Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1982, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1982, Side 9
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGOST1982. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Umsjón: Gunnlaugur A.Jónsson Sovét- menn heiðra Honecker sjötugan Sovétríkin sæmdu í gær Erich Honecker, leiðtoga A-Þjóðverja, titlin- um „Hetja Sovétríkjanna” sem er æðsta viöurkenning sem veitt er þar í landi. Var þetta gert í tilefni af s jötugs- afmæli Honeckers sem er í dag. I persónulegu heillaskeyti lýsti Brés- nef, forseti Sovétríkjanna, honum sem sönnum vini Sovétríkjanna sem hefði lagt mikiö af mörkum til að styrkja vináttu og samstarf þjóöanna tveggja. I frétt Tass-fréttastofunnar sagði að viðurkenningin hefði verið veitt Honecker fyrir öfluga þátttöku hans ,,í baráttunni gegn nasismanum” og framlag hans til „málefnis friðarins og styrktar sósialismanum”. Viðurkenning þessi er mjög sjaldan veitt útlendingum en ráðamönnum í Moskvu þykir Honecker vera vel að henni kominn enda hefur hann verið einn dyggasti stuöningsmaöur þeirra í Austur-Evrópu í meira en áratug. ÉTaylor skorin uppvið krabba- meini Leikkonan, Elisabet Taylor, var skorin upp við krabbameini í andliti fyrirtveimur árum. Þetta kemurfram í nýrri útgáfu minninga hennar. Það var þingmaöurinn, John Wamer, sjötti eiginmaður Taylor, sem krafðist þess að hún færi til læknis. Skurölæknir f jariægði síðan nokkrar krabbameinsmyndanir við annað auga hennar og nef. Liz Taylor hélt fyrst að þetta væru freknur en þegar þær byrj- uðu að stækka varö hún hrædd. Uppskurðurinn skildi aðeins eftir mjög lítil ör og að sögn skurölæknisins var hér um að ræða skuröaögerð sem f jölmargir gangast undir á hverju ári. James Stewart lagður inná sjúkrahús Kvikmyndaleikarinn kunni, James Stewart, sem er 74 ára gamall, hefur verið lagður á sjúkrahús i Los Angeles til rannsóknar. Talsmaður sjúkrahússins sagði að Stewart, sem er stjama úr meira en 80 kvikmyndum, hefði verið lagður inn á sjúkrahúsið síðastliðinn laugardag og væri reiknað með að hann fengi að f ara heim á ný innan fárra daga. Talsmaðurinn vildi þaö eitt segja um Stewart aö hann væri í rannsókn og í athugun væri að breyta lyf jameðferð þeirri sem hann hefur hlotið. Fyrir tveimur ámm var Stewart lagður inn á sjúkrahús í nokkra daga eftir að hann kvartaöi undan óreglulegum hjart- slætti. Þegar Stewart var lagður inn á sjúkrahúsiö á laugardaginn vom ekki nema ellefu dagar liðnir frá því að bezti vinur hans, leikarinn Henry Fonda, lézt af völdum hjartabilunar. Bruno Kreisky segist hafa f engið nóg af ísraelsmönnum: „Stríðiö hefur kostað ísrael alla samúð” segir Kreisky og kveðst ekki f ramar taka þátt í neinum málamiðlunartilraunum f Miðausturlöndum Bmno Kreisky, kanslari Austur- ríkis, sagði í blaðagrein, sembirt var í gær að hann vildi ekkert hafa frekar með Israel að gera eftir innrás þeirra í Líbanon. Kreisky er sjálfur gyðingur og tók á sínum tíma þátt í fjölmörgum málamiðlunartil- raunum alþjóöa samtaka sósíalista í Miðausturlöndum. Kreisky, sem var fyrstur leiðtoga Vesturlanda til að viðurkenna PLO, sagði að ekki kæmu til greina neinar frekari málamiölunartilraunir