Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1982, Page 26
34
DV. FÖSTUDAGUR13. ÁGUST1982.
Andlát
Lára Pálmadóttir lézt 7. ágúst aö Elli-
heimilinu Grund. Foreldrar hennar
voruhjónin Pálmi Jónsson og Jónína
Jónsdótíir. Hún var ekkja Aöalsteins
heitins Kristinssonar, framkvæmda-
stjóri Sambands ísl. samvinnufélaga.
Þeim varð tveggja bama auöiö.
Sigríður Maria Guðmundsdóttir frá
Æðey andaðist á Grensásdeild Borgar-
spítalansll.þ.m.
Birgir Traustason, Hólagötu 2
Vestmannaeyjum, er lézt 4. ágúst,
verður jarösunginn frá Landakirkju i
Vestmannaeyjum laugardaginn 14.
ágústkl. 14.
Afmæli
75 ára er i dag, 13. ágúst Gunnar Egils-
son Guðmundsson málarameistari,
Bræöraborgarstíg 53 hér í Rvík.
70 ára er í dag, 13. ágúst, Steinn
Kristjánsson, Olafsbraut 48 í Olafsvik.
— Hann verður í dag á heimili sonar og
tengdadóttur á Holtabrún 8 þar í bæ.
80 ára er i dag frú Jónina Þórðardóttir
frá Árbæ í Vestmannaeyjum, Suður-
götu 14 í Keflavík. Hún ætlar að taka á
móti gestum í dag milli kl. 15 og 19 í
Kirkjulundi. Eiginmaður hennar var
Magnús Kristinsson og eignuðst þau
fimmböm.
Oddrún Oddsdóttir er 90 ára i dag, 13.
ágúst. Hún er vistkona að elliheimilinu
Sólvangi, áður að Reykjavíkurvegi 15b
Hafnarfirði. Oddrún er fædd þann 13.
ágúst 1892, að Hellissandi Snæfellsnesi,
en flutti til Hafnarfjarðar áriö 1925 og
hefur búið þar síðan.
Ýmislegt
Gangurinn númer tvö
Froskurinn hefur gefið út Ganginn númer tvö.
Gangurinn númer tvö er mappa sem inniheld-
ur þrettán listamenn af fimmtán, sem sýndu í
gallerí Ganginum dagana 10. júlí til 10. ágúst
1982.
Froskurinn hefur einnig gefið út Dagbók
Helga Þ. Friðjónssonar á þessu ári og eftir-
farandi titla sem teljast vist eins konar bóka-
flokkur:
The D.S. lick nets — John M. Armleder og
Helgi Þ. Friðjónsson. The Rex headed master
— John M. Armleder, Helgi Þ. Friðjónsson,
Daði Guðbjörnsson, Kristinn G. Harðarson.
Onefnd — Þór Vigfússon. The Kit headed ball
— Helgi Þ. Friðjónsson. England Sheet stylus
— Daði Guðbjömsson, Tumi Magnússon.
MMAARQQEUIENSSDWEIPTOZSEERELS-
LAND — Sólveig Aðalsteinsdóttir. M N
TZ Land — Eggert Pétursson, Ingólfur Arnar-
son, Sólveig Aðalsteinsdóttir. Onefnd — Egg-
ert Pétursson. Ball Signature — Tumi
Magnússon. Opus — Ingólfur Amarson.
London kit stylus mask — Daði Guðbjörnsson,
Helgi Þ. Friðjónsson. Schotland — Daði Guð-
bjömsson.
Væntanlegar eru fleir bækur í þennan bóka-
flokk. Einnig kom út bókin Theoretical
Mechanics og eru höfundamir nemendur í
nýlistadeild M.H. ásamt tveimur kennurum.
Bækurnar er hægt að kaupa hjá höfundunum
og í Eymundsson, Langbrók og Bókavörð-
unni.
Ferðalög
Sunnud. 15. ág.
Útivistardagur f jölskyldunnar
1. Kl. 10.30 Ketilstígur-Krísuvík — pylsu-
veizla, verö kr. 100..
2. Kl. 13.00 Seltún-Krísuvík — pylsuveizla.
Létt ganga fyrir alla fjölskylduna^ Verð kr.
100,- fyrir fulloröna, 20,- fyrir böm. (Pylsur
innifaldar í veröinu). Söngur og leikir.
3. Kl. 8.00 Þórsmörk. Verð kr. 250,- (Ath. hálft
gjald fyrir börn 7—15 ára). Brottför frá BSI,
bensínsölu (í feröum 1 og 2 er stanzaö í
Hafnarfiröi v/kirkjug.).
Sumarleyfisferðir:
1. Laugar-Hrafntinnusker-Þórsmörk. 18.—22.
ágúst. 5 daga bakpokaferð. Fararstj. Gunnar
Gunnarsson.
2. Gljúfurleit-Þjórsárver-Amarfell hið mikla.
19.—22. ágúst. 4 dagar. Einstakt tækifæri.
Fararstj. Hörður Kristinsson.
3. Sunnan Langjökuls. 21.—25. ágúst, 5 daga
bakpokaferð.
