Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1982, Page 10
10
Útlönd
DV. FÖSTUDAGUR 13. ÁGUST 1982.
Utlönd
Útlönd
Utlönd
Hálfur mánuður liðinn frá byltingartilrauninni í Kenya:
UPPREISNIN VAR MIKIÐ
ÁFALL FYRIR KENYAMENN
— Ekki eru þó neinar líkur á að Vesturlönd muni haf na „traustum
bandamanni í óstöðugum Keimshluta”
Daniel Arap Moi hyggst snúa sór i auknum mæli að vandamálunum heima fyrír eftir að hafa gegnt
formennsku i Einingarsamtökum Afrikurikja i eittár.
Nú þegar næstum hálfur mánuöur
er liðinn frá hinni misheppnuðu
byltingartilraun í Kenya eru stjórn-
völd að reyna að gera sér grein fyrir
því tjóni sem varö í peningum talið
svo og þeim álitshnekki sem lýðræðið
i landinu hefur orðið fyrir en það
hefur fram til þessa verið talið hið
stöðugasta í allri Afríku.
Lífið í höfuðborginni Nairóbí hefur
nú færzt í eðlilegt horf á ný, en
margir íbúar Kenya láta i ljós þá
skoðun að sú trú þeirra að byltingar-
tilraunir væru bara eitthvað sem
gerðist í öðrurn löndum álfunnar og
„gæti ekki gerzt hér” hafi orðið fyrir
alvarleguáfalli.
Uppreisnin 1. ágúst síöastliðinn
var illa skipulögð og uppreisnar-
mennimir vom illa búnir vopnum.
En uppreisnin var hápunktur vax-
andi óróa á stjórnmálasviðinu í
Kenya síðastliöna átta mánuöi. Á því
tímabili voru margir hörðustu
stjómarandstæðingarnir handteknir
án réttarhalda fyrir þaö eitt að hafa
gagnrýnt stjómina fyrir að ráða ekki
við sífeilt versnandi efnahag
landsins.
Stjóm Danieis Arap Moi, sem
verið hefur mjög hliðholl vestrænum
þjóðum, breytti nýverið stjórnar-
skránni á þann veg að eins flokks
kerfi þaö sem verið hefur við lýði i
Kenya frá því að landið öölaðist
sjálfstæöi, hefur verið lögleitt. Að
mati vestrænna stjómarerindreka er
þetta merki um vaxandi viðkvæmni
stjórnvalda fyrir gagnrýni.
Ekki er vafi á því að sá stööugleiki
sem einkennt hefur pólitískt líf í
Kenya hefur beðið talsverðan álits-
hnekki við byltingartilraunina og
vafalaust á hún eftir að setja mark
sitt á stjórnina á Kenya og stjóm-
málalíf þar í tals verðan tíma.
Eftir að stjórnin hafði tekið harðar
á andstööu i landinu en dæmi vom til
um frá því að Kenya losnaði undan
brezkri stjóm og hlaut s jálfstæði árið
1963, komst stjómin að því að hún
hafði líklega gengið of langt. Deild úr
flughernum, þaðan sem sízt var
vænzt andstöðu eftir því sem vest-
rænir stjómarerindrekar segja,
gerði uppreisn.
Þó svo að ekki sé fyllilega ljóst
hverjir það voru sem skipulögöu
uppreisnina og hvert markmið
þeirra var þá er þó ljóst aö
uppreisnin var illa skipulögð.
Uppreisnarmenn vom illa búnir
farartækjum, olíu vopnum og
mannafla.
Án þess að hafa skriödreka eöa
yfirburði í mannafla virðist svo sem
uppreisnarmenn hafi treyst því að
óánægja alþýðu manna meö
versnandi efnahag landsins og mis-
skiptingu gæðanna yrði til þess að
almenningur myndi þegar í stað
ganga í lið með byltingarmönnum.
Flugmennimir náðu ríkis-
útvarpinu strax á sitt vald og
þvinguöu starfsmenn þar til að
útvarpa í nafni „þjóðfrelsisráðsins”
að stjórninni hefði verið steypt af
stóli og með henni spillingu, harð-
ræði, óstjóm og lögleysu. Þjóöin var
hvötttil aðfagna.
Ekki hafði hvatningin tilætluð
áhrif. Engu að síöur flykktust
þúsundir Kenyamanna, þar á meöal
fjöldi stúdenta, út á götur Nairóbí og
létu greipar sópa um verzlanir sem
og uppreisnarmennirnir. Verzlunar-
menn hafa metið tjónið vegna þessa
upp á hundrað milljón dollara.