af hans hálfu enda hefði hann nú gerzt dyggur stuðningsmaöur hinna „ofsóttu” Palestínumanna eins og hann orðaði þaö. I greininni sem birtist í vestur- þýzka tímaritinu Stern sagði Kreisky meöal annars: „Israel er siðferði- lega nakið. Leiðtogar þjóöarinnar hafa nú sýnt sitt rétta andlit. ” , JStríöiö í Líbanon hefur kostaö Israelsmenn alia þá samúð og stuðning sem þeim hefur hlotnazt á siðustu áratugum.” Kreisky sagði ennfremur að heimurinn óttaðist brjálæði leiötoga Israels sem treystu einungis á vopn sín. ,,Ég vil ekki framar hafa neitt að gera með þetta Israel,” sagði Kreisky. Kreisky sagði að það væri hörmu- legt að það hefði þurft stríð í Líbanon tU þess að PLO öðlaöist þá viður- kenningu sem samtökunum hefði veriö neitað um í friði. En hann bætti því við að nú væri öUum ljóst að samningaviðræöur yrði aö halda við Yasser Arafat, leiðtoga PLO. Kreisky kvaðst hér eftir hvenær og hvar sem væri tala máli hinna of- sóttu og kúguöu Palestínumanna. Hann sagði ennfremur aö ef PLO- menn væru skynsamir þá myndu þeir halda sér frá öUum hryðju- verkum. „Þeir veröa að reyna aö viðhalda þeirri samúð sem þeir hafa öölazt á liðnum vikum þar til Banda- ríkjamönnum og ísraelsmönnum verður ljóst að framhaldið getur ekki orðið eins og hingað til. ” Ola Ullsten, utanríkisráðherra Svíþjóðar og formaður Þjóðarflokksins, sést hér i hópi stuðningsmanna. Lif er nú að færast i kosningabaráttuna í Sviþjóð enda tæpur mánuður í kosningar. Skoðanakannanir benda til að úrslit geti orðið tvisýn þó flestar bendi þær til að jafnaðarmenn undir forystu Olofs Palme komist aftur til valda. Flokki Ull- stens utanríkisráðherra er hins vegar spáð miklu fyigistapi. Ronald Reagan: Aðeinsítak- markaðantíma Reagan Bandarikjaforseti hefur formlega skýrt bandariska þinginu frá þvi að bandarísku sjóliðarnir sem nú hafa gengið á land í Beirút verði þar aðeins í takmarkaðan tima. Bandarisku sjóliðamir gengu á land f Beirút i morgun til að taka þar þátt i gæzlustarfi ásamt frönskum, itölskum og libönskum gæzlusveitum. Frakkarláta tækniútbúnað afhendi Vöruflutningaskip á leið til Sovétríkjanna átti að leggjast að landi í Le Havre i Frakklandi í dag til að taka þar varahluti i gasleiðsluna umdeildu frá Siberiu til Evrópu. Frakkar hafa ákveðið að hafa að engu bann Bandarikjamanna við að tæknl- útbúnaður frá bandariskum dótturfyrirtækjum í Frakklandi verði látinn Sovétmönnum í té. I Bandarikjunum liefur dóm- stóll úrskurðað að stjórninni sé heimilt að gripa til refsiaðgerða gagnvart fyrirtækjum sem brjóti gegn banni bandarískra stjóra- valda við að Sovétmönnum verði látinn i té tækniútbúnaður til gas- leiðslunnar. I söludeild okkar aö Seljavegi 2 er góö aðstaöa til aö skoöa og kynnast kostum Danfoss ofnhitastill- anna, blöndunartækjanna og annari Danfoss fram- leiöslu, sem stuölar aö beinum orkusparnaöi. Tæknimenn Danfoss deildarinnar leiöa þig i allan sannleika. » Höganas fllsarnar eru þekktar fyrir gæöi. Nú er gott úrval af fllsum. Einnig fllsaefni og verkfæri. í sýningarkassanum sjáiö þiö ótal hugmyndir — festar á litskyggnur, sem auövelda ykkur valiö á Höganás flísum. = HEÐINN = SEUAVEGI 2, REYKJAVIK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.