Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1982, Síða 8
iV.'.V.VAV.V.VAV.V.V.V.V.V
8
DV. FÖSTUDAGUR 13.ÁGUST 1982.
Hjónamiðlun og kynning
er opin alla daga.
Svarað í síma 26628.
Kristján S. Jósefsson
Laus staða
Kennarastaöa í hagfræöi viö Menntaskólann við Hamrahlíö er laus til um-
sóknar. Um er aö ræöa hlutastarf, 1/2 — 2/3 fullrar stööu.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf skulu hafa
borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 30.
ágúst n.k. Umsóknareyöublöö fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið, 11. ágúst 1982.
ov
óska eftir
BLAÐBERA
í hluta af Sudurbœ
frá og med 1. sc/J.
UMBOÐSMAÐUR
SANDGERÐI
SU N-kvartmílukeppni
Laugardaginn 14. ágúst kl. 2 e.h.
Keppendur mæti kl. 12.
Keppni nr. 3 til íslandsmeistaratitils.
Keppt í öllum flokkum. Nýir keppnisbílar.
Bikarar gefnir af Austurbakka hf.
SUN mótorstillitæki.
Stjórnin *I
*T ■*
ÍV/WW.V.V.VAVAVJV.WWWAVW/AVAVAÍ
Allir
á vöifínn
“HAUKAR!~
Mœtið á leik
Í.K. OG HAUKA
á Kópavogsvelli
„ kl.l9íkvöld
Afram Haukar
A
m
Útlönd Útlönd Útlönd
Öryggisráðið
ályktaði enn
um Líbanon
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
ályktaði enn í gær um Líbanonmál-
ið og hvatti samhljóöa til þcss að bar-
dögum yrði þegar í stað hætt og
ítrekaði kröfu sina um að friðar-
gæzlumenn Sameinuðu þjóðanna
fengju að koma til Beirút til þess að
tryggja að vopnahié yrði virkt þar og
að brottflutningur skæruliða PLO
gætl farið friðsamlega fram.
ísraelsmenn hafa tvívegis áöur
hafnað samþykktum öryggisráðsins
þar sem farið er fram á að friðar-
gæzlumenn frá Sameinuðu þjóðun-
um komi til Beirút.
Stjarna úr meira en 70 kvikmyndum fallin í valinn:
HENRYFONDA
LÍZTÍGÆR
— Reagan f ór viðurkenningarorðum um hinn látna leikara
Leikarinn Henry Fonda, stjama úr
meira en sjötíu kvikmyndum, lézt úr
hjartabilun í Los Angeles í gær, 77
áragamall.
Shirlee, fimmta eiginkona leikar-
ans, var við rúmstokk hans þegar
hann lézt. Böm hans, Jane og Peter
Fonda, sem bæöi eru eins og faöir
þeirra heimskunn fyrir kvikmynda-
leik, flýttu sér til sjúkrahússins strax
og þeim bámst tíöindin.
Ekki em nema tæpir níu mánuöir
síðan Fonda vann sín fyrstu óskars-
verðlaun sem bezti kvikmyndaleik-
ari ársins. Verölaunin fékk hann fyr-
ir leik sinn í kvikmyndinni On Golden
Pond (Síðsumar) þar sem hann þótti
túlka frábærlega vel aldraöan mann
sem stóö frammi fyrir hmmleika og
dauöa.
Fonda notaöi hjartagangráö síö-
ustu mánuði lífs síns og var aö mestu
bundinn viö hjólastól eöa varö aö
styðjast viö hækjur síöustu átján
mánuöina sem hann lifði. Frá þeim
tima vék hin 49 ára gamla eiginkona
hans og fyrrverandi flugfreyja,
Shirlee, sjaldan frá hliö hans.
Hún skiptist á viö börn hans, Jane
og Peter, um aö sitja viö rúm hans
Enginn veit með neinni vissu hversu margir óbreyttir íbúar hafa látið lífið i
styrjöidinni i Líbanon. En engum ætti að dyljast að þjáningar óbreyttra
borgara hafa verið skelfilegar. Myndin er af litlum dreng sem særðist illa á
höndum í einni af fjölmörgum loftárásum ísraelsmanna á Bcirút aö undan-
förnu.