Aðeins nokkmm klukkustundum
síðar hafði herinn bælt uppreisnina
niður. Um tvö þúsund hermenn úr
flughernum höfðu þá veriö hand-
teknir af um 2500 manna liði, sem
stóð að uppreisninni.
Vestrænir stjórnarerindrekar
segja að ekki séu fyrir hendi neinar
sannanir um aö uppreisnarmenn-
imir innan flughersins hafi verið í
sambandi við aðrar deildir hersins
eöa andspymuhópa meðal þjóð-
arinnar.
En orðalag á tilkynningum frá
„þjóðfrelsisráöinu” þann tíma sem
það haföi útvarpiö á sínu valdi
minnir mjög á orðalag í dreifiritum,
sem stjómarandstæðingar hafa
dreif t á liðnum mánuöum.
I útvarpstilkynningum uppreisnar-
manna var spilling stjómarinnar
sérstaklega gagnrýnd og er þaö
mjög líkt málflutningi þeim, sem
vinstrisinnaðir stjórnarandstæð-'
ingar hafa haldið uppi að undan-
förnu.
Moi forseti sagði í útvarpsávarpi
eftir að uppreisnin hafði verið bæld
niður að uppreisnarmennimir innan
flughersins hefðu átt sína vitorðs-
menn sem verið hafi í viðbragðs-
stöðu. Sagði hann að þessir vitorös-
menn hefðu bæði verið innan háskól-
ans í Nairóbí og ólöghlýðin öfl önnur.
Háskólanum var enda lokað og
stúdentarnir sendir til heimabæja
sinna þar til annaö yrði ákveðið. Moi
forseti hélt því fram fyrr á þessu ári
að 'þegar stjómartíð hans sem
formanns Einingarsamtaka Afríku-
ríkja væri úti myndi hann einbeita
sér frekar en áöur að innanlands-
málum. Margir vestrænir stjómar-
erindrekar túlkuöu þessi ummæli
hans sem svo aö hann myndi beita
stjómarandstæðinga enn meiri
hörku en áður.
Ekki er ótrúlegt að byltingar-
tilraunin eigi eftir að flýta þessum
aðgerðum forsetans, ekki sízt meöal
þeirra stúdenta sem hann hefur
sakaö um aö efna til óláta undir
merkjum „innfluttrar hugmynda-
fræði”.
Moi getur ályktað sem svo að
uppreisnin sýni að þær aðgerðir, sem
hann hefur áður beitt gegn stjórnar-
andstæðingum, hafi ekki verið nægi-
lega öflugar. Fjórir háskólakenn-
arar höföu veriö handteknir áður en
til uppreisnarinnar kom svo og
George Anyona, róttækur
þingmaður. En í fréttum blaða var
hann bendlaöur við tilraunir til að
mynda flokk sósíalista til mótvægis
við stjómarflokkinn, Afríska þjóðar-
sambandið (KANU). Tveir lögfræð-
ingar höfðu einnig veriö handteknir
og fyrmm þingmaöur sem sömu-
leiðis haföi verið bendlaður við
umræddan flokk sósíalista.
En Moi gæti einnig ályktað sem
svo að hertar aðgerðir gegn stjórnar-
andstæöingum gætu dregið úr því
áliti sem Kenya hefur notiö á
alþjóðavettvangi.
Um miðjan síðasta áratug dró
talsvert úr te- og kaffiframleiðslu
Kenya og gjaldeyristekjur þjóðar-
innar minnkuöu aö sama skapi.
Vaxandi olíureikningar og aukinn
innflutningur á flestum sviöum sam-
fara kreppu í heimsverzlun hafa
komið efnahag Kenya í hinar verstu
ógöngur.
„Fangelsaðir stjórnarandstæð-
ingar ala af sér fleiri stjórnarand-
stæðinga, einkum á
erfiðleikatímum,” sagði starfs-
maður einnar alþjóðlegrar hjálpar-
stofnunar um stöðuna í Kenya. „Ef
Kenya ætlar að halda sínum
vestrænu vinum og þá ekki sízt bönk-
unum, þá verður Moi að halda
landinuopnu.”
„Vesturlönd hafa hingað til verið
reiðubúin að hjálpa Kenya, traustum
bandamanni í óstöðugum heimshluta
og ekki sjást nein merki þess að það
muni breytast,” sagði einn hinna
vestrænu stjórnarerindreka.
Bandarískir og kanadiskir ferðamenn við komuna til Nairóbi: „Ef
Kenya ætlar sór að halda sinum vestrænu vinum þá verður Moiað
halda landinu opnu."
-GAJ.
Stjórnarherinn iKenya. Hann brást ekki Moi forseta i öríagastundu.