustund að lengd, kostar
40 kr. á dag. Þá er hægt að fá leigð
myndsegulbönd og kostar þaö 180 kr. á
dag, óháö því hvort tækiö er leigt í einn
dag eða lengur. Að sögn Ástþórs hefur
hann tvívegis tapað myndsegulbands-
tækjum. I fyrra skiptið var tækið týnt í
fjóra mánuöi, en síöara tækiö hefur
enn ekki komiö í leitimar.
Til aö fá myndsegulbandstæki leigö
verður aö sýna persónuskilríki og
sama gildir um útleigu á mynd-
böndum. Þó kvaðst Ástþór gera undan-
tekningar varöandi myndböndin ef um
væri að ræða fólk sem komið værí um
langan veg, t.d. ofan úr Mosfellssveit.
Þá léti hann stundum nægja aö skrifa
hjá sér númerið á bíl viðkomandi. En
myndsegulbandstæki sagöist Ástþór
aldrei leigja án framvísunar persónu-
skilríkja.
-SA.
Astþór Ægir Gíslason við nokkur þeirra myndbanda, sem Vídeóbankinn hefur til leigu. ..ar myndirnar em fyrir
VHS-kerfi, en að sögn Astþórs era langflest myndsegulbönd á íslandi af þeirri tegund. Þó kvaðst Ástþór um tima
einnig hafa verið með myndir fyrir Beta-kerf ið, en hann hefði nýverið hætt því.
DV-mynd: EinarÓlason.