Henry Fonda flytur ávarp eftir að
hafa hlotið heiðursóskarsverðlaun i
hittifyrra. En það var ekld fyrr en fyr-
ir tæpum níu mánuðum sem hann
hlaut loks óskarsverölaun fyrir bezta
frammistöðu karlleikara á árinu. Þá
var hann orðinn sjúkur og gat ekki
veriö viðstaddur verðlauna-
afhendinguna. Jane Fonda, dóttir
hans, tók við verðlaununum fyrir
hans hönd.
eftir aö hann haföi verið lagöur inn á
sjúkrahús um síðustu helgi. Þaö var í
fjóröa sinn á síðustu 18 mánuðum
sem hann var lagöur inn á sjúkra-
hús. Fonda haföi einnig átt viö
krabbamein aö stríöa frá því í apríl
1979.
Ferill Fonda sem kvikmyndaleik-
ara nær yfir meira en 54 ár. Hann fór
meö aðalhlutverk í fjölmörgum
þekktum k vikmyndum, þar á meöal:
The Grapes of Wrath, The Ox-Bow
Incident, Young Mr. Lincoln, 12
Angry Men, Jesse James, og Mr.
Roberts. Vinir hans sögöu aö allt
framundir það síöasta heföi hann
verið aö svipast um eftir góöu hand-
riti sem hann gæti endað ferii sinn
meö.
.JF'aöir minn var réttsýnn og rétt-
látur maöur og ég tel aö þaö hafi
komið fram í list hans jafnt sem
einkalífi,” sagði Peter sonur hans aö
honum látnum.
Reagan Bandaríkjaforseti, sem
sjálfur var kvikmyndaieikari hér á
árum áöur eins og alkunna er, fór
viðurkenningaroröum um Fonda í
gær og sagöi að þau Nancy heföu orö-
iö mjög hrygg aö frétta af dauða
hans.
Kyrkti samfanga sína
í hefndarskyni fyrir
leka til lögreglunnar
Italski nýfasistinn Pierluigi
Concutelli, sem afplánar lífstíöar-
fangelsi fyrir morö á dómara, kyrkti í
fyrradag samfanga sinn í öryggisfang-
elsinu í Novara á Italíu. Er þetta í
annaö skiptið á átján mánuöum sem
Concutelli myröir samfanga sinn.
Síðara fórnarlamb Concutelli var
Carmine Palladino, 35 ára gamall
maöur sem handtekinn var grunaöur
um aö hafa átt aöild aö sprengingunni
miklu í Bologna sem kostaöi 85 manns
lífiö fyrir tveimur árum.
Fangaveröir urðu þess ekki varir
hvaö gerzt haföi fyrr en Concutelli kom
að máli við þá og sagðist hafa „bundið
enda á Palladino.”
Aö sögn fangelsisyfirvalda gaf
Concutelli þá skýringu á moröinu aö
Palladino heföi boriö ábyrgö á dauða
annars nýfasista, Giorge Vale að
nafni. Sá var skotinn til bana af lög-
reglunni í úthverfi í Róm í maí síöast-
liðnum.
Palladino var kyrktur meö nælon-
þræði er hann var við leikfimisæfingar
ásamt öörum föngum í fangelsisgarö-
inum.
Concutelli var dæmdur til lífstíðar-
fangelsis árið 1978 eftir að hafa veriö
sekur fundinn um morö á dr. Vittorio
Occorsio, mikils metins dómara í
Róm, sem vann að rannsókn á starf-
semi leiðtoga ný-fasista.
I apríl á síöasta ári kyrkti Concutelli
annan samfanga sinn aö nafni
Ermanno Brezza. Sá haföi áöur veriö
liösmaður í hreyfingu ný-fasista en
snúizt hugur og veitt lögreglunni ýms-
ar upplýsingar um hreyfinguna. Fyrir
þaö hefndi Concutelli meö því að
kyrkja hann er hann var við æfingar í
fangelsisgarðinum eins og Palladino
síðar.
Forstööumanni fangelsisins sem
Concutelli dvelur í var í gær vikið úr
starfi og sögöu yfirvöld aö forstööu-
maöurinn hefði brugðizt í starfi sínu.
Concutelli heföi átt aö vera í einangr-
un. Öafsakanlegt væri aö láta hann
fremja morð á ný sem væri spegil-
mynd hinsfyrra.