4. Araarvatnsheiði. Hestaferðir — veiði. 7
dagar. Brottför alla laugardaga. Upplýsingar
og farseðlar á skrifstofunni Lækjargötu 6a, S:
14606. SJAUMST. Ferðafélagið Utivist.
Kirkjustarf
Samhjálp
Samkoma verður í kvöld kl. 20.30 að Hverfis-
götu 44, sal söngskólans. Allir velkomnir.
Samhjálp.
Langholtssöfnuður.
öldruðum vinum Langholtskirkju er boðið i
skemmtiferð 18. ágúst. Farið um Þingvöll —
Grímsnes — ölfus. Lagt af stað frá Safnaðar-
heimílinu klukkan 13.
Bifreiöastöðin Bæjarleiðir leggur til bíla og
bílstjóra. Safnaðarfélögin gefa kaffi og með-
læti að Minni-Borg.
Nánari upplýsingar í síma 35750.
Safnaöarfélögin.
Tapað -fundið
Gleraugun eru týnd
Ung stúlka var stödd í Hollywood laugar-
daginn 24. júli. Hún notar gleraugu og átti
oft tilað missa þau þetta kvöld. Hún bað því
dansherra sinn að geyma gleraugun fyrir sig
en gleymdi síðan að nálgast þau áður en hún
fór. Hún lýsir því nú eftir dansherranum sem
er dökkhærður með yfirvaraskegg. Hann er
beðinn að hafa samband við DV-dagbókina
sem fyrst í síma 86611.
Hvenær "/J
byrjaðir þú
____yae™ ®—
í gærkvöldi í gærkvöldi
ÞESSISATÍNDÚKKA
Skelfing var fimmtudagsleikrit út-
varpsins, Kvöldið sem ég drap
George, leiðinlegt. Svona margtöngl-
uð tugga um firringu og skort á ná-
ungakærleik er álíka áhrifarík og
vatnsgusan sem stökkt var á gæsina.
Auðvitað er einmanaleikinn voðaleg-
ur en sjálfsásökun Earls var heldur
langsótt. Sama sagan endurtók sig í
Vandræöalegu atviki, smásögu eftir
James Joyce, sem var flutt síðar á
dagskránni. En efnistök í þessum
tveim verkum voru harla ólík og
saga Joyce bar eins og gull af eir.
Þýðing Sigurðar A. Magnússonar á
sögunni var vönduð eins og við var
að búast.
Ég hefði kastað mér út í dökkleitar
hugsanir um firringu í gærkvöldi ef
mér heföu ekki borizt til eyrna tónar
úr Satíndúkku Ellingtons. Og viti
menn, þeir komu úr útvarpsviðtæk-
inu. Þessi satíndúkka, hún er af-
kvæmi negra sem vafalítið var alinn
upp í svartasta frumskógi stórborg-
ar vestur í Ameríku. Svona geta
menn verið skemmtilegir í tónum
einmitt sama kvöldiö og líftóran er
murkuð úr George hér og George
þar.
A dagskrá útvarpsins í gærkvöldi
var þessi líka indæli og léttfríkaði
smáþáttur með nafninu Stjórnleysi,
— Þáttur um stjórnmál fyrir áhuga-
menn. Nafnið reyndist auðvitað arg-
asta öfugmæli. Hér var kominn þátt-
ur fyrir þá sem eru orðnir afhuga
stjórnmálum með öllu og hafa greitt
atkvæði sitt meö hangandi hendi í
síöustu kosningum. Hvað meintu
þeir Haraldur Kristjánsson og
Bjarni Þór Einarsson með því að
hef ja þáttinn á laginu Stórir strákar
fá raflost og halda áfram með Power
to the people og Pínulítill karl? Er
þetta pönkpólitík eða það sem koma
skal? Spyr sú sem ekki veit en hafði
lúmskt gaman af öllu saman.
Solveig K. Jónsdóttir.
Tilkynningar
Heilsugæzlulæknar
skipaðir
í nýju Lögbirtingablaöi er tilk. frá heilbrigð-
is- og tryggingamálaráöuneytinu, þar sem
sagt er frá skipan helsugæzlulækna til þess
aö vera héraðslæknar, til næstu f jögurra ára,
frá 1. júlí si. aðtelja.
Héraöslæknarnir eru: Kristófer Þorleifs-
son, Olafsvík, héraðslæknir í Vesturlandshér-
aði, Pétur Pétursson, Bolungarvík, héraðs-
læknir í Vestfjarðarhéraði, Friðrik J.
Friðriksson, Sauðárkróki, héraðslæknir í
Norðurlandshéraöi vestra, Olafur H. Odds-
son, Akureyri, héraðslæknir í Norðurlands-
héraöi eystra, Guðmundur Sigurðsson, Egils-
stöðum, héraðslæknir í Austurlandshéraði, Is-
leifur Halldórsson, Hvolsvelli, héraðslæknir í
Suðurlandshéraði, og Jóhann Ágúst Sigurðs-
son, Hafnarfirði, héraðslæknir í Reykjanes-
héraði.
