Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1982, Page 33
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGUST1982.
33
Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið
MARGT ER AÐ SJÁ
Á AUSTFJÖRDUM
Þessar ágætu myndir tók ljósmynd-
ari DV fyrir stuttu er hann átti leið um
Austfirðina. Var hann þá staddur í
Vaðlavík sem er skammt frá Eskifirði.
Berglind Þormóðsdóttir var svo væn
að stilla sér upp fyrir framan mynda-
vélina og óneitanlega lífgar hún mynd-
irnar upp.
Á annarri myndinni situr Berglind á
rekaviðardrumbi. Fróðir menn telja
hann langt að kominn og kvaðst einn
telja að hér væri um að ræða furutré
sem velkzt hefði í sjónum alla leið frá
Síberíu.
Hin myndin sýnir Berglindi á æva-
fomri sláttuvél, sem vitaskuld er löngu
hætt að nýtast eigendum sínum. En
sjálfsagt hefur hún þótt mikið drauma-
tæki hér fyrr á árum. Þó hafa sjálfsagt
allir verið fegnir þegar ný tækni ruddi
sér til rúms og „sjálfrennandi” sláttu-
vélar komu til sögunnar. Þó hefur
eflaust enginn verið eins ánægöur og
vesalings hrossið sem mátti draga
þetta um alls kyns ófærur, tímunum
saman.
-GSG.
Eflaust befur hrossið sem draga þurfti þessa fornu sláttuvél verið fegið þegar ný t»rfmi kom til sögunnar
DV-myndir: S.
Reiðhjólakeppni
i Garðabæ
Reiðhjólaklúbbur Bindindisfélags
ökumanna hélt reiðhjólakeppni fyrir
krakka í Garðabæ fyrir skömmu. Var
þetta önnur keppnin sem klúbburinn
heldur í sumar. Þátttakan hefur verið
með afbrigðum góð. Og greinilegt að
ungmennin kunna að meta þetta fram-
tak reiðhjólaklúbbsins. Enda finnst
þeim fátt skemmtilegra en að setjast á
bak fáki sínum og sýna listir sínar.
Krakkarnir lögðu sig alla fram við að
inna þrautimar sem bezt af hendi og
var það mál manna að þeir hafi sýnt
ótrúlega leikni í meðferð hjólanna.
Fyrsta hjólakeppnin var haldin í
Hafnarfirði og var greint frá henni í
Sviðsljósinu. Sú þriöja fór fram í Kópa-
vogi. I lokin verður haldin úrslita-
keppni. Fjórir efstu úr forkeppnunum
munu þar reyna meö sér. Sigurvegar-
inn í úrslitakeppninni fær svo að verð-
launum veglegt reiöhjól frá verzlun-
inni Mílunni.
-GSG.
Eins og myndin sýnir var það ekki tekið út með sældinni að ljúka keppni. I braut-
inni voru alls kyns forarvilpur. En keppendur létu það lítið á sig fá.
Því miður vitum við ekki hvað börnin sáu þegar Ein-
ar Óiason smeliti þessari ágætu mynd af. En greini-
legt er þó að eitthvað athygiisvert hefur þar verið á
ferð. Hver veit nema þau hafi séð fijúgandi furðu-
hlut?