Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1982, Blaðsíða 29
DV. FÖSTUDAGUR13. ÁGUST1982.
37
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
íslendingurbúsetturá Grænlandi:
Mikil stéttaskipting hér”
Þótt Grænland sé þaö land, sem
næst er tslandi eru fáir Islendingar
sem þangaö hafa komiö. Þeir eru þó
enn færri sem búa þar.
Ingibjörg Friðbjörnsdóttir hefur
búiö á Grænlandi síöan hún fór
þangað árið 1979 á myndlistarskóla í
Nuuk (Godtháb). Nú býr hún í
Narssaq, á suðurodda Grænlands,
meö sambýlismanni sínum, Nikolaj
Davidsen.
Ingibjörg fór til Nuuk til aö læra
myndlist viö listaskóla þar.
„Mér fannst Grænland svo stutt
frá okkur og fannst ég vita svo lítið
um landiö. Mér fannst spennandi hin
gamla grænlenska menning,” sagöi
húnviöDVnýlega.
I Nuuk kynntist hún Nikolaj,
grænlenzkum sjómanni, sem átti
heima i Narssaq og þau fluttust til
heimabæjarhans.
Ingibjörg segir aö þaö sé gott aö
vera Islendingur á Grænlandi.
,,Það er erfiðara fyrir Dani. Þaö
eru oft árekstrar á milli. ”
„Þaö er enn ekki búiö aö ná fullu
launajafnrétti. Iðnaðarmennirnir
koma flestir frá Danmörku og þeir
eru á hærri launum. Danskir
kennarar fá ýmis hlunnindi, sem
þeir grænlenzku fá ekki. Grænlenzka
verkalýöshreyfingin er oröin mjög
sterk. Meövitundin hefur aukizt
mjög mikiö, bæöi fyrir og eftir
heimastjórn. Árekstramir veröa
helztáfylleríum.”
„Þaö er mikil stéttaskipting hér,”
segir Ingibjörg. „Danimir eru yfir-
leitt meö hærri stööur og halda sig
saman.”
Ingibjörg vinnur fyrir sér meö
ýmiss konar vinnu — í frystihúsi,
bæjarvinnunni, á krám og ööru
slíku. En í frítímanum stundar hún
myndlistina af kappi.
Flest verka hennar eru úr
grænlenzkri náttúru eöa mannlífi.
„Þetta er hobbí,” segir hún. „Eg
get ekki lifað af þessu.”
Ingibjörg talar dálitla grænlenzku
og er sennilega ein af fáum sem
leggja þaö á sig.
„Þaö er gert of létt fyrir mann aö
lifa án grænlenzkunnar,” segir hún.
,JIér er allt bæöi á dönsku og
grænlenzku. Þaö setur ekki nógu
mikla pressu á mann.”
-Þó.G.
Ingibjörg Friöbjörnsdóttir við nokkur málverka sinna, sem hún hafði á samsýningu i
skólanum i Narssaq.
Nikolaj og Ingibjörg verzia i matinn á fiskmarkaði þar sem veiðimenn hafa afla sinn á
boðstólum.
Hljómsveitín Hrim spilará lokaathöfninni á hátíðarhöldunum vegna 1000 ára afmœlis landnáms Eiriks rauða á
Grænlandi.
DV-mynd Þó. G.
Hrím á Grænlandi:
„Trúbadorar fyrir kóngafólkið”
I einni veizlunni, sem var haldin
til heiðurs þjóðhöföingjunum, sem
heimsóttu Suður-Grænland í síöustu
viku raskaöi það ró Islendinganna í
daufu matarboði þegar allt í einu
heyrðist hressilegt lagiö: „Ríöum,
ríöum, rekum yfir sandinn ...”
Hljómsveitin haföi áöur spilað ljúfa,
gamlanorræna söngva.
Þegar sama hljómsveit spilaöi svo
viö lokunarathöfnina kom í ljós aö
þetta var Hrím frá Islandi.
„Þaö var ægilega gaman aö vera
svona trúbadorarfyrir kóngafólkið,”
.sagöi Matthías Kristiansen, einn
meölimur hljómsveitarinnar.
Matthías sagöi aö hugmyndin um
hljómleikaferð til Grænlands heföi
fæðzt þegar Hilmari J. Haukssyni,
öðrum Hrímara, heföi veriö boöið aö
sigla til Grænlands á víkingaskipi
sem hefði átt aö senda þangað í
tilefni 1000 ára afmælisbyggöar
norrænna manna á Grænlandi.
Ekkert heföi orðiö úr ferö víkinga-
skipsins en þeir heföu byrjað aö ræða
hugmyndina við Hjálmar Ólafsson,
formann Norræna félagsins. Nokkru
seinna hefði svo Hjálmar fengið
skeyti um aö Grænlendingar vildu
gjarna fá íslenzka hljómsveit í
heimsókn á hátíðina.
„Um miðjan júní var þetta neglt
niöur,” sagöiMatthías.
Þeir eru ánægöir með Grænlands-
förina.
Fyrstu dagana segjast þeir hafa
verið alveg eins og túristar.
„Nú höfum viö spilað svolítiö og
fólk er fariö að bjóöa okkur heim og
brosa til okkar á götunni. Þaö or
öðruvísi en heima þar sem enginn
brosir,” sagði Matthías.
Þeir hafa þegar haldiö tónleika í
heimahúsi og í bát á Grænlandi.
Einnig hafa þeir spilað fyrir dansi í
Julianeháb-hallen íQuqortoq.
Þeir taka ekki við neinum
peningum fyrir.
„Viö erum fyrst og fremst aö
þessu ánægjunnar vegna,” sagði
Hiimar.
Þeir sögöu að Qaqortoqbær sjái
um uppihaldið, SAS- .flugfélagið hafi
gefiö tvo miöa og þrír hafi verið
keyptirfyrirstyrki.
„Eini kostnaðurinn er bjórinn,”
sagöi Matthías.
Auk Hilmars og Matthíasar, eru í
hljómsveitinni Hrim; Einar Lárus-
son, Sigurður Ingi Ásgeirsson og
Wilma Young, frá Hjaltlandseyjum
viö Skotland. -Þó.G.
Ætla að verða eins
góður og Amór
— ef ekki betri
Knattspyrnuáhugi hefur ávallt
veriö mikill á Húsavík, og skiptir
aldur þar engu máli. Fréttaritari DV
hitti einn ungan Húsvíking þar sem
hann var á fullu meö boltann sinn og
sýndi skemmtilega takta. Drengur-
inn sem er tólf ára gamall heitir
Ölver Þráinsson.
Hann kvaöst hafa mikinn áhuga á
fótbolta, og heföi byrjað aö æfa meö
fimmta flokki Vöisungs á Húsavik í
maí á þessu ári. Áhuginn hafi vaknað
hjá sér þegar Goöi bróöir hans hafi
gefiö honum fótboltabúning og skó.
„MérfinnstVölsungurgott lið, og
sérstaklega fimmti flokkur sem ég
æfi meö. Viö æfum þrisvar sinnum í
viku og heitir þjálfarinn Kristján
Kristjánsson — mjög góöur þjálf-
ari,” sagöi þessi geðfelldi ungi Hús-
víkingur.
Aðspurður kvaöst ölver ætla aö
veröa eins góður og Amór
Guðjohnsen — ef ekki betri.
-GSG/Guðbrandur Jónsson
Húsavik.
ölver Þráinsson sýnir hir snilldartakta með knöttínn og er greinilegt að
hann hefur alla burði tíl að ná langt.