Héraðslæknisstaða í Reykjavíkurhéraði er
að lögum bundin við embætti borgarlæknis
sem Skúli G. Johnsen gegnir.
1 fjarveru Olafs H. Oddssonar gegnir Gisli
G. Auðunsson heilsugæzlulæknir á Húsavík,
embætti héraðslæknis í Norðurlandshéraði
eystra frá 1. júli 1982 til 1. ágúst 1983.1 fjar-
veru Guðmundar Sigurðssonar gegnir Stefán
Þórarinsson helsugæzlulæknir á Egilsstöðum
embætti héraöslæknis í Austurlandshéraði frá
1. september 1982 til jafnlengdar 1984.
Dýraverndarinn
Ut er komiö Dýravemdarinn 2. tölublað 1982
— 68. árg. Meðal efnis er Aðalfundur Norræna
dýravemdunarsambandsins, Minning —
Ragnar Ragnarsson, Ályktanir aðalfundar
SDl, Hve lengi vara hjónabönd? Bömin
skrifa, skýrsla DA o. fl. Utgefandi er
Samband dýravemdunarfélaga á íslandi. 1
ritnefnd eru Hjörtur Sandholt og Jórunn
Sörensen (ábm.).
Þjóðhátiðarblað
Vestmannaeyja
Ut er komið þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja.
Meðal efnis eru ljóð og vísur eftir Hafstein
Stefánsson, skipstjóra, grein eftir Áma
Johnsen sem hefur titilínn „Þjóðhátíðartjald
Gauja Manga”, „Þrír prestar, þrír læknar og
þrjár læröar konur” eftir Baldur Johnsen
lækni og „Ellirey á frelsi og fegurð lista” eftir
Guðjón Ármann Eyjólfsson.
Frfmex
I fréttatilkyimingu frá Póst- og símamála-
stjóm segir að, í sambandi við væntanlega frí-
merkjasýningu á Kjarvalsstöðum hér í
Reykjavík dagana 19. ágúst til 23. ágúst, verði
þar opið sérstakt pósthús og gildi sérstakur
póststimpill þar fyrir hvem hinna fimm
sýningardaga Frímex-sýningarinnar eins og
sjá má af póststimplunum hér aö ofan.
Einar Sindrason
háls-, nef- og eyrnarlæknir verður ásamt öðru
starfsfólki Heymar- og talmeinastöðvar Is-
lands á ferð í Búðardal og á Snæfellsnesi dag-
ana 18.—22. ág. nk.
Rannsökuö verður heym og tal og útveguð
heymartæki. Farið verður á eftirtalda staði:
Búðardal 18. ágúst
Stykkishólm 19. agúst
Grundarfjörð 20. ágúst
Olafsvík 21. ágúst
Hellissand 22. ágúst.
Ársrit Geðverndar-
félags íslands
Ut er komið ársrit Geðvemdarfélags Islands,
Geðvernd, 17. árg. 1981. Meöal efnis er:
„Ofbeldi í íslenzkum f jölskyldum” eftir Hildi-
gunni Olafsdóttur, Sigrúnu Júlíusdóttur og
Þorgerði Benediktsdóttur, „Undirbúningur
fyrir öldrun og vinnulok” eftir Sigrúnu Júlíus-
dóttur, grein um Geðdeild Landspítalans eftir
Tómas Helgason, „öryggiskennd bama og
innlögn á sjúkrahús” eftir Gylfa Asmunds-
son. Otgefandi er Geðvemdarfélag Islands.
Tízkuhúsið Stella
Nýlega var opnuð verzlun að Hafnarstræti 16.
Verzlunin ber nafnið Tízkuhúsið Stelia og
selur að mestu sérhönnuð fót frá eigin sauma-
stofu. Veitir verzlunin einnig viðskiptavinum
sínum þá þjónustu að sérsauma eftir máli og
þá einungis úr ekta efnum eins og ull, silki og
leðri. Hönnuður fatanna og eigandi sauma-
stofunnar er Guðbjörg Stella Traustadóttir,
kjólameistari. Meðeigandi hennar að verzl-
uninni er Ingibjörg Sigurðardóttir.
Dagvistun á einkaheimilum
Umsjónarfóstrur með dagvistun á einka-
heimilum vilja vekja athygli á að nú er sá
tími, sem mest eftirspum er um dagvistun
bama. Þeir sem hugsa sér að taka börn á
heimili sín eru hvattir til að hafa samband við
skrifstofuna að Njálsgötu 9 sem allra fyrst.
Siminn er 22360 og 21496.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar -
Dagvistun bama á einkaheimilum.
Félagsstarf aldraðra
í Kópavogi
hefst nú á ný að sumarleyfum loknum. Verður
farið í heimsókn í Kópasel í Lækjarbotnum á
fimmtudaginn kemur og lagt af stað klukkan
10 árd. frá Fannborg 1. Verður komið aftur í
bæinn um kl. 16. Þá er hárgreiðsludaman
komin úr sumarleyfi og byrjar aftur á föstu-
daginn í nýju húsnæði í Fannborg 2, á annarri
hæð. Uppl. er hægt aö fá í síma 46611 eða
43963.